• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fréttir

Fréttir

23
Jul

Vinnsla byrjuð aftur eftir sumarlokun hjá HB Granda

Vinnsla hófst aftur í morgun eftir sumarhlé í frystihúsi HB Granda.  Eins og undanfarin ár var frystihúsinu lokað frá 2. júlí til 23. júlí.

Formaður fór í morgun og tók púlsinn á nokkrum starfsmönnum sem voru að hefja störf eftir sumarleyfi.  Fram kom í máli starfsmanna að vinnslan væri ekki komin á fulla ferð enda væru þó nokkrir starfsmenn ennþá í sumarfríi og ugglaust yrði frekar rólegt fram yfir verslunarmannahelgi.

Í dag fara um 15 tonn í gegnum frystihúsið en þegar vinnslan verður komin á fullt skrið þá fara rúm 20 tonn á góðum degi.

Þorskur hefur verið uppstaðan í vinnslunni hér á Akranesi á undanförnum árum og því mun niðurskurður á aflaheimildum uppá 30%  væntanlega koma nokkuð hart niður á vinnslunni hér á Akranesi.

Samkvæmt upplýsingum sem formaður hefur aflað sér þá hafa forsvarsmenn HB Granda ekki ákveðið hvernig niðurskurði uppá 30% verður mætt.  En eðlilega mun allstaðar koma til einhvers samdráttar og sér í lagi þar sem vinnsla byggist að stórum hluta á þorski.

Nú er bara að vona að þessi niðurskurður komi eins mildilega niður á sjómönnum og fiskvinnslufólki og kostur er, þótt vissulega megi gera ráð fyrir umtalsverðum tekjumissi sökum þessa aflasamdráttar.

20
Jul

Kolmunna landað á Akranesi

Tvö kolmunnaskip lönduðu hér á Akranesi í gær.  Þetta voru skipin Áskell frá Grenivík sem landaði um 700 tonnum og Lundey NS sem var með fullfermi eða nálagt 1.500 tonnum.

Formaður fór og hitti starfsmenn síldarbræðslunnar í morgun og voru þeir bara nokkuð kátir og töldu að búið yrði að bræða þennan afla á sunnudaginn kemur.  Þessi afli veiddist fyrir vestan land og því var styst að landa kolmunnanum hér á Akranesi.  Síðast var brætt í byrjun maí hér á Akranesi og því var þessi kolmunnaafli kærkominn fyrir starfsmenn bræðslunnar en stór hluti af tekjum starfsmanna koma þegar vaktir eru staðnar í verksmiðjunni.

Ingunn AK hélt til kolmunnaveiða í gær eftir að hafa verið í vélaviðgerð í um tvær vikur að sögn starfsmanna bræðslunnar og því verða í það minnsta þrjú kolmunnaskip á miðunum vestur af landi.

18
Jul

Taka verður hart á ólöglegum mótmælaaðgerðum

Eins og fram hefur komið í fréttum þá hafa um 20 umhverfisverndarsinnar frá aðgerðarsamtökunum Saving Iceland hlekkjað sig saman og lokað veginum sem liggur upp að álveri Norðuráls á Grundartanga.

Formaður félagsins var staddur á Grundartangasvæðinu í dag og sá hvar umhverfisverndarsinnar höfðu hlekkjað sig saman og með því náð að loka veginum sem liggur upp að álverinu.  Hins vegar var lögreglan búin að opna hjáleið í gegnum vinnusvæði Íslenska járnblendifélagsins þannig að starfsmenn Norðuráls náðu bæði að komast til vinnu og eins frá vinnu.

Sigurður Harðarson, einn mótmælendanna, sagði, í samtali við mbl.is, mótmælin vera friðsöm og að verið væri að vekja athygli á náttúruspjöllum og þeirri mengun sem komi frá verksmiðju Íslenska járnblendifélagsins og álverinu.

Formaður spyr sig: hvernig geta það verið friðsamleg mótmæli að loka vegi með því hlekkja sig saman með það eitt að markmiði að starfsmenn Norðuráls komist ekki til og frá vinnu.  Það liggur fyrir að starfsmenn Norðuráls vinna langan og strangan vinnudag þannig að ef ekki hefði verið hægt að opna áðurnefnda hjáleið þá hefði öryggi starfsmanna hugsanlega verið ógnað.  Slík mótmæli eru með öllu ólíðandi og ber yfirvöldum að taka hart á slíkum mótmælum.

Formaður veltir öðru atriði fyrir sér: hvað með löggæslu í Borgarfirði á meðan slík ólögleg mótmæli eiga sér stað?  Formaður VLFA gat ekki séð annað en að töluverður hluti lögreglumanna frá Borgarnesi hafi verið á vettvangi í dag, eðlilega.  Hvað ef alvarlegt slys hefði orðið t.d. uppá Holtavörðuheiði og stór hluti lögreglunnar í Borgarnesi að sinna ólöglegum mótmælaaðgerðum.  Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan mjög alvarlegt banaslys varð hér í nágrenninu og í því slysi þurfti að sameina löggæslu frá Akranesi og Borgarnesi.

Á þeirri forsendu er algerlega ólíðandi að ólögleg mótmæli af þessu tagi ógni öryggi íslenskra þegna vegna þess að lögreglan sé upptekin af því að kljást við umhverfissinna af þessu tagi. 

Það eru grundvallar mannréttindi að mega mótmæla, um það er ekki deilt. Hins vegar verða allir mótmælendur að fara eftir þeim lögum og reglum sem gilda hér á landi og mega ekki undir neinum kringumstæðum ógna öryggi annarra.  Þess vegna ber yfirvöldum að taka hart á þeim mótmælendum sem ekki virða lög og reglur hér á landi. 

18
Jul

Nú er komið að verkafólki

Það er óhætt að segja að töluvert annríki verði í starfsemi félagsins þegar líður á haustið en um áramótin eru þónokkrir kjarasamningar lausir.

Þeir kjarasamningar sem verða lausir nú um áramótin eru t.d. kjarasamningurinn á hinum almenna vinnumarkaði, sérkjarasamningur starfsmanna sem starfa í gjaldskýlinu við Hvalfjarðagöng og einnig sérkjarasamningur starfsmanna síldarbræðslu HB Granda hér á Akranesi.

það er alveg ljóst að þónokkur eftirvænting er hjá verkafólki á hinum almenna vinnumarkaði vegna komandi kjarasamninga.  Eftirvæntingin hjá verkafólki byggist á því að laun þeirra sem lægstu hafa tekjurnar verði í eitt skipti fyrir öll leiðrétt í næstu samningum.

Við í verkalýðshreyfingunni verðum að standa þétt saman í komandi kjarasamningum og lyfta lágmarkslaunum úr 125.000 í átt að þeim markaslaunum sem almennt er nú verið að greiða.  Samkvæmt könnum sem SGS lét gera í september 2006 eru meðal dagvinnulaun í kringum 176.000.

Til að það náist þarf eins og áður sagði víðtæka samstöðu innan verkalýðshreyfingarinnar og ekki mun standa á Verkalýðsfélagi Akraness í þeim efnum, svo mikið er víst. 

Við sem erum í forystu stéttarfélaga getum ekki lengur horft uppá þá lágmarkstaxta sem nú eru í gildi, launataxtar sem ekki duga fyrir lágmarksframfærslu og eru verkalýðhreyfingunni til skammar.  Þess vegna segir formaður VLFA, nú er komið að því að verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði fái leiðréttingu á sínum lúsarlaunum.  Formaður VLFA vill að það komi skýrt fram að hann undirritaði ekki síðustu kjarasamninga sem gerðir voru 7. mars 2004 á þeirri forsendu hversu rýrir þeir voru. 

Ef verkalýðshreyfingin ætlar að lagfæra launakjör þeirra sem verst eru settir á hinum almenna vinnumarkaði þá verður hún að standa saman, öðruvísi verður það aldrei hægt.

17
Jul

Félagsmaður Verkalýðsfélags Akraness lést á leið til vinnu sinnar á Grundartangasvæðinu

Karlmaður á fertugsaldri lést er hann lenti í árekstri á mótorhjóli sínu við strætisvagn um kl. 19 í gærkvöldi. Hann var á leið til vinnu í Norðuráli ásamt tveimur samstarfsfélögum sínum.  Hinn látni var félagsmaður í Verkalýðsfélagi Akraness. 

Slysið varð á Akrafjallsvegi við gatnamót Innnesvegar og Akrafjallsvegar. Bifhjólinu var ekið austur Akrafjallsveg og strætisvagninum í vestur með fyrirhugaða akstursstefnu suður Innnesveg, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Bifhjólið lenti framan á strætisvagninum og hafnaði ökumaður þess utan vegar. Talið er að hann hafi látist samstundis. Hinn látni var á leið til vinnu eins og áður sagði ásamt tveimur félögum sínum og missti annar þeirra stjórn á hjóli sínu við slysið og féll í götuna. Hann meiddist þó ekki.

Tildrög slyssins voru ekki ljós seint í gærkvöldi en ekkert á vettvangi bendir til hraðakstur.

Formaður félagsins er ánægður með hvernig forsvarsmenn Norðuráls hafa brugðist við þessu skelfilega slysi.  Þeir kölluðu strax út áfallateymi frá sjúkrahúsi Akraness til að ræða við samstarfsfók hins látna.

Vinnuveitendur hins látna og formaður félagsins hafa verið í sambandi í gær og í dag vegna þessa skelfilega slys enda voru þetta allt félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sem komu að þessu hörmulega slysi. 

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness vill votta eiginkonu hins látna, börnum hans, ættingum sem og samstarfsfólki hans, okkar dýpstu samúð.

16
Jul

Formaður fundaði með forsvarsmönnum Norðuráls

Á föstudaginn átti formaður fund með Ragnari Guðmundssyni framkvæmdastjóra Norðuráls og Skúla Skúlasyni starfsmannastjóra. 

Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá hefur formaður félagsins átt í viðræðum við forsvarsmenn Norðuráls að undanförnu.  Viðræðurnar eru vegna nokkurra atriða sem tengjast hagsmunum þeirra félagsmanna VLFA sem starfa hjá Norðuráli.

Unnið er að lausn á þessum ágreiningi en á þessari stundu er alls óvíst hvort það takist eða ekki.

Eins og formaður hefur sagt áður þá er gríðarlega mikilvægt að gæta vel að hagsmunum starfsmanna Norðuráls í ljósi þess að Norðurál er orðin langstærsti vinnustaðurinn á Vesturlandi.  Í dag eru um 430 starfsmenn að störfum í Norðuráli og eru 360 þeirra félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness.

14
Jul

Fundað með forsvarsmönnum Íslenska járnblendifélagsins

Formaður félagsins átti fund með forsvarsmönnum Íslenska járnblendifélagsins.  Tilefni fundarins voru hin ýmsu hagsmunamál er lúta að þeim félagsmönnum VLFA sem starfa hjá IJ.

Nú starfa um 110 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness hjá Íslenska járnblendinu.  Það er hlutverk félagsins að gæta að réttindum sinna félagsmanna í hvívetna og var þessi fundur einn liður í þeirri vinnu.

Fram kom á fundinum að undirbúningur að nýrri framleiðslu sem nefnist FSM er nú í fullum gangi og er fyrirhugað að framleiðslan hefjist í febrúar á næsta ári.

Ljóst er að mun meiri stöðuleiki mun koma í rekstur Íslenska járnblendifélagsins þegar framleiðslan á FSM byrjar en rekstur ÍJ hefur ætið verið nokkuð sveiflukenndur.

Vegna þessarar nýju sérframleiðslu þarf að fjölga starfsmönnum um 35 og er nú þegar búið að ráða 25 starfsmenn.  Eftir á að ráða 10 nýja starfsmenn og er fyrirhugað að því verði lokið í byrjun ágúst að sögn mannauðsstjóra Íslenska járnblendifélagsins.

12
Jul

Formaður Verkalýðsfélags Akraness skorar á félagsmálaráðherra og samgöngumálaráðherra

Eins og margir muna þá hafa nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar á undanförnum þingum ítrekað lagt fram frumvarp um lögbindingu lágmarkslauna. Nægir að nefna Þskj. 334  —  306. mál sem lagt var fram á 131. löggjafarþingi 2004–2005.

Í fyrstu grein frumvarpsins var lagt til að heildarlaun á mánuði fyrir 18 ára og eldri skulu ekki vera undir 138.500 kr. fyrir fulla dagvinnu.  Lágmarkslaunin voru 103.000 þegar frumvarpið var lagt fram 2004.  Ef áðurnefnt frumvarp hefði náð fram að ganga þá væru lágmarkslaunin í dag 161.514,- að teknu tilliti til þeirra kjarasamningsbundnu hækkana sem orðið á hafa frá því frumvarpið var lagt fram, en lögin áttu að taka gildi 1. júní 2005.

Formaður félagsins styður það eindregið að lágmarkslaun verði lögbundin enda hefur verkalýðshreyfingunni því miður mistekist á undanförnum árum að hækka lágmarkslaunin í þá átt að lifandi sé á þeim. Í dag eru lágmarkslaunin 125.000 fyrir fulla dagvinnu og það sér það hver heilvita maður að slík lúsarlaun duga ekki fyrir lágmarksframfærslu.

Það er gríðarlega mikilvægt að lágmarkslaunin hækki umtalsvert sérstaklega í ljósi þess að um 20 þúsund erlendir starfsmenn eru nú á íslenskum vinnumarkaði.  Það liggja fyrir upplýsingar að stórhluti erlendra starfsmanna starfi á berstrípuðum lágmarkstöxtum.  Það liggur einnig fyrir að markaðslaunakerfið er í stórhættu með auknu aðgengi atvinnurekenda að ódýru vinnuafli frá Austur- Evrópu.  Því er afar mikilvægt að lögbinda lágmarkslaun nær þeim markaðslaunum sem almennt er verið að greiða á vinnumarkaðnum í dag. 

Nú er staðan hins vegar orðið þannig að tveir af flutningsmönnum áðurnefnds frumvarps eru orðnir ráðherrar og Samfylkingin komin í stjórnarmeirihluta. Á þeirri forsendu skorar formaður Verkalýðsfélags Akraness á Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra og Kristján L. Möller samgöngumálaráðherra að leggja fram frumvarp á komandi þingi sem tryggir íslensku verkafólki lágmarkslaun ekki undir 165.000 krónum.  Nú er tækifæri fyrir þingmenn Samfylkingarinnar að ná þessu sjálfsagða baráttumáli í gegn, réttindamáli sem barist hefur verið fyrir í áraraðir án árangurs.

Frumvarpið í heild sinni má lesa með því að smella á meira.


131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 334  —  306. mál.

 

Frumvarp til laga

um lágmarkslaun.

Flm.: Gísli S. Einarsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Árni Stefánsson,
Kristján L. Möller, Einar Már Sigurðarson.

 

1. gr.


    Heildarlaun á mánuði fyrir 18 ára og eldri skulu ekki vera undir 138.500 kr. fyrir fulla dagvinnu.

2. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2005.

Greinargerð.


    Frumvarp til laga um lágmarkslaun var lagt fram á 121. og 122. þingi en náði ekki fram að ganga. Það var lagt fram að nýju á 123., 125., 126. og 128. þingi í breyttri mynd. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að heildarlaun á mánuði fyrir 18 ára og eldri skuli ekki vera lægri en 138.500 kr. á mánuði fyrir fulla dagvinnu.
    Meginvandi íslensks þjóðfélags er fátækt og skuldir og stafar það af lágum launum. Þó að um tiltölulega fá heimili sé að ræða hafa lág laun leitt til margs konar vanda og jafnvel hrakið fólk af landi brott. Einkenni íslensks hagkerfis eru hin lágu taxtalaun. Um nokkra hríð hefur ekki verið hægt að framfleyta fjölskyldu með lægstu taxtalaunum. Launakerfið á Íslandi einkennist af umfangsmiklum feluleik með raunveruleg launakjör. Þannig hafa ýmiss konar aukagreiðslur komið til viðbótar taxtalaunum. Annað einkenni á íslensku atvinnulífi er hve langan vinnutíma íslenskir launamenn vinna. Í samanburði sem var gerður milli Íslands og Danmerkur kom í ljós að launamaður hérlendis vann um 50 klst. á viku að meðaltali en danskur launamaður 39 klst. Þetta sýnir að íslenskur launamaður vinnur að jafnaði tíu vikum lengur en danskur launamaður á ári hverju. Lífskjörum hér á landi, sem eru betri en launin gefa til kynna, er þannig augljóslega fyrst og fremst haldið uppi með löngum vinnudegi.
    Hjálparstarf hefur sífellt aukist innan lands vegna bágs ástands. Samkvæmt upplýsingum hjálparstofnana og ýmissa líknaraðila hafa þúsundir einstaklinga notið matargjafa sökum fátæktar. Félagsleg aðstoð sveitarfélaga hefur aukist svo síðustu ár að þeim er mörgum um megn að sinna þeim skyldum sínum.

Lág framleiðni og fólksflótti.
    Alþjóðlegur samanburður sýnir að laun á Íslandi eru áberandi lægri en í helstu viðmiðunarlöndum okkar. Ein aðalástæða þessa er að framleiðni íslenskra fyrirtækja er mun lægri en þekkist annars staðar. Þannig er samkeppnisstaða Íslands mjög léleg í alþjóðlegum samanburði. Framleiðni á hverja vinnustund á Íslandi er með því lægsta sem þekkist í Evrópu. Í samanburði á landsframleiðslu á vinnustund í 24 OECD-ríkjum er Ísland í 20. sæti.
    Þegar borin eru saman laun og lífskjör verður vitaskuld að taka tillit til margra þátta, svo sem bótakerfis, skattkerfis, húsnæðiskerfis, vaxta, matvöruverðs, heilbrigðiskerfis og gjalda fyrir opinbera þjónustu.
    Í íslensku þjóðfélagi hefur lengi tíðkast að vinna langan vinnudag. Sú hefð markast af einhæfu atvinnulífi um aldir þar sem unnið var í skorpum bæði til sjávar og sveita. Þessi vinnumáti hefur breyst síðustu áratugi eftir því sem íslenskt hagkerfi hefur færst nær því sem gerist í nágrannalöndunum og ýmiss konar þjónustustörf skipta sífellt meira máli. Nýjar vinnutímareglur á Evrópska efnahagssvæðinu leyfa ekki lengur svo langan vinnutíma.
    Lág taxtalaun hér á landi eru efnahagslegt vandamál. Þau leiða til þess að ýmsir sem eru á þessum launum eiga vart fyrir mat, hvað þá að þeir geti nýtt sér þá þjónustu sem eðlilegt er að veitt sé í nútímaþjóðfélagi. Jafnframt verður þetta til þess að ýmsar starfsstéttir fá viðbætur við laun sem ekki er samið um í kjarasamningum. Þetta skapar verulegt óöryggi fyrir launafólk í landinu og hefur, með öðru, stuðlað að því að launajafnrétti er ekki eins og skyldi. Það að lægstu taxtar skuli vera svipaðir og lágmarksframfærsla er ósvinna. Hér eru margir ábyrgir.
    Tímakaup í dönskum iðnaði árið 1994 var 97% hærra en í íslenskum. Ekki eru nýjar tölur fyrirliggjandi. Tekjur hjóna í Danmörku árið 1993 voru um 39% hærri en á Íslandi. Danskur byggingaverkamaður hefur um 28% hærri ráðstöfunartekjur en íslenskur. Þessar tölur, sem komu fram í skýrslu forsætisráðherra um laun og lífskjör á Íslandi, í Danmörku og víðar, segja alla söguna.

Skattar og lág laun.
    Í þessum samanburði við Danmörku ber að hafa í huga að byrði beinna skatta er minni hér en í Danmörku. Meðalheimili í Danmörku greiðir 38% tekna sinna í tekju- og eignarskatt en meðalheimili á Íslandi 21%. Jaðarskattar eru hærri í Danmörku en á Íslandi, en þykir þó mörgum nóg um þá hérlendis.
    Hins vegar er athyglisvert að skattleysismörk hér á landi voru 57.000 kr. á mánuði þegar samanburðurinn var gerður en í Danmörku eru engin skattleysismörk. Skattleysismörk á Íslandi eru nú 71.270 kr. Það er umhugsunarvert hvort skattleysismörk hér á landi, sem vissulega eru ekki há, hafi komið í veg fyrir hækkun taxtalauna undanfarin ár. Ef greiddur væri skattur af öllum tekjum, ef til vill 10–15% skattur af lægstu tekjum, er ekki ósennilegt að það hefði leitt til hærri taxtalauna í kjarasamningum síðustu ár. Umræðu vantar um þennan þátt mála hérlendis. Jaðarskattar koma harðast niður á tekjulægsta fólkinu á Íslandi en leggjast jafnt á alla tekjuhópa í Danmörku. Af þeim sökum er full ástæða til að endurskoða skatta- og launakerfin á Íslandi í samhengi við ákvörðun lágmarkslauna.
    Í alþjóðlegum samanburði kemur skýrt fram að óbeinir skattar hér eru mun hærri en erlendis. Þá er verð á matvælum mun hærra hér en í nágrannalöndunum og leiðir það hugann að því að löngu er tímabært að endurskoða stefnu stjórnvalda í því efni. Endurbætur á því sviði væru ein mesta kjarabót fyrir láglaunafólk sem hægt væri að hugsa sér.
    Við gerð kjarasamninga undanfarin ár hefur verkalýðshreyfingin oft talað um að nú væri kominn tími til að hækka lægstu launin. Viðurkenna ber að árangur hefur náðst þótt lægstu umsamin laun séu verulega mikið fyrir neðan fátæktarmörk að mati félagsfræðinga. Á verðbólgutímanum var einna algengast að samið væri um kauphækkun sem átti að leiðrétta lægstu launin. Þá var reiknuð út prósentuhækkun þeirrar launahækkunar og hún gekk í gegnum allt kerfið. Láglaunafólk stóð þannig eftir í sömu sporum og áður og verðbólgan eyddi áhrifum hagstæðra kjarasamninga á örskömmum tíma.
    Við gerð kjarasamninga síðari ár hefur reynst einna best að semja um eingreiðslur til að hækka lægstu laun. Sú aðferð virðist hafa gefist nokkuð vel í undanförnum kjarasamningum. Þrátt fyrir það eru lægstu taxtalaunin svo lág að það er gjörsamlega óverjandi fyrir þjóðfélagið. Ekki má gleyma því að fjölmargir fá greitt samkvæmt þessum töxtum og má þar nefna ófaglært starfsfólk, ekki hvað síst á vegum hins opinbera. Þetta launafólk hefur ekki tækifæri til að bæta sér upp lág laun með mikilli vinnu eða kaupaukakerfi. Það lifir í sárri fátækt og á fárra kosta völ.

Gildistaka frumvarpsins.
    Flutningsmenn telja að allt sem viðkemur kjarasamningum eigi að vera á forræði samningsaðila. Þar sem ekki hefur tekist með samningum að knýja fram hækkun lægstu launa undanfarin ár ber Alþingi Íslendinga skylda til að grípa inn í þessi mál með lagasetningu.
    Í 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um að heildarlaun á mánuði fyrir 18 ára og eldri skuli ekki vera undir 138.500 kr. Í kjölfar mjög mikilla launabreytinga sem orðið hafa hjá einstökum starfsstéttum undanfarið og eru langt umfram almenna kjarasamninga er ástæða til að flytja frumvarp til laga um lágmarkslaun. Nú er ljóst að 138.500 kr. mánaðarlaun fyrir fulla dagvinnu eru ekki há og flestir launþegar hafa hærri heildarlaun, að vísu með nokkurri eftirvinnu. Frumvarpinu er því fyrst og fremst ætlað að skapa vörn fyrir þá sem minnst mega sín. Rökin fyrir þessu eru augljós. Hækkun lægstu launa í 138.500 kr. á mánuði mun auka velferð þeirra fátækustu í íslensku þjóðfélagi, jafna laun og bæta afkomu margra einstaklinga. Það er engin ástæða til að ætla að lagasetning af þessum toga muni kalla á óðaverðbólgu, allra síst ef aðilar vinnumarkaðarins setjast nú niður í alvöru til að semja um hækkun lægstu taxtalauna eins og þeir hafa margoft talað um undanfarin ár.
    Að mati flutningsmanna mun lagasetning af þessum toga knýja samningsaðila til að finna leiðir til að unnt verði að lifa mannsæmandi lífi af dagvinnulaunum.

Lögbinding lágmarkslauna.
    Launaumræða verður að vera í alþjóðlegu samhengi. Íslenskar vörur eru vitaskuld í samkeppni við erlendar, hvort sem um er að ræða útflutningsvörur okkar eða vörur sem keppa við innflutning. Við verðum að standast þessa alþjóðlegu samkeppni og okkur hefur fyrst og fremst tekist það með löngum vinnudegi. Löggjöf um lágmarkslaun er til erlendis, t.d. í Ameríku og Frakklandi. Þess má geta að nokkur umræða um lágmarkslaun var í Bandaríkjunum í aðdraganda forsetakosninganna árið 1996. Eitt af höfuðstefnuatriðum ríkisstjórnar Tonys Blairs er að setja lög um lágmarkslaun og að skilgreina þarfir einstaklinga og fjölskyldna til framfærslu. Sett voru lög um lágmarkslaun í Bretlandi 1999 og héldu andstæðingar laganna því fram á sínum tíma að þau mundu kynda undir verðbólgu og atvinnuleysi. Sú hefur ekki orðið raunin heldur þvert á móti. Haft er eftir Stephen Byers að lágmarkslaunin hafi tryggt að það borgaði sig að vinna. Lágmarkslaun fyrir unna klukkustund í Bretlandi urðu sem svaraði 610 kr. frá og með 1. október 2001, miðað við þáverandi gengi.
    Hægt er að sýna fram á að séu lágmarkslaun ákveðin of há geti það leitt til þess að það dragi úr vinnu í viðkomandi hagkerfi. Þetta eru helstu rök gegn lögbindingu lágmarkslauna. Að mati flutningsmanna eiga þau ekki við núverandi aðstæður hérlendis. Þau lágmarkslaun sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi eru ekki há og atvinnulífið á auðveldlega að geta ráðið við þau með aukinni framleiðni. Atvinnuástand hér á landi er einnig að mörgu leyti mun betra en í nágrannalöndunum. Það að skapa umhverfi fyrir sérhæfð störf, hálaunastörf, er vitaskuld háð mörgum þáttum, m.a. menntakerfi og því sem varið er í rannsóknir og þróunar starf innan og utan fyrirtækja. Á þessu sviði er stefna ríkisstjórnarinnar mjög á reiki. Ekki hefur verið unnið nóg hérlendis í menntamálum og rannsóknum undanfarna áratugi.
    Íslendingar verða að gera upp við sig hvort hér eigi að verða láglaunasvæði eins og allt stefnir í og landsmenn verði að vinna langan vinnudag til að halda uppi sambærilegum lífskjörum og í nágrannalöndunum eða hvort þróa eigi hagkerfið í átt til sérhæfðra starfa sem eru betur launuð. Flutningsmenn efast ekki um að síðari leiðin sé gæfuríkari fyrir land og þjóð.

Lokaorð.
    Það er liðin tíð að hægt sé að ætlast til þess af Íslendingum að þeir vinni allt að 30% lengri vinnudag en kollegar þeirra erlendis til þess eins að ná sambærilegum launum. Það mun ekki auka framleiðni íslenskra fyrirtækja ef þau eiga í auknum mæli að byggjast á ódýru vinnuafli. Við verðum að snúa af þessari braut því að annars verður Ísland áfram láglaunaland.
    Frumvarp þetta er liður í þeirri stefnumörkun jafnaðarmanna að skapa hér mannsæmandi umhverfi fyrir launafólk og stuðla jafnframt að heilbrigðu og þróttmiklu efnahagslífi. Ef þessi leið verður ekki farin og taxtalaunin látin eiga sig eina ferðina enn í næstu kjarasamningum mun sífellt stærri hópur launamanna sitja eftir með lágmarkstaxta og ekki eiga sér viðreisnar von. Við megum ekki láta mál þróast á þann veg.

11
Jul

Ánægjulegt fyrir fiskvinnslufólk

Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi 60 kennslustunda grunnnámskeið Starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar fyrir fiskvinnslufólk til styttingar á námi í framhaldsskóla á móti allt að 5 einingum. Meta má námið á móti 5 einingum í vali, 5 einingum á kjörsviði og/eða til almennra greina eftir styrkleika viðkomandi einstaklings.

Markmið grunnnámskeiða fyrir fiskvinnslufólk er að auka þekkingu starfsmanna á vinnslu sjávarafla, efla sjálfstraust og styrkja faglega hæfni þess. 

Þetta eru mjög gleðileg tíðindi og mikið baráttumál fiskvinnslufólks þar með í höfn.  Formaður Matvælasviðs SGS hefur lengi barist fyrir þessari viðurkenningu.

Að sögn formanns Matvælasviðsins hefur Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar unnið vel að málinu og notið skilnings Menntamálaráðuneytisins.

09
Jul

Verkalýðsfélag Akraness sammála Vestfirðingum

Verkalýðsfélag Akraness tekur heilshugar undir ályktun Verkalýðsfélags Vestfirðinga sem er svohljóðandi:

“Vegna niðurskurðar á Þorskkvóta á komandi fiskveiðiári skorar stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga á ráðamenn þjóðarinnar að taka til endurskoðunar regluna um kvótaálag á útflutning á ísuðum óunnum fiski. Nú liggur fyrir að með boðuðum niðurskurði þorskafla mun landvinnsla á Vestfjörðum verða mjög illa úti miðað við óbreytt fyrirkomulag. Ráðamönnum þjóðarinnar ber skylda til að tryggja sem öflugasta landvinnslu sjávarafurða á Íslandi, en það verður ekki gert með því að hvetja útgerðir til að senda sjávarafla óunninn úr landi “

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image