• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fréttir

Fréttir

15
Jul

Samningur við sveitarfélögin samþykktur

Kosningu um kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga er nú lokið og var samningurinn samþykktur. Samningurinn var undirritaður 3. júlí síðastliðinn og fór kosning fram rafrænt 5.-15. júlí.

Samningurinn var samþykktur með rúmlega 84% greiddra atkvæða en nei sögðu rúm 10% og rúm 5% tóku ekki afstöðu. Hann var því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 17 félögum sem eiga aðild að samningnum en kjörsókn var 17,45%. Kjarasamningurinn gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 og gildir hann afturvirkt.

08
Jul

Samningurinn við ríkið samþykktur með 87 % atkvæða

Atkvæðagreiðslu vegna kjarasamninga á milli SGS og Ríkisins er lokið.

Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna stóð yfir dagana 1.-8. júlí.

Á kjörskrá voru 1.309 manns og var kjörsókn 22,84%. Já sögðu 87,96%, nei sögðu 7,69% og 4,35% tóku ekki afstöðu.

Samningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 18 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum.

Hér er hægt að sjá samninginn 

 

Eftirtalin félög  auk Verkalýðsfélags Akraness eiga aðild að samningnum: AFL Starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélagið Hlíf.

04
Jul

Nýr kjarasamningur við sveitafélögin undirritaður - Kosning er hafin

Í gær var undirritaður nýr kjarasamningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitafélaga. Þeir sem heyra undir þennan samning eru félagsmenn VLFA sem starfa hjá Akraneskaupsstað, Hvalfjarðasveit og Dvalar-og hjúkrunarheimilinu Höfða.

Kosning er hafin og stendur til 15. júlí   - Hér er hægt að komast á kosningarsíðuna -

Þessi kjarasamningur er með sambærilegum hætti og kjarasamningurinn á hinum almenna vinnumarkaði og gildir frá 1. apríl til 31. mars 2028.

Launahækkanir eru eftirfarandi:

1.4 2024 – 3,25% eða 23.750 kr.

1.4 2025 – 3,25% eða 23.750 kr.

1.4 2026 – 3,25% eða 23.750 kr.

1.4 2027 – 3,25% eða 23.750 kr.

Þessu til viðbótar mun svokallaður Félagsmannasjóður hækka um 0,7% og fer því úr 1,5% í 2,2%. En eins og flestir vita er félagsmannasjóður greiddur út í byrjun apríl ár hvert.

Einnig munu viðbótarlaun koma á starfsheiti í grunnskóla hjá skólaliðum og starfsmönnum í skóla með stuðning en þessi fjárhæð verður 8.500 kr. á mánuði.

Hægt að skoða kynningu á helstu atriðum hér  og glærukynningu  hér

04
Jul

Skaginn 3 X gjaldþrota - 128 starfsmenn missa lífsviðurværi sitt

Enn einn sorgardagurinn í atvinnumálum okkar skagamanna. Skaginn 3 X hefur óskað eftir að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta.

Var að koma af fundi rétt í þessu en þessi fundur var vægast sagt gríðarlega erfiður en á þessum fundi tilkynntu forsvarsmenn hátæknifyrirtækisins Skaginn 3 X 128 starfsmönnum að fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrotaskipta.

Þetta gjaldþrot þessa rótgróna fyrirtækis þýðir að 128 fjölskyldur missa lífsviðurværi sitt en um 100 af þessum 128 hafa búa hér á Akranesi og nágrenni en Skaginn 3 X er einn af stærstu vinnustöðum hér á Akranesi. Rétt er að geta þess einnig að fjöldi afleiddra starfa tapast einnig samhliða þessu gjaldþroti.

Til að setja fjölda þeirra sem missa atvinnuna við þetta gjaldþrot í eitthvað samhengi þá væri þetta eins og 2400 manns myndu missa atvinnuna í Reykjavík miðað við höfðatölu.

Rétt er að upplýsa að öllum starfsmönnum Skútunnar sem N1 á og rekur var sagt upp störfum fyrir nokkrum dögum og munu uppsagnir taka gildi frá næstu áramótum en formanni telst til að á þriðja tug starfsmanna séu undir í þeirri uppsögn.

Það er óhætt að segja að þessi tíðindi séu enn eitt þunga höggið sem við Akurnesingar höfum þurft að þola í atvinnumálum á liðnum árum og formanni er það til efs að nokkurt sveitarfélag hafi þurft að þola eins miklar hamfarir í atvinnumálum eins og við skagamenn að undanskildum vinum okkar í Grindavík.

Eins og flestir muna þá er búið að rústa öllum sjávarútvegi hér á Akranesi þökk sé fyrirkomulagi í fiskveiðistjórnarkerfinu. Það er t.d. rétt að rifja upp að árið 2004 voru 250 manns í vinnu hjá fiskvinnslufyrirtækinu Haraldi Böðvarssyni á Akranesi og það ár var landað um 170 þúsund tonnum og fyrirtækið greiddi á þriðja milljarð í laun. Í dag er allt farið!

Fyrir nokkrum dögum var möguleikum okkar á veiðum og vinnslu hvalaafurða á þessari vertíð slátrað með handónýttri og ólöglegri stjórnsýslu stjórnvalda og þrýstingi frá „öfgafólki“. Mitt mat er að núna sé komið nóg og nú verður eitthvað að gerast í atvinnumálum okkar Akurnesinga. Enda morgunljóst að ekkert sveitarfélag getur þrifist án þess að hafa sterkt og öflugt gjaldeyrisskapandi atvinnulíf en það er með slíkum störfum sem öll sveitafélög eflast og styrkjast.

Formaður skora á fyrirtæki að skoða möguleika á að hefja starfsemi hér á Akranesi og við eigum að spyrja öflug fyrirtæki sem vilja skoða þann möguleika að hefja starfsemi hér hvað getum við gert til að þið viljið koma með ykkar starfsemi hingað!

Það blasir við að þrátt fyrir að allir innviðir hér á Akranesi séu til algjörra fyrirmyndar þá hefur okkur alls ekki tekist að efla atvinnulífið hér á Akranesi. Nánast enginn sjávarútvegur er eftir, ekkert hótel sem leiðir til þess að við erum ekki með hvað ferðaþjónustu varðar. Við verðum að fara að opna augun fyrir þessum staðreyndum og krefjast þess að stjórnvöld, bæjarstjórn og við öll ráðumst í eflingu á gjaldeyrisskapandi atvinnutækifærum okkur Akurnesingum til hagsbóta.

Við höfum alla innviði eins og áður sagði frábæra grunnskóla, leikskóla, heilsugæslu og öflugt og gott íþróttastarf. Við höfum allt nema öflugt atvinnulíf og því verður að breyta og það strax og ég biðla til bæjarfulltrúa, stjórnvalda og okkur öll að vakna og opna augun fyrir þessum staðreyndum.

Ef ekkert verður að gert mun atvinnulíf hér á Akranesi blæða endanlega út og því mikilvægt að stöðva þessa slagæðablæðingu og hefja alvöru gjaldeyrisskapandi atvinnuuppbyggingu og það án tafar!

01
Jul

Nýr samningur fyrir rískisstarfsmenn

Kjarasamningur SGS og ríkisins 2024-2028

18 aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóð þann 25. júní. Þar á meðal  er Verkalýðsfélag Akraness.                                                                                                            Samningurinn gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram 1.-8. júlí.  (Linkur á kosningu er neðst í fréttinni.)

Hér eru helstu atriði nýja samningsins:

  • Með kjarasamningnum fylgir ný launatafla sem gildir afturvirkt frá 1. apríl 2024.
  • Hækkun grunnþreps í launatöflunni verður með eftirfarandi hætti á samningstímanum:
    1. apríl 2024: 26.900 kr. þó að lágmarki 3,25%
    1. apríl 2025: 23.750 kr. þó að lágmarki 3,5%
    1. apríl 2026: 23.750 kr. þó að lágmarki 3,5%
    1.apríl 2027: 23.750 kr. þó að lágmarki 3,5%
  • Laun í grunnþrepi hækka um 98.150 kr. á samningstímanum.
  • Persónuálagsstig haldast óbreytt.
  • Persónuuppbót (desemberuppbót) á árinu 2024 verður 106.000 kr. m.v. fullt starf. Í lok samningstímans verður full persónuuppbót 118.000 kr.
  • Orlofsuppbót á árinu 2024 verður 58.000 kr. m.v. fullt starf. Í lok samningstímans verður orlofsuppbót m.v. fullt starf 64.000 kr.

Kynningarefni er hægt að nálgast hér:  Íslenska        Enska       Pólska

Kosning er rafræn eins og áður segir og hér er hægt að kjósa:  Kjósið hér     VOTE HERE     Głosuj tutaj

Rafræn skilríki eru nauðsynleg til að kjósa.

26
Jun

Nýr kjarasamningur við ríkið undirritaður

Í gær undirritaði Starfsgreinasambands Ísland nýjan kjarasamning við ríkið sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Þessi samningur við ríkið er algerlega í anda þeirra launastefnu sem mörkuð var á hinum almenna vinnumarkaði og ber sama heildarkostnaðarmat á samningstímanum. En samningurinn er að skila 21,3% launahækkun á samningstímanum.

Launahækkanir eru með eftirfarandi hætti:

1.4 2024 3,25% eða 23.750 en þessu til viðbótar koma 0,7% ofná kauptaxtana sem þýðir að byrjandi hækkar um 26.900 kr.

1.4 2025 3,5% eða 23.750 kr.

1.4 2026 3,5% e‘a 23.750 kr.

1.4 2027 3,5% eða 23.750 kr.

Persónuuppbót og orlofsuppbót Persónuuppbót (desemberuppbót) á samningstímanum verður sem hér segir:

Á árinu 2024 106.000 kr.

Á árinu 2025 110.000 kr.

Á árinu 2026 114.000 kr.

Á árinu 2027 118.000 kr.

Orlofsuppbót á samningstímanum verður sem hér segir:

Á árinu 2024 58.000 kr.

Á árinu 2025 60.000 kr.

Á árinu 2026 62.000 kr.

Á árinu 2027 64.000 kr.

Hægt er að lesa samninginn hér

05
Jun

15 útskrifuðust úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla Norðuráls

Í gær útskrifuðust 15 starfsmenn Norðuráls úr framhaldsnámi Stóriðjuskóla Norðuráls. Frá upphafi eða frá árinu 2011 hafa 177 nemendur verið útskrifaðir úr Stóriðjuskólanum, þar af 99 úr grunnnámi og 78 úr framhaldsnámi.

Stóriðjuskólinn var á sínum tíma eitt af baráttumálum Verkalýðsfélags Akraness og það tókst í kjarasamningunum 2011 enda var það sameignilegur skilningur forsvarsmanna Norðuráls og stéttarfélaganna að það væri ávinningur beggja aðila að setja á laggirnar slíkt stóriðjunám. Starfsmenn hafa ekki einungis gagn af náminu sem slíku heldur veitir námið starfsmönnum hærri laun. Þeir starfsmenn sem ljúka grunnnáminu fá 5% launahækkun og ljúki þeir síðan framhaldsnámi koma önnur 5% til hækkunar svo í heildina er hægt að fá launahækkun upp á 10%.

Það hefur verið mikil ásókn í stóriðjuskólann og oft hafa færri komist að en vilja. Það varð smá stopp á náminu þegar Covid faraldurinn gekk yfir en vonandi er skólinn að fara aftur á fulla ferð svo hægt verði að taka inn fleiri nemendur á komandi árum því ávinningur beggja er eins og áður sagði ótvíræður.

05
Jun

Nýtt gestahús við Ásenda 9 og endurbætur á Ásenda 10

Það er stefna stjórnar VLFA að vera með góða orlofskosti handa félagsmönnum og það kallar á að halda þarf orlofshúsum félagsins vel við. Nú var verið að setja upp nýtt gestahús við Ásenda 9 en um er að ræða rúmgott hús með salerni, sturtu og svefnaðstöðu fyrir fjóra. Þetta er afar jákvæð viðbót við bústaðinn. Gamla gestahúsið var úr sér gengið og því bráðnauðsynlegt að ráðast í þessa endurnýjun sem hefur heppnast gríðarlega vel.

Einnig var orðin mikil þörf á að taka bústaðinn að Ásenda 10 í gegn að utan en klæðningin var farin að láta verulega á sjá. Þar hefur klæðningin nú að stórum hluta verið endurnýjuð og einnig þakkanturinn. Gluggar voru pússaðir niður sem og hurðar og má segja að bústaðurinn sé eins og nýr að utan eftir þessar viðamiklu endurbætur. Það er eins og áður sagði mikið lagt upp úr því hjá félaginu að hafa bústaðina eins góða og kostur er og það er mikilvægt að brýna fyrir félagsmönnum að ganga vel um bústaðina og muna að þetta eru jú eigur okkar allra.

Fleiri myndir af endurbótum í Ásenda 10 og af flutningi gestahússins í Ásenda 9 má sjá hér.

03
Jun

Formannafundur SGS haldinn í Bolungarvík

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands var að þessu sinni haldinn á Vestfjörðum eða nánar tiltekið í Bolungarvík og heppnaðist hann mjög vel. Meðal annars var farið í vinnustaðaheimsóknir í mjólkurvinnsluna Örnu og fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish ehf. Það var afar fróðlegt fyrir formenn vítt og breitt um landið að sjá þá víðtæku starfsemi sem þar er en nú byggist atvinnulífið í Bolungarvík upp á þremur meginstoðum; fiskeldinu, mjólkurvinnslunni Örnu og almennum sjávarútvegi. Lengi vel bjuggu Bolvíkingar einungis við eina meginstoð sem var sjávarútvegur en nú hafa færst fleiri egg í þeirra körfu.

Á fundinum var einnig farið yfir stöðuna á vinnumarkaðnum en Róbert Farestveit hagfræðingur hjá ASÍ hélt erindi um hinar ýmsu hagfræðistærðir í islensku samfélagi um þessar mundir. Eðli málsins samkvæmt var rætt um þá kjarasamninga sem á eftir að ganga frá sem eru við Samband íslenskra sveitarfélaga og við ríkið. Fundurinn stóð yfir á fimmtudag og föstudag og heppnaðist eins og áður sagði mjög vel.

03
Jun

Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í gær, 2. júní, og óskar Verkalýðsfélag Akraness öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn.

Dagurinn byrjaði á minningarstund í kirkjugarðinum á Akranesi þar sem þeirra sjómanna sem ekki hafa fundist var minnst. Að þeirri stund lokinni var haldin guðsþjónusta í Akraneskirkju. Sú athöfn var mjög falleg og var íslenskum sjómönnum þakkað fyrir þeirra mikilvægu störf.

Í messunni voru tveir fyrrverandi sjómenn heiðraðir eftir langt og gott ævistarf en það voru þeir Eiríkur Dalmann Óskarsson og Páll Guðjón Hannesson. Það er mikilvægt fyrir samfélagið að nýta þennan dag til að sýna sjómönnum þakklæti og virðingu fyrir þeirra störf sem oft eru iðkuð við hættulegar og erfiðar aðstæður.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image