• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fréttir

Fréttir

28
Oct

VLFA styður að gerð verði ný neysluviðmið

Nú liggur fyrir þingsályktunartillaga frá Elsu Láru Arnardóttur um útreikning á nýjum neysluviðmiðum fyrir íslensk heimili. Verkalýðsfélag Akraness hefur nú skilað umsögn vegna þessarar tillögu og er skemmst frá því að segja að Verkalýðsfélag Akraness fagnar innilega þessari tillögu enda byggir hún á því að finna út með afgerandi hætti hver raunveruleg neysluviðmið íslenskra heimila eiga að vera.  

Það skiptir miklu máli fyrir verkalýðshreyfinguna að fá nákvæma tölu um hvað einstaklingur þarf í lágmarksframfærslu á mánuði því það hlýtur að vera stefna aðila vinnumarkaðarins að lágmarkskjör á Íslandi dugi að lágmarki fyrir framfærslukostnaði hvers mánaðar fyrir sig. Enda fékk Verkalýðsfélag Akraness samþykkta á nýafstöðnu þingi ASÍ tillögu er laut að því að hækka þurfi lágmarkslaun á Íslandi þannig að þau dugi fyrir lágmarksframfærslu. Hinsvegar er það morgunljóst að lágmarkslaun í dag duga engan veginn fyrir lágmarksframfærslu sem hið opinbera hefur gefið út.

Hægt er að lesa umsögn félagsins hér.

27
Oct

Þingi ASÍ lokið

Þriggja daga þingi Alþýðusambands Íslands lauk á föstudaginn og er óhætt að segja að fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness hafi eins og svo oft áður tekið virkan þátt í þeirri vinnu sem fram fór þar.

Meðal annars flutti formaður félagsins ræðu á miðvikudeginum og féll hún í góðan jarðveg á meðal fulltrúa þingsins. Einnig lagði félagið fram nokkrar breytingartillögur á þeim ályktunum sem lagðar voru fyrir þingið. Sumar breytingarnartillögurnar náðust í gegn og aðrar ekki en það er eins og gengur og gerist. Félagið náði til dæmis í gegn breytingu sem tengist lágmarkslaunum. Í ályktuninni sem VLFA lagði fram kemur fram að hækka þurfi lágmarkslaun þannig að þau dugi fyrir lágmarksframfærslu. Hinsvegar var tillaga um afnám verðtryggingar á neytenda- og húsnæðislánum og að sett yrði þak á slík lán felld. Það verður að segjast alveg eins og er að fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness voru afar undrandi á því að þessi tillaga hafi verið felld. Hvernig er hægt að vera á móti því að afnema verðtryggingu og setja þak á vexti?

Formaður félagsins sagðist hræðast það að forysta Alþýðusambands Íslands hafi í hyggju að fara aftur leið samræmdrar launastefnu, launastefnu sem svo sannarlega hefur sýnt að hefur komið sér illa fyrir verkafólk og iðnaðarmenn. Það liggur fyrir að þessir hópar hafa setið eftir, ekki bara í síðustu samningum heldur um alllanga hríð.

Formaður gagnrýndi einnig að honum fyndist vanta meiri kraft í ályktanir er tengjast kjaramálum en kraftinn vantar hinsvegar ekki í ályktanir er tengjast gagnrýni á stjórnvöld og er það vel. Enda er það hlutverk hreyfingarinnar að veita stjórnvöldum á hverjum tíma fyrir sig aðhald. Hinsvegar er það orðið hálf hjákátlegt að sami kraftur skuli ekki beinast að okkar aðal viðsemjanda sem er að sjálfsögðu Samtök atvinnulífsins.   

27
Oct

Þingi ASÍ lokið

Þriggja daga þingi Alþýðusambands Íslands lauk á föstudaginn og er óhætt að segja að fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness hafi eins og svo oft áður tekið virkan þátt í þeirri vinnu sem fram fór þar.

Meðal annars flutti formaður félagsins ræðu á miðvikudeginum og féll hún í góðan jarðveg á meðal fulltrúa þingsins. Einnig lagði félagið fram nokkrar breytingartillögur á þeim ályktunum sem lagðar voru fyrir þingið. Sumar breytingarnartillögurnar náðust í gegn og aðrar ekki en það er eins og gengur og gerist. Félagið náði til dæmis í gegn breytingu sem tengist lágmarkslaunum. Í ályktuninni sem VLFA lagði fram kemur fram að hækka þurfi lágmarkslaun þannig að þau dugi fyrir lágmarksframfærslu. Hinsvegar var tillaga um afnám verðtryggingar á neytenda- og húsnæðislánum og að sett yrði þak á slík lán felld. Það verður að segjast alveg eins og er að fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness voru afar undrandi á því að þessi tillaga hafi verið felld. Hvernig er hægt að vera á móti því að afnema verðtryggingu og setja þak á vexti?

Formaður félagsins sagðist hræðast það að forysta Alþýðusambands Íslands hafi í hyggju að fara aftur leið samræmdrar launastefnu, launastefnu sem svo sannarlega hefur sýnt að hefur komið sér illa fyrir verkafólk og iðnaðarmenn. Það liggur fyrir að þessir hópar hafa setið eftir, ekki bara í síðustu samningum heldur um alllanga hríð.

Formaður gagnrýndi einnig að honum fyndist vanta meiri kraft í ályktanir er tengjast kjaramálum en kraftinn vantar hinsvegar ekki í ályktanir er tengjast gagnrýni á stjórnvöld og er það vel. Enda er það hlutverk hreyfingarinnar að veita stjórnvöldum á hverjum tíma fyrir sig aðhald. Hinsvegar er það orðið hálf hjákátlegt að sami kraftur skuli ekki beinast að okkar aðal viðsemjanda sem er að sjálfsögðu Samtök atvinnulífsins.   

23
Oct

Þing ASÍ

Í gær hófst 41. þing Alþýðusambands Íslands og lýkur því á morgun. Þing ASÍ er haldið á tveggja ára fresti og á hvert aðildarfélag rétt á því að senda a.m.k. einn fulltrúa á þing sambandsins og fer fjöldi fulltrúa eftir stærð hvers félagsins. Alls eru þingfulltrúarnir 300. Verkalýðsfélag Akraness á 8 þingfulltrúa í ár, en það eru þau Vilhjálmur Birgisson, Hafsteinn Þórisson, Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir, Guðrún Linda Helgadóttir, Jóna Adolfsdóttir, Hafþór Pálsson, Kristófer Jónsson og Sigurður Guðjónsson.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, flutti ræðu á þinginu í gær þar sem hann gagnrýndi harðlega þá vegferð sem ASÍ hefur verið á hvað kjaramál varðar og þá samræmdu láglaunastefnu sem farið hefur verið eftir í tveimur síðustu samningum verkafólks og iðnaðarmanna. Í ræðu sinni fór hann meðal annars yfir það hvernig Samtök atvinnulífsins og forysta ASÍ reyna að telja almenningi í trú um að ætið sé samið um langmestu launahækkanir til handa þeim tekjulægstu og sagði "rétt að ítreka það að prósentur segja ekki nema hálfan sannleikann þegar fjallað er um launahækkanir hópa og prósentur eru algerlega til þess fallnar að blekkja íslenskt verkafólk. Það sem skiptir launafólk mestu máli er hversu margar krónur það fær í sitt launaumslag, ekki prósentur. Það liggur fyrir að ef 1 króna er sett ofan á aðra krónu þá er það hækkun upp á 100%. Já kæru félagar, prósentur blekkja og það er grátbroslegt þegar forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og reyndar fleiri standa og öskra hátt og skýrt: lágmarkslaun hafa hækkað mest og reka svo út kassann og segja: okkur hefur tekist að verja kaupmátt lægstu launa.

"Vilhjálmur fór einnig yfir þróun lágmarkslauna frá árinu 1998 og bar saman við launaþróun forstjóra nokkurra stórfyrirtækja: "Í fyrsta lagi voru lágmarkslaun á Íslandi árið 1998 70.000 kr. Núna 16 árum seinna eru þau komin upp í 214 þúsund á mánuði sem gerir hækkun uppá 206%. Á bakvið þessi 206% er krónutöluhækkun sem nemur einungis 144.000 krónum á 16 árum sem þýðir að lágmarkslaun hafi hækkað að meðaltali um 9.000 kr. á ári þessi 16 ár. En takið eftir, næstráðendur íslenskra fyrirtækja hækkuðu um 600.000 kr. á mánuði bara á árinu 2013. Málið er líka að við förum ekki í Bónus eða aðrar verslanir og greiðum með prósentum, við borgum með krónum.

En hvað skyldu laun forstjóra nokkurra stórfyrirtækja hafa hækkað frá 1998? Skoðum það aðeins. Árið 1998 var forstjóri ESSO sem núna er N1 með árstekjur uppá 18,7 milljónir. Í dag er forstjóri N1 með 52 milljónir. Hefur hækkað um rúmar 33 milljónir á ári eða sem nemur tæpum 3 milljónum á mánuði. Hækkun upp á 176,5%. Forstjóri Flugleiða var með 13,9 milljónir í árslaun árið 1998. Núverandi forstjóri Icelandair Group er hinsvegar með laun sem nema rúmum 44 milljónum á ári sem er hækkun um rétt rúmar 30 milljónir á ári eða sem nemur rúmri 2 og hálfri milljón á mánuði. En takið eftir þetta er prósentuhækkun upp á 218%. Forstjóri Eimskips var með 27,6 milljónir í árslaun árið 1998 en núverandi forstjóri Eimskips er sagður vera með 90,5 milljónir sem gerir hækkun um 63 milljónir á ári eða 5,2 milljónir á mánuði. Þetta er hækkun upp á 228%. Já þessir snillingar eru svo sannarlega búnir að hugsa um sig. Hafa hækkað um milljónir á mánuði og meira að segja með hærri prósentuhækkun en hækkun lágmarkslauna á sama tímabili.

"Ræða Vilhjálms hlaut afar góðar undirtektir hjá þingfulltrúum og er hægt að lesa hana í heild sinni með því að smella hér.

23
Oct

Þing ASÍ

Í gær hófst 41. þing Alþýðusambands Íslands og lýkur því á morgun. Þing ASÍ er haldið á tveggja ára fresti og á hvert aðildarfélag rétt á því að senda a.m.k. einn fulltrúa á þing sambandsins og fer fjöldi fulltrúa eftir stærð hvers félagsins. Alls eru þingfulltrúarnir 300. Verkalýðsfélag Akraness á 8 þingfulltrúa í ár, en það eru þau Vilhjálmur Birgisson, Hafsteinn Þórisson, Skúlína Hlíf Guðmundsdóttir, Guðrún Linda Helgadóttir, Jóna Adolfsdóttir, Hafþór Pálsson, Kristófer Jónsson og Sigurður Guðjónsson.Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, flutti ræðu á þinginu í gær þar sem hann gagnrýndi harðlega þá vegferð sem ASÍ hefur verið á hvað kjaramál varðar og þá samræmdu láglaunastefnu sem farið hefur verið eftir í tveimur síðustu samningum verkafólks og iðnaðarmanna. Í ræðu sinni fór hann meðal annars yfir það hvernig Samtök atvinnulífsins og forysta ASÍ reyna að telja almenningi í trú um að ætið sé samið um langmestu launahækkanir til handa þeim tekjulægstu og sagði "rétt að ítreka það að prósentur segja ekki nema hálfan sannleikann þegar fjallað er um launahækkanir hópa og prósentur eru algerlega til þess fallnar að blekkja íslenskt verkafólk. Það sem skiptir launafólk mestu máli er hversu margar krónur það fær í sitt launaumslag, ekki prósentur. Það liggur fyrir að ef 1 króna er sett ofan á aðra krónu þá er það hækkun upp á 100%. Já kæru félagar, prósentur blekkja og það er grátbroslegt þegar forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og reyndar fleiri standa og öskra hátt og skýrt: lágmarkslaun hafa hækkað mest og reka svo út kassann og segja: okkur hefur tekist að verja kaupmátt lægstu launa."Vilhjálmur fór einnig yfir þróun lágmarkslauna frá árinu 1998 og bar saman við launaþróun forstjóra nokkurra stórfyrirtækja: "Í fyrsta lagi voru lágmarkslaun á Íslandi árið 1998 70.000 kr. Núna 16 árum seinna eru þau komin upp í 214 þúsund á mánuði sem gerir hækkun uppá 206%. Á bakvið þessi 206% er krónutöluhækkun sem nemur einungis 144.000 krónum á 16 árum sem þýðir að lágmarkslaun hafi hækkað að meðaltali um 9.000 kr. á ári þessi 16 ár. En takið eftir, næstráðendur íslenskra fyrirtækja hækkuðu um 600.000 kr. á mánuði bara á árinu 2013. Málið er líka að við förum ekki í Bónus eða aðrar verslanir og greiðum með prósentum, við borgum með krónum. En hvað skyldu laun forstjóra nokkurra stórfyrirtækja hafa hækkað frá 1998? Skoðum það aðeins. Árið 1998 var forstjóri ESSO sem núna er N1 með árstekjur uppá 18,7 milljónir. Í dag er forstjóri N1 með 52 milljónir. Hefur hækkað um rúmar 33 milljónir á ári eða sem nemur tæpum 3 milljónum á mánuði. Hækkun upp á 176,5%. Forstjóri Flugleiða var með 13,9 milljónir í árslaun árið 1998. Núverandi forstjóri Icelandair Group er hinsvegar með laun sem nema rúmum 44 milljónum á ári sem er hækkun um rétt rúmar 30 milljónir á ári eða sem nemur rúmri 2 og hálfri milljón á mánuði. En takið eftir þetta er prósentuhækkun upp á 218%. Forstjóri Eimskips var með 27,6 milljónir í árslaun árið 1998 en núverandi forstjóri Eimskips er sagður vera með 90,5 milljónir sem gerir hækkun um 63 milljónir á ári eða 5,2 milljónir á mánuði. Þetta er hækkun upp á 228%. Já þessir snillingar eru svo sannarlega búnir að hugsa um sig. Hafa hækkað um milljónir á mánuði og meira að segja með hærri prósentuhækkun en hækkun lágmarkslauna á sama tímabili."Ræða Vilhjálms hlaut afar góðar undirtektir hjá þingfulltrúum og er hægt að lesa hana í heild sinni með því að smella hér.

22
Oct

Afmælisblað VLFA

Hér fyrir neðan er hægt að lesa vefútgáfu afmælisblaðs VLFA, smellið á blaðið til að stækka það.

17
Oct

Meirihluti starfsmanna Norðuráls vill taka upp nýtt vaktakerfi

Á fjölmennum fundi sem haldinn var í Bíóhöllinni á Akranesi ekki alls fyrir löngu með starfsmönnum Norðuráls var samþykkt að fara í allsherjar atkvæðagreiðslu meðal fastráðinna starfsmanna á vöktum. Atkvæðagreiðslan snerist um það hvort að í komandi kjarasamningum ætti að leggja áherslu á að taka upp nýtt 8 tíma vaktakerfi með sambærilegum hætti og er hjá Elkem Ísland og hverfa frá 12 tíma vöktum. Í þessari kosningu var líka kveðið á um að lögð yrði áhersla á að ná fram sambærilegum útborguðum launum og 12 tíma vaktakerfið gefur.

Á kjörskrá voru 245 fastráðnir starfsmenn.

203 nýttu kosningarétt sinn sem gerir 82,8% kjörsókn.

Já sögðu 132 sem gera 65%.

Nei sögðu 70 sem gera 34,5%

Eitt atkvæði var ógilt eða 0,5%

Það liggur fyrir að kosningin er nokkuð afdráttarlaus. Í kjölfarið munu trúnaðarmenn og samninganefndin móta komandi kröfugerð og það er ljóst að framundan eru gríðarlega erfiðir kjarasamningar. En með samstöðu starfsmanna ætti að vera hægt að ná góðri niðurstöðu starfsmönnum til heilla.

15
Oct

90 ára afmæli VLFA

Hátt í 100 manns lögðu leið sína á skrifstofu félagsins í gær í tilefni af 90 ára afmæli félagsins, en með opnu húsi á skrifstofunni lauk formlegum hátíðarhöldum vegna afmælisins. Boðið var upp á kaffi og léttar veitingar, hægt var að ganga um húsið og skoða aðstöðuna og var setið hringinn í kringum öll skrifborð hússins.

Á þessum tímamótum bárust félaginu margar góðar kveðjur og vill stjórn og starfsfólk félagsins þakka innilega fyrir auðsýndan stuðning og hlýhug.

Myndir eru komnar hingað á heimasíðuna og má finna hér.

14
Oct

Verkalýðsfélag Akraness er 90 ára í dag

Í dag, 14. október, fagnar Verkalýðsfélag Akraness 90 ára afmæli sínu. Undanfarna daga hefur ýmislegt verið gert til að halda upp á þessi tímamót. Afmælisblað félagsins hefur verið borið út í öll hús á Akranesi en þar má finna gamla og dýrmæta sögumola jafnt sem nýjar fréttir af starfi félagsins.

Síðastliðinn laugardag stóð félagið fyrir tvennum tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi. Þeir fyrri voru ætlaðir yngri kynslóðinni en þar sá hljómsveitin Pollapönk um að halda uppi fjörinu. Tónleikarnir voru opnir öllum og var mikil aðsókn að þeim. Þegar tónleikunum var lokið fengu börnin ís með sér heim.

Seinni tónleikarnir hófust kl. 20:30 en þar fóru Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á kostum. Þessir tónleikar voru aðeins fyrir félagsmenn og var vel mætt og stemningin gríðarlega góð.

Í dag lýkur svo formlegum hátíðarhöldum með opnu húsi á skrifstofu félagsins á milli kl. 14 og 16 í tilefni dagsins. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru allir hjartanlega velkomnir í heimsókn til að fagna því hversu vel félagið ber aldurinn.

Verkalýðsfélag Akraness óskar öllum félagsmönnum sínum nær og fjær til hamingju með daginn.

09
Oct

Kosning um nýtt vaktakerfi hjá Norðuráli hafin

Nú er hafin kosning á meðal vaktavinnumanna Norðuráls á Grundartanga. Kosið er um hvort starfsmenn vilji berjast fyrir nýju vaktakerfi sem byggist á 8 tíma vöktum í stað 12 tíma vakta sem nú eru. Það vaktakerfi sem kosið er um er með sambærilegum hætti og er hjá Elkem Ísland á Grundartanga.

Verkalýðsfélag Akraness sendi út upplýsingagögn til starfsmanna en fyrir mannleg mistök eru útreikningar á mismun á vinnutíma milli vaktakerfanna ekki réttir. Í útreikningunum kemur fram að starfsmenn Elkem Ísland séu að vinna tæplega 3 mánuðum skemur á ári heldur en starfsmenn Norðuráls. Hið rétta er að mismunurinn er tæplega 2 og hálfur mánuður á ári.

Starfsmenn Elkem vinna á fyrstu 3 árum í starfi 1.747 tíma á ári sem gerir að meðaltali 145,6 tíma á mánuði. Síðan eiga þeir samtals 24 vaktir í sumar- og vetrarorlof sem gerir 192 tíma þannig að staðinn vinnutími hjá Elkem er 1.555 tímar á ári. Eftir 3 ár hækkar orlofið hjá starfsmönnum Elkem upp í 27 vaktir og þá vinna þeir í heildina 1.531 tíma á ári.

Hjá Norðuráli standa menn rúmar 16 tólf tíma vaktir á mánuði sem gerir 2.184 klukkustundir á ári og eiga síðan 24 vaktir í sumar- og vetrarorlof fyrstu 5 árin sem gera 288 klukkustundir þannig að samtals er staðinn tími hjá starfsmönnum Norðuráls 1.896 tímar.

Mismunurinn á milli Elkem og Norðuráls fyrstu 3 árin er 341 tími á ári eða að meðaltali 28,5 tímar sem starfsmenn Norðuráls vinna meira á mánuði. Frá 3 ára starfstíma og upp í 5 ára starfstíma er mismunurinn hinsvegar 365 tímar á ári eða að meðaltali 30,4 tímar á mánuði. Eftir 5 ára starf og upp í 10 ára starf er mismunurinn aftur 341 tími á mánuði. Eftir 10 ára starf er mismunurinn 326 tímar.

Félagið harmar þessi mistök  og biður afsökunar á þeim en slíkt getur alltaf komið fyrir. Hinsvegar er alveg morgunljóst að þetta skiptir ekki höfuðmáli því stytting á vinnutíma er gríðarleg á milli þessara tveggja vaktakerfa samt sem áður. Nemur hún eins og áður sagði frá 28,4 tímum upp í 30 tíma á mánuði eða uppundir 2,5 mánuðum á ársgrundvelli.

Það er ekki bara að styttingin sé til staðar heldur er ljóst að kerfið er mun fjölskylduvænna enda er vinnuálag starfsmanna á þessum 12 tíma vöktum orðið gríðarlegt. Því eru háværar raddir um að taka upp 8 tíma vaktakerfi. Eins og félagið hefur áður sagt þá er þetta í höndum starfsmanna að ákveða hvað menn vilja gera því þetta er jú þeirra lífsviðurværi en það er ljóst að ákvörðunin um hvort leggja eigi áherslu á að berjast fyrir breytingu á vaktakerfi samhliða kröfu um sambærileg útborguð laun mun skýrast að aflokinni kosningu.

Formaður skorar á starfsmenn að hafa endilega samband við sig í síma 865-1294 eða á skrifstofu félagsins ef einhverjar spurningar vakna varðandi kosninguna.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image