• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fréttir

Fréttir

22
Nov

Dagmenn í Norðuráli heimsóttir í dag

Formaður félagsins fór í vinnustaðaheimsókn í dag til Norðuráls.  Tilefni heimsóknarinnar var að heyra hljóðið í dagmönnum, og kynna hvað hefur farið fram í samningaviðræðunum við forsvarsmenn Norðuráls hingað til.  Eins og komið hefur fram hér á síðunni hefur formaðurinn heyrt í starfsmönnum allra vakta, og veit því hver vilji þeirra er í komandi samningum.  Þessi heimsókn  í dag  var afar jákvæð.  Gott er fyrir formann félagsins að vita hvaða væntingar starfsmenn  í dagvinnu hafa  til nýs kjarasamnings. 

Það er alveg grundvallarregla hjá Verkalýðsfélagi Akraness að vera í nánu sambandi við sína félagsmenn.  Er þessi vinnustaðaheimsókn einn liður í þeirri vinnu.  Formaður félagsins veit ekki hvernig hann getur unnið fyrir sína félagsmenn ef hann heyrir ekki reglulega í starfsmönnum, bæði til að upplýsa þá um gang viðræðna og eins til að fá þeirra álit.  Þetta eru jú þeirra launakjör.  Næsti samningafundur verður fimmtudaginn 25. nóvember kl. 09:00.

22
Nov

Breyting á vinnufyrirkomulagi í ræstingu og býtibúri á Sjúkrahúsi Akraness

Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi hefur sagt upp  núverandi vinnufyrirkomulagi með þriggja mánaða fyrirvara við starfsfólk í ræstingu og býtibúri.  Breytingin mun taka gildi 1. janúar 2005.   Í bréfi til starfsmanna kemur fram að að tímabilið til áramóta verði notað til þess að undirbúa og kynna fyrirhugaðar breytingar og leita samráðs við viðkomandi starfsfólk.  Töluverðrar gremju gætir meðal starfsmanna með þessar breytingar. 

Verkalýðsfélag Akraness skilur gremju þeirra mjög vel.  Breytingar á vinnufyrirkomulagi koma á slæmum tíma, það er jú nýbúið að gera kjarasamning við starfsmenn SHA.  Allar breytingar af þessu tagi valda starfsmönnum óþægindum, og einverjir starfsmenn verða fyrir skerðingu á launum í kjölfar þessarra breytinga.  Forsvarsmenn SHA hafa leyft Verkalýðsfélaginu að fylgjast vel með í þessu máli og er það mjög gott.  Forsvarsmenn SHA hafa líka tjáð félaginu að reynt verði eftir fremsta megni að koma til móts við starfsmenn og að skerðing á launakjörum starfsmanna verði sem minnst.

20
Nov

Stíf fundahöld framundan vegna kjarasamnings Íslenska járnblendifélagsins

Fundað verður stíft í næstu viku vegna kjarasamnings Íslenska járnblendifélagsins.  Kjarasamningurinn rennur út 1. desember n.k.  Ákveðið hefur verið að hittast  miðvikudaginn 24. kl. 13.00 og verður til umfjöllunar á þeim fundi krafa stéttarfélaganna um  stóriðjuskóla.  Krafan er að skólinn verði með sambærilegu sniði og er hjá Ísal bæði hvað varðar námsefni sem og launahækkanir að námi loknu.

Aftur verður fundað fimmtudaginn 25.  Til umræðu á þeim fundi verða bónusmálin.  Er það afar stórt og mikið mál sem þarfnast mikillar skoðunar. Forsvarsmenn Íj hafa vissar hugmyndir um nýtt bónuskerfi, og munu jafnvel leggja fram einhverjar tillögur í þeim efnum.  Forsvarsmenn Íj lögðu fram hugmyndir að breyttu bónuskerfi fyrir nokkrum vikum sem starfsmönnum leist alls ekki vel á.  Formaður VLFA og trúnaðarmenn Íj hafa verið að skoða þessi mál og erum við með vissar hugmyndir varðandi nýtt bónuskerfi.

Ákveðið hefur verið að hittast mánudaginn 29. og fara yfir sérkröfur ofngæslumanna og dagmanna á þeim fundi.

Þriðjudaginn 30. verður fundur hjá ríkissáttasemjara þar sem gildissvið kjarasamningsins verður til um ræðu og munu forsvarsmenn Íj leggja fram tillögu til lausnar á því máli á þeim fundi.

19
Nov

Kynningafundur um stóriðjuskólann hjá Ísal verður haldinn 29. nóvember

Kolbeinn Gunnarsson frá verkalýðsfélagi Hlífar í Hafnarfirði mun koma og kynna hvernig stóriðjuskólinn í Ísal virkar, og eins hversu mikla launahækkun hann er að gefa starfsmönnum að loknu námi.  Með því að smella á meira þá er hægt að lesa helstu punkta um skólann.

Það mun hafa verið árið l993  sem trúnaðarmenn Hlífar fóru að huga að menntamálum starfsmanna, og í samningum l995, var námið ein af kröfum Hlífar.

Það náðist svo í samningunum sem voru undirritaðir voru 10. apríl l997 og hófst síðan námið haustið l998.

Þessir samningar höfðust ekki baráttulaust en nú er svo málum komið að allir vildu Lilju kveðið hafa. Ríkir mikil ánægja jafnt hjá starfsmönnum og atvinnurekendum með þessi mál, og allir sammála um að hér hafi verið stigið heillaspor bæði fyrir starfsmenn og atvinnurekendur.

Námstilhögun.

Það sem starfsmenn læra í skólanum eru  Mannleg samskipti, tjáning, fyrirtæki og þjóðlíf, stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði, framleiðsluferli í stóriðju, tölvur og stýringar, eldföst efni, vélfræði með fyrirbyggjandi viðhaldi, vistfræði og umhverfismál, vinnuumhverfi, og gæðastjórnun. Samtals er námslengdin 325 kennslustundir og skal náminu vera lokið innan tveggja ára frá því það var hafið.

Réttur til námsins.

Sá starfsmaður sem hefur verið í starfi við eitt framleiðsluferli í 45 mánuði á rétt að fara í námið.  Og er miðað við að starfsmaðurinn nái að ljúka þessum starfstíma við lok námsins. Starfsmenn sem fara í námið eru í náminu undanþegnir vinnuskyldu og halda óskertum launum.

  

Að loknu námi.

Þeir sem hafa lokið 325 stundum í starfsnámi, fá launahækkun sem nemur 10,5%. Kennslan hefur farið þannig fram að kennt er frá kl 12:00 -  16.00, hluti námsins er í vinnutíma, og einnig mæta starfsmenn í sínum vinnutíma, en ef næturvakt er á undan skólatíma fá starfsmenn  frí þá vakt.

Að loknu námi fá starfsmenn starfsheitið “Stóriðjugreinir”. Og atvinnurekendur fá betri starfsmenn og starfsmenn eru ánægðari og öruggari með sig í starfi. Það hefur reynslan sýnt.

19
Nov

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness er 1 árs í dag 19. nóvember

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness er eins árs í dag 19. nóvember. Það verður að segjast alveg eins og er að félagið hefur tekið algjörum stakaskiptum á þessu eina ári.  Stjórn félagsins hefur staðið í ströngu á þessu eina ári. 

Á þessu tæpa ári sem núverandi stjórn Verkalýðsfélags Akraness hefur starfað höfum við lent í erfiðum málum gagnvart atvinnurekendum. Í þessum málum vorum við sannfærð um að verið væri að brjóta á réttindum félagsmanna. Tekist var hraustlega á og að lokum náðist samkomulag í öllum þessum málum. Þessi réttindabarátta hefur skilað rúmum 13 milljónum króna í vasa félagsmanna okkar. Meginverkefni stéttarfélaga er að standa vörð um áunnin réttindi félagsmanna og bæta þau eins og kostur er. Það er og verður stefna stjórnar Verkalýðsfélags Akraness að standa einarðlega vörð um öll áunnin réttindi félagsmanna og verður hvergi hvikað í þeirri baráttu.

Þegar stjórn félagsins tók við Verkalýðsfélagi Akranes átti félagið útistandandi skuldir hjá atvinnurekendum vegna ógreiddra iðgjalda rúmar 21 milljón króna, hefur stjórn félagsins tekist að innheimta 13 milljónir af þessum ógreiddum iðgjöldum.  Voru innheimtumál og iðgjaldaskráning í verulegum ólestri, þeim hlutum hefur verið kippt í lag. 

Hvað varðar almenna þjónustu við hin almenna félagsmann þá hefur hún stóraukist. Markmið okkar sem nú stjórnum félaginu er skýrt. Markmiðið er að vera það félag á Íslandi sem mest og best þjónar sínum félagsmönnum. Vissulega eru þetta háleit markmið en að mínu mati verður að setja markið hátt. Við hljótum að vilja aðeins það besta til handa félagsmönnum okkar.

Heimsíða félagsins er komin í fulla notkun og hefur fjöldi innlita á síðuna stóraukist en daglega eru um 100 innlit inná síðuna.  Ekki er hægt annað en að minnast á að nánast allir kjarasamningar félagsins voru og eru lausir á árinu og hefur verið gríðarlegt álag vegna þess. 

Formaður félagsins hefur farið og heimsótt flest þau fyrirtæki sem félagsmenn okkar starfa hjá – ekki öll - en flest. Markmið okkar með þessum vinnustaðaheimsóknum er að auka bein tengsl milli stéttarfélagsins og félagsmanna og upplýsa þá  um réttindi þeirra og skyldur. Það er lykilatriði fyrir forustumenn í stéttarfélögum að vera í góðu sambandi við félagsmenn.

18
Nov

Kynningarfundur um nýgerðan kjarasamning sjómanna var haldinn um borð í Helgu Maríu AK

Kynningarfundur um kjarasamning sjómanna var haldinn um borð í Helgu Maríu í kvöld, hófst fundurinn kl. 22.00.  Til fundarins mættu Sævar Gunnarsson frá Sjómannasambandi Íslands, Árni frá Fiski-og farmannasambandi Íslands og formaður Verkalýðsfélags Akraness.  Sævar fór yfir samninginn og svaraði þeim spurningum sem fyrir hann voru lagðar.  Formaður VLFA kynnti fyrir skipverjum hvernig fyrirkomulag kosninganna muni verða.

Hægt verður að kjósa á skrifstofu félagsins frá 1. desember til 31. desember.  Formaður minnti skipverja á að annar kynningafundur verður haldinn 27. desember þar sem Hólmgeir Jónsson frá SSÍ mun fara ítarlega yfir samninginn og svara fyrirspurnum fundarmanna.  Hvatti formaður VLFA alla áhafnarmeðlimi sem atkvæðisrétt hafa til að nýta kosningarétt sinn.

18
Nov

Stjórnar og trúnaðarráðsfundur var haldinn í kvöld

Stjórnar og trúnaðarráðsfundur var haldinn í kvöld.  Formaður félagsins fór yfir stöðu félagsins og kynnti einnig  fyrir trúnaðarráði stöðuna  í þeim kjaraviðræðum sem félagið stendur í þessa daga. 

17
Nov

Fundað hjá ríkissáttasemjara vegna kjarasamnings Íslenska járnblendifélagsins

Fundað verður hjá ríkissáttasemjara á morgun og hefst fundurinn kl. 08.30.  Stéttarfélögin munu leggja fram sameiginlegar  kröfur sínar, en félögin voru búin að leggja fram sérkröfur sínar á síðasta fundi.  Væntanlega verður farið yfir eitthvað af þessum kröfum, einnig verður rætt um gildissvið kjarasamningsins.

16
Nov

Fundað með starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins um bónusmál

Fyrstu tveir kynningafundir með starfsmönnum voru haldnir í dag það voru A og B vaktirnar sem fundað var með í dag.  Markmið fundanna var að fara yfir bónusmál starfsmanna vegna fyrri ára.  Í byrjun fundanna fór  forstjóri Ij yfir  framtíðarmarkmið fyrirtækisins.  Næst verður fundað með dagmönnum og C vaktinni, er sá fundur á morgun kl. 14.00.

16
Nov

Kröfur stéttarfélaganna og trúnaðarmanna vegna kjarasamnings Norðuráls voru lagðar fram í dag

Samningafundur var haldinn  í dag vegna kjarasamnings Norðuráls.  Til umræðu á þessum fundi voru tvö mál þ.e gildissviðið, eins fóru menn lítillega yfir breytingu á vaktarfyrirkomulagi starfsmanna.  Í lok fundarins lögðu stéttarfélögin og trúnaðarmenn NA fram kröfur sínar og gerðu forsvarsmönnum Norðuráls grein fyrir þeim. 

Næsti fundur verður fimmtudaginn 25. nóvember, á þeim fundi munu forsvarsmenn Norðuráls leggja fram sínar kröfur.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image