• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
26
Mar

Formaður VLFA kosinn formaður Starfsgreinasambands Íslands

Í gær á þingi SGS var Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness kosinn formaður Starfsgreinasambands Íslands en rétt er að geta þess að SGS er fjölmennasta landssamband verkafólks á Íslandi og stærsta landssambandið innan ASÍ með samtals um 72 þúsund félagsmenn.

Kosið var á milli hans og Þórarins Sverrissonar formanns stéttarfélags Öldunnar í Skagafirði. Vilhjálmur fékk 54% atkvæða og kom fram í ræðu hans eftir að kjörinu hafi verið lýst að hann væri djúp snortinn yfir þessum stuðningi og traust sem þingfulltrúar SGS hefðu sýnt honum við að gegna þessu krefjandi verkefni sem er að gegna forystu SGS.

Vilhjálmur fór yfir í ræðu sinni um hvaða mál hann hefur lagt mestu áherslu á, á undanförnum árum en þau hafa m.a. verið eftirfarandi:

En hver eru helstu áherslumálin mín sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni á liðnum 17 árum?

Jú, þau hafa verið eftirfarandi:

  • Ég hef ætíð lagt ofuráherslu á að samið sé í formi krónutöluhækkana, enda liggur fyrir að prósentuhækkanir eru aflgjafi misskiptingar, óréttlætis og gera ekkert annað en að auka ójöfnuð á íslenskum vinnumarkaði.
  • Það þarf að tryggja réttarstöðu launafólks gagnvart grófum kjarasamningsbrotum með skýrum févítis ákvæðum í lögum og/eða í kjarasamningum. Einnig er brýnt að tryggja að launafólk tapi ekki launakröfum sínum á grundvelli „tómlætis“ fyrir dómstólum.
  • Það þarf að berjast áfram gegn okurvöxtum, verðtryggingu og græðgisvæðingu fjármálakerfisins.
  • Það þarf að styrkja húsnæðismarkaðinn og stöðu leigjenda m.a. með því að setja á leiguþak.
  • Það þarf að endurskoða lífeyrissjóðskerfið þar sem hagsmunir sjóðsfélaga verði hafðir að leiðarljósi og tryggja þarf að lífeyrissjóðirnir komi að þjóðarátaki í uppbyggingu á húsnæði fyrir tekjulágt fólk á íslenskum húsnæðismarkaði.
  • Það er einnig mikilvægt að halda áfram að létta á skattbyrði þeirra tekjulægstu.
  • Taka þarf á arðsemisgræðgi fyrirtækja enda eru það á endanum launafólk og neytendur sem þurfa að greiða fyrir arðsemismarkmið fyrirtækja í formi hærra vöruverðs og lægra kaupgjalds.
  • Síðast en ekki síst hef ég ætíð barist gegn öllum hugmyndum um að komið verði á nýju vinnumarkaðsmódeli í anda Salek samkomulagsins, enda gengur það út á að skerða og takmarka samnings- og verkfallsrétt launafólks. Mikilvægt er fyrir launafólk að muna að samningsfrelsi og verkfallsréttur launafólks er hornsteinninn í íslenskri verkalýðshreyfingu og þann rétt þarf að verja með öllum tiltækum ráðum.

Í lok ræðurnar sem kom að við verðum að halda áfram að stíga þétt og kröftug skref í baráttunni fyrir bætum kjörum verkafólks. Það er hins vegar mikilvægt að allt verkafólk átti sig á því að réttinda- og kjarabarátta er eilífðarverkefni sem lýkur aldrei, hvorki í komandi kjarasamningum eða í kjarasamningum framtíðarinnar

Það er hins vegar ekkert náttúrulögmál að lágmarkslaun dugi ekki fyrir nauðþurftum frá mánuði til mánaðar, eða að hér viðgangist okurvextir, okurleiga, húsnæðisskortur og hátt vöruverð á öllum sviðum. 

Nei, ekkert af þessu er náttúrulögmál heldur mannanna verk sem hægt er að breyta. Það eina sem þarf er kjarkur, vilji og þor!

10
Mar

Verkalýðsfélag Akraness veitir úkraínsku flóttafólki neyðaraðstoð

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness fordæmir innrás Rússlands í frjálst og fullvalda ríki Úkraínu sem er skýrt brot á alþjóðalögum og við styðjum allar friðsamlegar aðgerðir sem bundið geta enda á stríðið.

Stjórn Verkalýðsfélag Akraness telur á grundvelli mannúðarsjónarmiða að félaginu sé skylt að bregðast við og aðstoða flóttafólk sem hingað kemur vegna stríðsástandsins sem nú geisar í þeirra landi. Stjórn VLFA hefur því ákveðið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar við móttöku úkraínsk flóttafólks til Íslands með fjárstuðningi og með því að lána tímabundið sumarhús sitt í Ölfusborgum í þetta brýna verkefni.

Auk þessa mun félagið styrkja hjálparstarf vegna flóttafólksins frá Úkraínu um eina evru fyrir hvern félagsmann eða um 500.000 kr.

Stjórn VLFA skorar jafnframt á önnur stéttarfélög hér á landi að leggja sín sumarhús t.d. í Ölfusborgum fram í þetta mannúðarverkefni En í Ölfusborgum eru 38 heilsárs sumarhús fullbúin og klár til notkunar ef þörf er á.

Það er mat stjórnar VLFA að mikilvægt sé að verkalýðshreyfingin sé samstíga í að bjóða fram þessa aðstoð, en með samstilltu átaki stéttarfélaga í Ölfusborgum væri hægt að skapa 38 fjölskyldum eða um 190 manns húsaskjól. Stjórn VLFA er sannfært um að það væri líka styrkur og stuðningur fyrir þetta fólk að vera allt saman á sama stað, enda getum við vart sett okkur í spor þessa fólks.

Á grundvelli mannúðar og manngæsku eigum við í verkalýðshreyfingunni að bjóða m.a. fram þennan möguleika að lána byggðina í Ölfusborgum til að hjálpa þessu fólki sem er að takast á við hörmungar sem ekkert okkar getur ímyndað sér, en eins og fram hefur komið í fréttum er flóttafólk frá Úkraínu að meirihluta konur og börn.

Samþykkt af stjórn Verkalýðsfélags Akraness 9. mars 2022.

02
Mar

Formaður VLFA býður sig fram til formennsku í Starfsgreinasambandi Íslands

Þing Starfsgreinasambands Íslands verður haldið daganna 23. til 25. mars 2022 á Akureyri og á þessu þingi verður m.a. kosið til formanns, varaformanns og í framkvæmdastjórn SGS.

 

Að undanförnu hefur hópur formanna innan SGS og fulltrúa sem munu sitja þingið haft samband við mig og skorað á mig að bjóða mig fram til formanns SGS.

 

Í ljósi þessarar áskorunnar og einnig í ljósi þess að Björn Snæbjörnsson núverandi formaður SGS hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram hef ég tekið ákvörðun um að bjóða mig fram sem formann Starfsgreinasambands Íslands á komandi þingi SGS.

 

Það liggur fyrir að Starfsgreinasamband Íslands gegnir lykilhlutverki þegar kemur að því að semja um kaup og kjör fyrir verka-og láglaunafólk á íslenskum vinnumarkaði og því skiptir máli að æðsta forysta sambandsins hafi ætíð kjark, vilja og þor til að berjast af alefli fyrir bættum kjörum verka-og láglaunafólki á íslenskum vinnumarkaði.  Rétt er að geta þess að Starfsgreinasamband Íslands er fjölmennasta landsamband verkafólks á Íslandi og stærsta landsambandið innan ASÍ með samtals um 72.000 þúsund félagsmenn.

 

Ég tel mig hafa víðtæka reynslu og þekkingu hvað verkalýðsbaráttu áhræir og vera því rétti aðilinn til að takast á við það verkefni sem er að gegna stöðu formanns SGS. 

 

Áherslumál mín sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni á liðnum 17 árum hafa m.a. verið þessi:

  • •             Ég hef ætíð lagt ofuráherslu að samið sé í formi krónutöluhækkanna, enda liggur fyrir að prósentuhækkanir eru aflgjafi misskiptingar, óréttlætis og gerir ekkert annað en auka á ójöfnuð á íslenskum vinnumarkaði.
  • •             Hef barist gegn öllum hugmyndum að komið verði á nýju vinnumarkaðsmódeli í anda Salek samkomulagsins enda gengur það út á að skerða og takmarka samnings- og verkfallsrétt launafólks.  Mikilvægt fyrir launafólk að muna að samningsfrelsi og verkfallsréttur launafólks er hornsteinninn í íslenskri verkalýðshreyfingu og þann rétt þarf að verja með öllum tiltækum ráðum.
  • •             Tryggja þarf réttarstöðu launafólks gagnvart grófum kjarasamningsbrotum með skýrum févítis ákvæðum í lögum sem og tryggja að launafólk tapi ekki launakröfum sínum á grundvelli „tómlætis“ fyrir dómstólum.
  • •             Berjast þarf áfram gegn okurvöxtum, verðtryggingu og græðgisvæðingu fjármálakerfisins
  • •             Styrkja húsnæðismarkaðinn og stöðu leigjenda m.a. með því að setja leiguþak
  • •             Enduskoða lífeyrissjóðskerfið þar sem hagsmunir sjóðsfélaga verði hafðir að leiðarljósi
  • •             Létta á skattbyrði þeirra tekjulægstu
  • •             Taka þarf á arðsemisgræðgi fyrirtækja enda eru það á endanum launafólk og neytendur sem þurfa að greiða fyrir arðsemismarkmið fyrirtækja í formi hærra vöruverðs og lægra kaupgjalds.

Þetta eru nokkur atriði sem ég hef barist fyrir á liðnum árum og tel brýnt að halda áfram og fái ég stuðning þingfulltrúa í kjöri til formanns í SGS mun það klárlega hjálpa til í þeirri baráttu.

 

Það er rétt að geta þess að allar kjararannsóknir sýna að í Lífskjarasamningum var stigið skref í átt að því lagfæra kjör lágtekjufólks, en þau skref þurfa svo sannarlega að verða fleiri og kröftugri á næstu misserum.  Enda er það lýðheilsumál að lágmarkslaun dugi frá mánuði til mánaðar og lágtekjufólk geti haldið mannlegri reisn á launum sínum en þvi miður er því ekki til að dreifa eins og staðan er í dag. 

 

Það er ekkert náttúrulögmál að lágmarkslaun dugi ekki fyrir nauðþurftum frá mánuði til mánaðar, eða hér viðgangist okurvextir, okurleiga, húsnæðisskortur, og hátt vöruverð á öllum sviðum.  Nei, ekkert af þessu er náttúrulögmál heldur mannanna verk sem hægt er að breyta eina sem þarf er kjarkur, vilji og þor!

 

Það er hins vegar mikilvægt að allt verka- og láglaunafólk átti sig á því að réttinda- og kjarabarátta er eilífðarverkefni sem lýkur aldrei!

 

Það er rétt að taka það fram að formennska í SGS hefur ætíð verið hlutastarf og hefur því ekki áhrif á starf mitt sem formaður í Verkalýðsfélagi Akraness enda fer vinna við að vera formaður stéttarfélags og formanns SGS mjög vel saman.   Það hefur ætíð tíðkast að formaður frá einu af aðildarfélögum SGS hefur gengt þessu starfi samhliða starfi sínu hjá sínu stéttarfélagi.

                                                                                                                                                

01
Mar

Búið að opna fyrir umsóknir í orlofshús

Nú höfum við opnað fyrir umsóknir í sumarúthlutun orlofshúsa félagsins.  Umsóknartímabilið er alveg extra langt eða frá 1.-31. mars og úthlutun fer fram þann 4. apríl.

Félagið er með bústaði í Húsafelli, við Hótel Gym,  í Svínadal, Kambshólslandi, Kjósinni, Ölfusborgum, Hraunborgum, Vestmannaeyjum, Akureyri og einnig erum við með eina íbúð á  Torrevieja svæðinu á Spáni.  Alls 14 orlofs-hús/íbúðir.

Úthlutun fer þannig fram að allar umsóknir eru skráðar inn í tölvukerfi félagsins. Kerfið raðar öllum umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli. Ef punktar tveggja eru jafnir fær sá eldri úthlutað. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu.

Þeir sem ekki fá úthlutað í fyrri úthlutun lenda sjálfkrafa í endurúthlutun þar sem þeim vikum er úthlutað sem ekki voru greiddar á eindaga fyrri úthlutunar. Fyrir endurúthlutun er heimilt að breyta umsóknum og leggja inn nýjar. Eftir eindaga endurúthlutunar verða lausar vikur auglýstar hér á heimasíðunni og hægt verður að bóka þær á Félagavefnum og á skrifstofu félagsins. Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Hér eru helstu dagssetningarnar varðandi  umsóknir og úthlutanir: 

31. mars - Frestur til að skila inn umsóknum um orlofshús

04.apríl - Fyrri úthlutun fer fram, allir umsækjendur fá svarbréf í pósti (einnig er hægt að sjá strax hvort bókun hafi myndast inni á Félagavefnum)

12. apríl  - Eindagi fyrri úthlutunar, þeim vikum sem ekki eru greiddar á eindaga er úthlutað aftur

13.apríl  - Endurúthlutun fer fram, þeir sem fá úthlutað fá það staðfest með bréfi

 - Kl. 12:00 - Fyrstir koma, fyrstir fá! Þeir sem fyrstir koma geta bókað lausar vikur, líka á Félagavefnum (athugið að eftir eindaga endurúthlutunar getur lausum vikum fjölgað)

25.apríl - Eindagi endurúthlutunar, ógreiddar vikur verða lausar til bókunar á Félagavefnum.

 

Hér er svo hægt að nálgast bækling  og umsóknareyðublöð fyrir þá sem ekki vilja nýta sér rafrænar umsóknir.

Einnig liggur þetta frammi á skrifstofunni hjá okkur á Þjóðbraut 1. 

24
Feb

Tómas Rúnar stjórnarmaður í VLFA látinn

Í gær barst mér sem formanni Verkalýðsfélags Akraness tilkynning um að Tómas Rúnar Andrésson stjórnarmaður í Verkalýðsfélagi Akraness hefði orðið bráðkvaddur í gær. Tómas var fæddur árið 1959 og hefði því orðið 63 ára þann 5. maí nk.

Tommi Rúnar eins hann var ætíð kallaður hafði gengt stöðu stjórnarmanns í Verkalýðsfélags Akraness um langt skeið, enda mikill áhugamaður um verkalýðsbaráttu. Tommi starfaði hér á árum áður lengi vel til sjós einnig var hann nokkur á hjá Norðurál. En á síðustu árum hefur hann starfað sem hópferðabílstjóri og hjá Akraneskaupstað.

Ég vil fyrir hönd Verkalýðsfélags Akraness þakka Tomma kærlega fyrir sitt framlag í þágu félagsins og sendi um leið ættingjum og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur.

16
Feb

Sólveig Anna Jónsdóttir kjörinn formaður Eflingar!

Formaður vil byrja á því að óska Sólveigu Önnu Jónsdóttur og hennar fólki á Baráttulistanum innilega til hamingju með glæsilegan sigur og það þrátt fyrir að þessi kosningabarátta hafi verið ein sú hatramasta og ógeðfelldasta sem sést hefur í kosningum á Íslandi fyrr og síðar.

Það er ljóst í huga formanns að þessar kosningar munu klárlega hafa einnig áhrif á framtíðarstefnu ASÍ og Starfsgreinasamband Íslands enda byggist valdahlutföll inná þingum ASÍ og SGS á svokölluðu fulltrúalýðræði.

Allir sem hafa fylgst með verkalýðsbaráttunni á liðnum vikum sjá og heyra að það er klofningur í verkalýðshreyfingunni og þessi sigur Sólveigar mun að mínum dómi gera það að verkum að umtalsverðar breytingar munu eiga sér stað á æðstu forystu bæði innan Alþýðusambands Íslands og Starfsgreinasambands Íslands.

Það liggur fyrir að Efling, VR, Verkalýðsfélag Akraness, Grindavíkur og Framsýn unnu þétt saman við gerð lífskjarasamningsins árið 2019 og er það óumdeilt skv. öllum kjararannsóknum að sá kjarasamningur skilaði launafólki góðri niðurstöðu. Vissulega má alltaf gera betur enda lýkur réttindabaráttu launafólks aldrei.

Það er einnig ljóst að þessi félög og ugglaust fleiri munu þétta raðir sínar enda mynda þau meirihluta innan ASÍ og SGS. Þessar kosningar í Eflingu munu að mínu mati leiða til þess að það verður ekki látið átölulaust að áhrif þessa meirihlutahóps endurspegli ekki að einhverju leyti stefnu og markmið og æðstu forystu ASÍ og SGS. 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image