• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
19
Oct

47 þing ASÍ - Tekjur eiga ekki að ráða atkvæðavægi innan ASÍ

Á föstudaginn lauk 47. þingi Alþýðusambands Íslands. Þetta var að mörgu leyti skrýtið þing, en vissulega var þar líka unnið vel og mikilvæg stefnumál sambandsins mörkuð í þágu launafólks.

Nægir að nefna þegar fráfarandi forseti ASÍ, Finnbjörn A. Hermannsson, lagði til að tillaga um að fækka varaforsetum úr þremur í einn, sem VR studdi einarðlega, yrði dregin til baka til að ná sátt á þinginu. Jafnframt yrði skipulag ASÍ í heild tekið til skoðunar.

Þegar Finnbjörn hafði lokið máli sínu baulaði hluti þingfulltrúa VR á hann. Mörgum fannst það afar óviðeigandi framkoma í garð fráfarandi forseta sem hafði rétt í þessu lagt fram tillögu til að ná sátt á þinginu.

Starfsgreinasamband Íslands átti 72 þingfulltrúa og ég get ekki séð annað en að þeir hafi allir verið sér og sínum félögum til sóma. Ég vil þakka þessu góða fólki fyrir framlagið og fyrir að standa vaktina fyrir verkafólk vítt og breitt um landið. Að mínum dómi hefur samstaðan innan SGS aldrei verið meiri og sterkari en nú. Það er mikill styrkur í því að finna hversu þétt okkar fólk stendur saman um hagsmuni verkafólks.

Á þinginu lagði ég sem formaður SGS fram tillögu um að miðstjórn ASÍ yrði falið að fá óháða sérfræðinga til að kanna og leggja fram aðrar leiðir við úthlutun þingfulltrúa. Markmiðið var að tryggja sem jafnast lýðræðislegt vægi félagsmanna, óháð launatekjum þeirra og skattgreiðslum aðildarsamtaka til ASÍ.

Sérstaklega átti að skoða úthlutun eftir fjölda fullgildra félagsmanna, tryggja rödd minni félaga og skoða leiðir til að aðskilja fjármögnun ASÍ frá lýðræðislegu vægi innan sambandsins. Niðurstöður áttu að liggja fyrir innan sex mánaða frá þinglokum.

Ég lagði þessa tillögu fram vegna þess að hér er um mikið réttlætismál að ræða. Tölurnar tala sínu máli.

Samkvæmt úthlutunartöflu ASÍ eru fullgildir félagsmenn samtals 136.062. Þar af eru 40.042 innan SGS og 27.886 innan Eflingar, eða samtals 67.928 félagsmenn. Það eru 49,92% allra fullgildra félagsmanna innan ASÍ. Samt hafa þessi tvö sambönd aðeins 128 af 291 þingfulltrúa, eða 43,99%.

Við erum því með nánast helming félagsmanna en aðeins um 44% fulltrúanna. Ef fulltrúum væri skipt í beinu hlutfalli við fullgilda félagsmenn samsvaraði það um 145 fulltrúum í stað 128. Það munar um 17 þingfulltrúum! Hjá SGS einu samsvaraði félagsmannahlutfallið um 86 fulltrúum í stað 72, eða um 14 fleiri.

Samanburðurinn við LÍV er líka sláandi. LÍV er með 44.449 fullgilda félagsmenn og 98 þingfulltrúa. Það eru aðeins 4.407 fleiri félagsmenn en hjá SGS en 26 fleiri þingfulltrúar. Um 11% fleiri félagsmenn skila þannig rúmlega 36% fleiri fulltrúum.

Hjá SGS standa 556 fullgildir félagsmenn að baki hverjum þingfulltrúa, hjá Eflingu 498 en hjá VM aðeins 250. Fulltrúavægi á hvern fullgildan félagsmann hjá VM er því rúmlega tvöfalt á við SGS og nær tvöfalt á við Eflingu.

Þetta er niðurstaða kerfis sem byggist á iðgjaldatengdum reiknuðum ársverkum. Það þarf að greina nákvæmlega hversu mikið af muninum skýrist af launum, starfshlutfalli og starfstíma. Það var einmitt tilgangurinn með því að kalla eftir óháðum sérfræðingum og samanburði á öðrum leiðum.

Mín afstaða er hins vegar skýr. Það er óeðlilegt að tekjur ráði því hversu sterk rödd félagsmaður hefur innan Alþýðusambands Íslands. Við myndum aldrei samþykkja að auðmenn hefðu rúmlega tvöfalt atkvæðavægi í alþingiskosningum á þeim forsendum að þeir greiddu svo mikla skatta. Sama grundvallarhugsun um jafnræði á að gilda innan okkar eigin hreyfingar.

Þess vegna fannst mér dapurt að sjá Höllu Gunnarsdóttur og fleiri fulltrúa VR, ásamt fulltrúum annarra félaga, leggja fram tillögu sem að mínu mati dró úr vægi þessarar skýru kröfu. Þar var lagt til að tillögunni yrði vísað í heild til miðstjórnar sem myndi sjálf ákveða hvernig verkefnið yrði unnið.

Tillaga mín fól þegar í sér verkefni fyrir miðstjórn. Hún fól hins vegar líka í sér skýrt umboð frá þinginu um óháða sérfræðinga, samanburð á lýðræðislegri leiðum og ákveðinn skilafrest. Mér finnst verulegur munur á því og að láta miðstjórn sjálfa ráða framkvæmdinni.

Miðstjórn er heldur ekki óháður aðili í þessu máli. Þar sitja fulltrúar samtakanna sem úthlutunarreglurnar varða og hafa hagsmuni af niðurstöðunni. Að mínu mati hallar einnig verulega á verkafólk í samsetningu hennar. Það styrkir enn frekar þörfina fyrir óháða skoðun.

Mér finnst með ólíkindum að verkalýðshreyfingin skuli búa við þennan lýðræðishalla á verkafólk í kerfi sem tengir vægi við tekjur. Samtök sem berjast fyrir jöfnuði og réttlæti verða að gera sömu kröfur til eigin starfshátta. Ef fulltrúalýðræði ASÍ á að njóta trausts verður sanngirni þess að vera hafin yfir allan vafa.

Rödd verkafólks á ekki að vega minna vegna þess að launin eru lægri.

Að lokum óska ég Georgi Páli Skúlasyni til hamingju með kjörið sem forseti ASÍ og velfarnaðar í starfi. Ég óska einnig fulltrúum SGS í miðstjórn, þeim Aðalsteini Árna Baldurssyni, Guðbjörgu Kristmundsdóttur og Tryggva Jóhannssyni, innilega til hamingju með kjörið, sem og varamönnum okkar, Birki Snæ Guðjónssyni, Eyþóri Þ. Árnasyni, Guðrúnu Elínu Pálsdóttur og Silju Eyrúnu Steingrímsdóttur.

Sérstaklega óska ég Guðbjörgu til hamingju með kjörið í embætti 2. varaforseta ASÍ. Ég veit að þetta góða fólk mun standa vaktina fyrir verkafólk og óska þeim öllum góðs gengis í þeim mikilvægu verkefnum sem fram undan eru.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image