Verkalýðsfélag Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
Kt. 680269-6889
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir
upplýsingum og annarri aðstoð.
-
Þjóðbraut 1,
300 Akranes
-
Sími:
4309900
-
Netfang:
skrifstofa@vlfa.is
Afgreiðslutími
Mánudag-fimmtudag kl. 08:00-16:00 og föstudaga kl. 8:00-15:15. Utan afgreiðslutíma félagsins er hægt að ná í formann félagsins, Vilhjálm Birgisson, í síma 865-1294.
Nýjar fréttir
47 þing ASÍ - Tekjur eiga ekki að ráða atkvæðavægi innan ASÍ
Á föstudaginn lauk 47. þingi Alþýðusambands Íslands. Þetta var að…
Ábyrg niðurstaða tryggir launahækkanir og mikilvægar réttarbætur fyrir launafólk
Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn,…



Kosningu Verkalýðsfélags Akraness sem og annarra aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands um verkfall lauk á miðnætti. Það er skemmst frá því að segja að kosningaþátttaka var nokkuð góð eða tæp 60%. Verkfallið var samþykkt með afgerandi meirihluta eða tæplega 98% þeirra sem tóku afstöðu. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að íslenskt verkafólk ætlar ekki að láta það óréttlæti og þá misskiptingu sem ríkt hefur í garð verkafólks á liðnum árum og áratugum viðgangast stundinni lengur.
Formaður fór í gær og kynnti fyrir iðnnemum í Fjölbrautaskóla Vesturlands réttindi og skyldur á íslenskum vinnumarkaði. Einnig kynnti formaður fyrir iðnnemunum allt það sem Verkalýðsfélag Akraness hefur upp á að bjóða hvað varðar þjónustu og hina ýmsu styrki sem félagið býður sínum félagsmönnum upp á. Félagið er með iðnsveinadeild þannig að þeir sem þarna voru í námi munu væntanlega tilheyra Verkalýðsfélagi Akraness þegar þeir hafa lokið námi sínu.