• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
16
Mar

Gríðarlegt annríki vegna skattaframtalsaðstoðar

Gríðarlegt annríki hefur verið á skrifstofu félagsins vegna skattaframtalsaðstoðar sem félagið bíður uppá. Mun fleiri hafa nýtt sér þessa þjónustu í ár sé miðað við árið í fyrra.

Núverandi stjórn ákvað þegar hún tók við árið 2003 að bjóða uppá þessa þjónustu og eins og áður sagði hefur hún svo sannarlega fallið í góðan jarðveg hjá félagsmönnum.

Tugir erlendra starfsmanna hafa þegið þessa þjónustu á undanförnum dögum og er afar ánægjulegt að sjá að erlent vinnuafl er að nýta sér þá þjónustu sem félagið bíður uppá.

Þær Hugrún Olga Guðjónsdóttir og Björg Bjarnadóttir hafa borið hitann og þungann af þessari þjónustu og hafa gert það með glæsibrag.

15
Mar

Formaður félagsins og framkvæmdastjóri SGS fóru á fund sérnefndar Alþingis í morgun

Formaður félagsins fór í morgun ásamt framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins á fund sérnefndar Alþingis sem hefur það verkefni að fjalla um frumvarp um auðlindaákvæði í stjórnarskrá (þjóðareign á náttúruauðlindum).

Hafði Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður nefndarinnar óskað eftir áliti SGS á umræddu frumvarpi. 

Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri SGS fór yfir afstöðu SGS í þessu máli og kom fram í hans máli að SGS vill að náttúruauðlindir Íslands séu í þjóðareign og þær nýttar til hagsbóta fyrir þjóðina.  

Formaður félagsins telur það afar brýnt að auðlindir hafsins sem og aðrar auðlindir séu eign þjóðarinnar.  Hins vegar verður að tryggja að frumvarpið skapi ekki réttarfarslega óvissu. 

Það er með öllu óþolandi að horfa uppá hvernig kvótakerfið hefur leikið margar byggðir þessa lands.  

Það getur vart verið eðlilegt að útgerðamaður sem hefur umráðarétt yfir aflaheimildum geti ákveðið uppá sitt einsdæmi að hætta útgerð og selt allar aflaheimildir frá sér og skilið heilt byggðarlag í sárum.  Gengið í burtu með tugi ef ekki hundruði milljóna króna í vasanum og skilið sjómenn og fiskivinnslufólk eftir atvinnulaust og nánast allslaust. 

Þetta atvinnuóöryggi sem sjómenn og fiskvinnslufólk þarf að búa við er ekki nokkrum bjóðandi.  Við Skagamenn höfum að undanförnum misserum þurft að horfa eftir umtalsverðum aflaheimildum sem seldar hafa verið burt úr bænum.  Nægir þar að nefna að smábátaútgerð hér á Akranesi hefur dregist stórlega saman á síðustu mánuðum.  Einnig hefur starfsfólki Haraldar Böðvarssonar fækkað umtalsvert við sameiningu við Granda.  Starfsöryggi sjómanna og fiskivinnslufólks er verulega ótryggt í núverandi fiskveiðistjórnarkerfi.

Það er gríðarlega mikilvægt að sátt náist í þjóðfélaginu um sjávarútvegsmál okkar Íslendinga.  Það sjávarútvegskerfi sem við búum við núna er eins ósanngjarnt og hugsast getur og því þarf að breyta, þjóðinni allri til hagsbóta.

14
Mar

Fast þeir sóttu sjóinn

Formaður félagsins kíkti á bryggjuna snemma í morgun og hitti þar harðjaxlana Eið Ólafsson og Kristófer Jónsson en þeir eru félagsmenn í Verkalýðsfélagi Akraness.

Þeir félagar er á tólf tonna bát sem ber nafnið Ísak Ak 67.  Voru þeir Eiður og Kristófer að  koma úr róðri í skítabrælu, suðvestan 7 til 8 vindstigum með drekkhlaðinn bát samtals um 11 tonn.

Þeir tjáðu formanni að fiskiríið sé búið að vera með ágætum það sem af er vertíð.   Núna sé staðan hins vegar þannig að erfitt sé að fá leigukvóta og verðið sé einnig mjög hátt. 

Það er alveg óhætt að segja að trillusjómennskan sé ekkert sældarlíf þegar veður eru válynd eins og oft vill verða hér á Íslandi.  Nægir að heyra fréttir að sjóslysinu frá því í gærkveldi vestur á fjörðum til að sjá hversu hættulegt starf trillusjómennska getur verið.  En vissulega eru æði margir ljósir punktar varðandi trillusjómennsku, tekjurnar geta t.d verið mjög góðar þegar aflar vel.  Og í góðri tíð og góðu fiskiríi er fátt skemmtilegra en að vera í snertingu við hafið og anda að sér tærum sjávarilmi.

13
Mar

Formaður fór í vinnustaðaheimsókn til starfsmanna síldarbræðslunnar

Formaður félagsins fór í vinnustaðaheimsókn í síldar- og fiskimjölsverksmiðjuna í gær. 

Það kom fram hjá starfsmönnum að búið væri að landa um 26 þúsund tonnum að uppsjávarafla það sem af er þessu ári og er það umtalsvert meira heldur á sama tíma í fyrra.  Mikil törn hefur verið á starfsmönnum verksmiðjunnar að undanförnu og nægir að nefna í því samhengi að starfsmenn hafa staðið 62 vaktir og það nánast í einni lotu.

Í janúar gekk félagið frá nýjum sérkjarasamningi fyrir starfsmenn síldarbræðslunnar sem tryggir starfsmönnum mun betri kjör heldur en sjá eldri.  Það sem gert var í nýja samningum var að hinar ýmsu kaupaukagreiðslur voru færðir inní grunnlaun sem tryggir starfmönnum mun betri kjör þegar ekki eru staðnar vaktir.

12
Mar

Brotum á erlendum starfsmönnum ekkert að linna

Í síðustu viku leituðu tveir Pólverjar til félagsins vegna grunsemda um að hafa ekki fengið greitt samkvæmt lágmarkstöxtum hjá atvinnurekanda sem þeir störfuðu hjá á síðasta ári.  Afhentu þeir formanni félagsins launaseðla sem staðfestu að grunsemdir þeirra voru á rökum reistar.

Pólverjanir sem hafa fleiri ára reynslu af byggingarvinnu víðsvegar um heiminn, voru einungis með 648 kr á tímann í dagvinnu og 1.166 í yfirvinnu.  Því til viðbótar kom fyrir að þeir væru látnir vinna allt að 184 tíma í dagvinnu á mánuði áður en þeir fengu greitt í yfirvinnu. Samkvæmt samkomulagi við Samtök avinnulífsins sem gert var 1. júlí 2006 átti Pólverjanir að vera með í það minnsta 735 kr. í dagvinnu og 1.322 kr. 

Krafan sem félagið hefur gert á atvinnurekandann sem pólverjarnir störfuðu hjá hljóðar uppá  rúmar 72.000 kr. á hvorn fyrir sig. 

Það er alveg ljóst að brotum á erlendu vinnuafli ætlar ekkert að linna og þessi brot gera ekkert annað en að gjaldfella launakjör hjá íslensku verkafólki.  Það hefur komið fram hjá Vinnumálastofnun að það hefur þurft að leiðrétta launakjör hjá 50 til 60% þeirra sem starfa á vegum starfsmannaleigna, en ekki hefur verið kannað hvert hlutfallið í leiðréttingum er hjá þeim sem ráðnir eru í beint ráðningarsamband.  Reynslan sýnir að einnig er mikið um leiðréttingar hjá þeim sem ráðnir eru í beint ráðningarsamband.

09
Mar

Félagsmenn kunna vel að meta framtalsaðstoð félagsins

Framtalsaðstoðin vegna skattaframtals stendur nú yfir á skrifstofu félagsins og eru einungis tveir lausir tímar eftir.

Hugsanlega verður einhverjum tímum bætt við en það liggur ekki alveg fyrir.  Það er Hugrún Olga Guðjónsdóttir sem sér um þessa þjónustu fyrir félagið og gerir það með miklum sóma.

Það er greinilegt að félagsmenn kunna vel að meta þessa þjónustu sé tekið mið af þeirri aukningu sem er á milli ára. 

Þeir félagsmenn sem eru að velta fyrir sér að nýta sér þessa þjónustu félagsins eru eindregið hvattir til að panta sér tíma, því hver er að verða síðastur í þeim efnum. 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image