• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
10
Feb

Fundur hjá ríkissáttasemjara vegna kjaradeilu í fiskimjölsverksmiðjunni

Það var afar ánægjulegt að fá yfirlýsingu frá Landssambandi Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna þar sem þeir lýsa yfir fullum stuðningi við boðaðar aðgerðir Verkalýðsélags Akraness. Einnig senda þeir starfsmönnum í loðnubræðslum baráttukveðjur vegna fyrirhugaðs verkfalls sem á að hefjast 15. febrúar.

Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar kl. 14 í dag í húsakynnum sínum þar sem farið verður yfir þá alvarlegu stöðu sem upp er komin. Formaður VLFA vill ítreka það að félagið hefur margoft rétt út sáttarhönd í þessu máli og meðal annars boðið forsvarsmönnum HB Granda, sem eiga og reka fiskimjölsverksmiðuna, að framlengja samninginn til 1. maí næstkomandi gegn eingreiðslu til hvers starfsmanns. Því miður þá hafa forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins hafnað þessar sáttatillögu algjörlega.

Á þeirri forsendu er ábyrgð Samtaka atvinnulífsins mikil í þessu máli því heildarkostnaður þessarar lausnar hefði einungis verið um 3 milljónir króna fyrir fyrirtækið. Ef menn vilja fórna milljörðum fyrir 3 milljónir þá er það einhver hagfræði sem formaður Verkalýðsfélags Akraness skilur ekki. Á  fundinum á eftir mun félagið halda áfram að reyna að finna lausn á þessu máli en það mun verða lágmarkskrafa frá félaginu að þeirri kaupmáttarskerðingu sem starfsmenn hafa orðið fyrir verði skilað að fullu til baka við undirritun kjarasamnings. Enda eru engar forsendur fyrir því að útflutningsfyrirtæki sem hafa verið að hagnast á gengisfalli íslensku krónunnar skili ekki þeirri kaupmáttarskerðingu að fullu til baka til sinna starfsmanna.  

08
Feb

Slegið á útrétta sáttarhönd

Í gærkvöldi var kosið um vinnustöðvun í Fiskimjölsverksmiðju HB Granda hf á Akranesi. Það er skemmst frá því að segja að verkfallsboðunin var samþykkt af 80% atkvæðisbærra manna. Samtökum atvinnulífsins hefur verið sent formlegt erindi þar sem fram kemur að verkfall muni skella á kl. 19:30 þann 15. febrúar næstkomandi og standa ótímabundið.

Rétt er að geta þess rækilega að formaður Verkalýðsfélags Akraness hefur reynt allt til að leysa þessa deilu, meðal annars boðið forsvarsmönnum HB Granda beint í tvígang að framlengja samninginn til 1. maí næstkomandi gegn eingreiðslu til starfsmanna og væri kostnaður vegna þessarar eingreiðslu einungis rúmar 3 milljónir sem myndi koma í veg fyrir að komandi loðnuvertíð væri ógnað.

Það er mat formanns að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi alls ekki tekið illa í þessa hugmynd en það liggur fyrir að Samtök atvinnulífsins hafa komið í veg fyrir þessa lausn á málinu. Ef þetta hefði verið gert væri hægt að koma í veg fyrir yfirvofandi vinnustöðvun með hagsmuni fyrirtækisins, starfsmanna og alls þjóðarbúsins að leiðarljósi. Á þeirri forsendu vísar formaður VLFA ábyrgðinni alfarið yfir á Samtök atvinnulífsins.

Rétt er að geta þess að bræðslumenn hafa fengið tilboð upp á 2,5% hækkun á ári til þriggja ára eða samtals 7,5%. Þetta væri hækkun sem næmi 5.900 kr. á mánuði sem er ekki einu sinni fyrir þeirri bensínhækkun sem dunið hefur á landsmönnum á liðnum misserum. Grunnlaun starfsmanna í síldarbræðslunum eru 236 þúsund krónur og það er lágmarkskrafa að þeirri kaupmáttarskerðingu sem þessir aðilar hafa orðið fyrir frá janúar 2008 verði skilað að fullu til baka. En það er rétt að geta þess einnig að verð á lýsi hefur hækkað um 115% og verð á mjöli upp undir 140% á síðustu 2-3 árum.

Á þeirri forsendu er útilokað að sætta sig við einhverja samræmda launastefnu þar sem litlar sem engar kjarabætur eiga að koma til fólks. Það er hægt að sýna atvinnugreinum sem eiga í vandræðum skilning en að ætla sér að setja útflutningsfyrirtækin sem hafa hagnast gríðarlega vegna gengisfalls íslensku krónunnar undir sama hatt og atvinnugreinar sem berjast í bökkum eins og til dæmis byggingariðnaðurinn, er óskiljanlegt og verður ekki liðið. Nú er það hlutverk samningsaðila að setjast niður af alvöru og leysa þessa deilu með hagsmuni áðurnefndra aðila að leiðarljósi. Ábyrgð Samtaka atvinnulífsins í þessu máli er mikil. Þeirri ábyrgð verður ekki vísað á þá aðila sem rétt hafa út sáttarhönd.

08
Feb

Fyrsti samningafundur vegna launaliðar Norðuráls

Verksmiðja Norðuráls á GrundartangaVerksmiðja Norðuráls á GrundartangaFyrsti samningafundur með Samtökum atvinnulífsins og forsvarsmönnum Norðuráls var haldinn á föstudaginn. Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá lagði Verkalýðsfélag Akraness fram kröfugerð fyrir verkamenn og nam sú hækkun 27,5%. Hins vegar voru iðnaðarmannafélögin og Stéttarfélag Vesturlands ekki búin að leggja fram sína kröfugerð. Það var hins vegar gert á fundinum á föstudaginn og það var dálítið athyglisvert að í þeirri kröfugerð er ekki nefnd nein prósentutala né krónutala heldur var einungis kveðið á um verulega hækkun grunnlauna.

Það kom fram hjá fulltrúa VR þegar formaður óskaði eftir því að fá vitneskju um það hvort að iðnaðarmannafélögin styddu ekki kröfugerð Verkalýðsfélags Akraness upp á 27,5% að hún væri ekki í anda þeirrar samræmdu launastefnu sem að unnið væri að en hins vegar myndu félögin ekki slá hendinni á móti þeirri hækkun ef Verkalýðsfélag Akraness næði fram sinni kröfu. Það verður að segjast alveg eins og er að þessi ummæli slógu formann VLFA all verulega sem og trúnaðarmenn verkamanna. Það kom reyndar einnig fram hjá hinum félögunum að þau ætluðu ekki að "undirbjóða" kröfugerð VLFA.

Eins og margoft hefur komið fram hjá formanni félagsins þá mun félagið ekki taka þátt í því að láta troða ofan í kokið á sér samræmdri launastefnu þar sem sama láglaunakrafan verður sett fyrir alla launþega. Það eru engar forsendur fyrir því að fyrirtæki í útflutningi, þar með talin stóriðjan, fái afslátt af þeim kjarasamningi sem framundan er enda hafa starfsmenn þessara fyrirtækja orðið fyrir umtalsverðri kjaraskerðingu frá janúar 2008. Næsti fundur er fyrirhugaður í næstu viku.  

08
Feb

Undið ofan af skemmdarverkunum

Verksmiðja Elkem á GrundartangaFormaður félagsins hefur verið að reyna að vinda ofan af þeim skemmdarverkum sem stéttarfélögin sem eiga aðild að kjarasamningi Elkem Ísland og Klafa ollu. Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá neituðu þau að viðurkenna fulltrúa sína í samninganefndinni sem voru meðal annars þeirra eigin trúnaðarmenn og einnig töldu þau sig ekki hafa verið aðila að þeirri viðræðuáætlun sem skilað var inn eins og lög um stéttarfélög og vinnudeilur kveða á um.

Rétt er að geta þess að fyrirkomulagið við undirbúning kjarasamnings og viðræðuáæltun var með nákvæmlega sama hætti og í síðustu tveimur kjaraviðræðum hjá Elkem og Klafa og sáu stéttarfélögin ekki ástæðu til að gera athugasemdir þá. Hins vegar höfðu þau nú samband við Samtök atvinnulífsins, atvinnurekendur og ríkissáttasemjara og gerðu athugasemdir við þá aðila en gerðu hins vegar engar athugasemdir við Verkalýðsfélags Akraness eða við aðaltrúnaðarmann fyrr en málið var komið til ríkissáttasemjara. Vinnubrögð af þessu tagi er ekki hægt að flokka sem neitt annað en skemmdarverk þar sem hagsmunum starfsmanna er fórnað á altari óvildar í garð formanns Verkalýðsfélags Akraness.

Formaður fundaði með ríkissáttasemjara og Hannesi Sigurðssyni, aðal samningamanni Samtaka atvinnulífsins á föstudaginn og einnig í gær og nú hefur Verkalýðsfélag Akraness gengið frá nýrri viðræðuáætlun og mun félagið fara eitt og sér í komandi viðræður enda er ekki starfandi með stéttarfélögum sem haga sér með þessum hætti. Fyrsti fundur verður fimmtudaginn 10. febrúar kl. 15. Strax í kjölfarið verður fundur vegna kjarasamnings Klafa.  

03
Feb

Skemmdarverkin unnin áfram

Það er óhætt að segja að skemmdarverkin haldi áfram er lýtur að kjarasamningsgerð vegna starfsmanna Elkems Íslands og Klafa ehf.  En eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá höfnuðu VR, RSÍ og Stéttarfélag Vesturlands þeim fulltrúum sem sátu í samninganefndinni fyrir áðurnefnd stéttarfélög.  Á þeirri forsendu óskaði Ríkissáttasemjari eftir að áðurnefnd stéttarfélög myndu tilnefna sína fulltrúa í samninganefndina til að hægt væri að halda áfram kjaraviðræðum eins og frá var horfið.  Rétt er að geta þess að t.d. fulltrúi VR í saminganefndinni hefur tekið þátt í samningagerð fyrir sitt stéttarfélag í mörg ár án nokkurra athugasemda en einhverra hluta vegna þurfti t.d VR að gera athugasemdir nú.

Í morgun var haldinn fundur þeirra stéttarfélaga sem eiga aðild að kjarasamningi Elkem og Klafa og óskað eftir að fá upplýsingar um hvaða fulltrúa eigi að skipa frá áðurnefndum stéttarfélögum í samninganefndina.  Þá gerist það að formaður Stéttarfélags Vesturlands hafði sent tölvupóst þar sem kom m.a. fram að Stéttarfélag Vesturlands ætlaði ekki að sitja í þessari samninganefnd eða taka þátt í þessum viðræðum sem framundan væru.  Í kjölfarið tilkynnti yfirmaður kjaramálasviðs VR að VR myndi ekki heldur taka þátt í þessum samningum vegna ákvörðunar Stéttarfélags Vesturlands.  RSÍ hefur einnig sent tölvupóst þar sem m.a kemur fram að RSÍ vilji byrja samningaferlið alveg uppá nýtt og einnig að það sé grundarvallaratriði að formaður Verkalýðsfélags Akraness leiði ekki þessar viðræður heldur aðaltrúnaðarmaður Elkem.  Rétt er að geta þess um 80% allra starfsmanna Elkem eru félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness og hefur félagið unnið í mjög góðri og náinni samvinnu við alla trúnaðarmenn þar með talið aðaltrúnaðarmann. Það er einnig rétt að geta þess að trúnaðarmenn óskuðu eftir því við formann Verkalýðsfélags Akraness að hann yrði formaður samninganefndarinnar.

Það er sorglegt að hagsmunir starfsmanna Elkem og Klafa séu fótumtroðnir vegna persónuóvildar forystumanna ASÍ í garð formanns Verkalýðsfélags Akrnaess.  En rétt er að geta þess að yfirmaður kjaramálasviðs VR viðurkenndi það t.d. á fundinum í morgun að VR gæti ekki samþykkt launakröfu starfsmanna Elkem uppá 27,5% vegna þess að hún væri ekki í samræmi við launastefnu sem forysta ASÍ hefur talað fyrir.  En eins og margoft hefur komið fram hér á heimasíðunni þá hefur formaður gagnrýnt samræmda launastefnu harðlega.

Trúnaðarmaður VR ákvað eftir þessa ótrúlegu uppákomu í fundinum í morgun að segja af sér sem trúnaðarmaður og tilkynnti hann skrifstofu VR það í dag. Það er ljóst að mörgum starfsmönnum Elkem og Klafa er afar brugðið yfir þessari framkomu áðurnefndra stéttarfélaga eða réttara sagt þá eru þeir brjálaðir yfir þessari framkomu, enda er ekki verið að hafa hagsmuni starfsmanna að leiðarljósi.

Nú liggur fyrir að Verkalýðsfélag Akraness mun halda áfram viðræðum við Samtök atvinnulífsins og forsvarsmanna Elkem um gerð nýs kjarasamnings án aðkomu áðurnefndra félaga, en á þessari stundu liggur ekki fyrir hvort Félag iðn- og tæknigreina verður með í þeim viðræðum sem framundan eru.

Það er samróma álit þeirra sem sitja í samninganefndinni að þessi vinnubrögð muni ekki gera neitt annað en að þjappa mönnum saman og það er ánægjulegt fyrir Verkalýðsfélag Akraness að finna að trúnaðarmenn og þeir sem sátu í samninganefnd Elkem og Klafa standa þétt með VLFA í þessari baráttu sem nú er framundan.

01
Feb

Fundað vegna kjarasamnings Elkem og Klafa

Í morgun var haldinn fundur með þeim stéttarfélögum sem aðild eiga að kjarasamningi Elkem Ísland og Klafa ehf vegna þess ágreinings sem upp kom síðastliðinn föstudag hjá Ríkissáttasemjara. Sá ágreiningur fólst í því að RSÍ, Stéttarfélag Vesturlands og VR viðurkenndu ekki fulltrúa sína í samninganefndinni sem skipuð hafði verið vegna gerðar nýs kjarasamnings vegna áðurnefndra fyrirtækja.

Á fundinum rakti formaður VLFA þá vinnu sem lögð hefur verið í gerð kröfugerðar og viðræðuáætlunar og kom skýrt fram hjá honum að sú vinna sem unnið hefur verið er með nákvæmlega sama hætti og undanfarin ár án nokkurra athugasemda. Einnig er gríðarlega mikilvægt að starsfmenn fyrirtækjanna hafa ályktað í þá veru að þau lýsa fullum stuðningi við þá samninganefnd sem kosin var á sínum tíma og þeirri vinnu sem unnin hefur verið til þessa.

Niðurstaða fundarins var sú að áðurnefnd félög ætla að taka sér frest fram á fimmtudag en þá mun koma í ljós hvort öll félögin muni fara saman í komandi samninga eða þá að Verkalýðsfélag Akraness fari eitt og sér. Enda er félagið með upp undir 80% allra starfsmanna vegna umræddra kjarasamninga. Það er hins vegar von formanns að hin félögin muni veita þeim aðilum sem hafa setið í samninganefndunum umboð sitt þannig að hægt verði að halda áfram þar sem frá var horfið.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image