Almennir starfsmenn Norðuráls vilja sanngirniEins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá á Verkalýðsfélag Akraness í kjaradeilu vegna launaliðar kjarasamnings starfsmanna Norðuráls en starfsmenn Norðuráls hafa verið án launahækkana frá 1. janúar 2011. Það hefur einnig komið fram hér á heimasíðunni að gríðarlegur launamunur er nú orðinn á milli starfsmanna Fjarðaáls og Norðuráls eftir að gengið var fá kjarasamningi fyrir starfsmenn Fjarðaáls ekki alls fyrir löngu. En launamunurinn nemur allt að 30% í sumum tilfellum og nemur hann í krónum talið frá tæpum 70.000 kr. uppí allt að 100.000 kr. fyrir sömu vinnu og sama vinnutíma á mánuði. Þetta er launamunur sem Verkalýðsfélag Akraness og starfsmenn munu ekki og ætla ekki að sætta sig við, en forsvarsmenn Norðuráls hafa boðið sömu launahækkanir og um var samið á hinum almenna vinnumarkaði eða sem nemur 4,25% á þessu ári og 11,4% á samningstímanum. Með öðrum orðum þá vilja forsvarsmenn Norðuráls ekki taka tillit til þeirra launahækkana sem um var samið við starfsmenn Fjarðaráls og þeirra góðu rekstrarskilyrða sem áliðnaðurinn býr við um þessar mundir en álverð stendur nú 2.600 dollurum sem er gríðarlega hátt verð. Einnig er rétt að geta þess að launamunur er einnig á milli Alcan og Norðuráls og þá sér í lagi ef tekið er tillit til þeirrar launauppbótar sem stóriðjuskólinn gefur Alcanmönnum sem ekki stendur starfsmönnum Norðuráls til boða.