• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
14
May

Lausar vikur sumarið 2007 - fyrstur kemur fyrstur fær!

Eftirtaldar vikur eru lausar nú eftir að úthlutunum sumarsins er lokið. Félagsmenn geta bókað lausar vikur á skrifstofu félagsins, Sunnubraut 13, eða í síma 430 9900.

Punktastaða hefur ekki áhrif á möguleika félagsmanns til að hreppa þá viku sem hann velur því nú gildir reglan: fyrstur kemur - fyrstur fær. Að sjálfsögðu verður hann þó fyrir punktafrádrætti á sama hátt og þeir félagsmenn sem fengu viku sinni úthlutað.

Hægt er að sjá lausar vikur með því að smella á meira.

Nafn V.f Dags.frá V.t Dags.til
Hraunborgir, Húsasund 16 fös 25.5.2007 fös 1.6.2007
Ölfusborgir, hús nr. 11 fös 25.5.2007 fös 1.6.2007
Íbúð að Furulundi 8a, Akureyri fös 1.6.2007 fös 8.6.2007
Íbúð að Furulundi 8e, Akureyri fös 1.6.2007 fös 8.6.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 1.6.2007 fös 8.6.2007
Hraunborgir, Húsasund 16 fös 1.6.2007 fös 8.6.2007
Íbúð að Furulundi 8a, Akureyri fös 8.6.2007 fös 15.6.2007
Íbúð að Furulundi 8e, Akureyri fös 8.6.2007 fös 15.6.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 8.6.2007 fös 15.6.2007
Hraunborgir, Húsasund 16 fös 8.6.2007 fös 15.6.2007
Ölfusborgir, hús nr. 11 fös 8.6.2007 fös 15.6.2007
Orlofshús nr. 1 á Eiðum fös 15.6.2007 fös 22.6.2007
Íbúð að Furulundi 8a, Akureyri fös 22.6.2007 fös 29.6.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 22.6.2007 fös 29.6.2007
Hraunborgir, Húsasund 16 fös 22.6.2007 fös 29.6.2007
Bláfell, Koðrabúðum, Biskupstu fös 22.6.2007 fös 29.6.2007
Raðhús, Laufásvegi 31, Stykkis fös 22.6.2007 fös 29.6.2007
Svínadalur, Bláskógar 12 fös 22.6.2007 fös 29.6.2007
Orlofshús nr. 1 á Eiðum fös 13.7.2007 fös 20.7.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 13.7.2007 fös 20.7.2007
Orlofshús nr. 1 á Eiðum fös 20.7.2007 fös 27.7.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 27.7.2007 fös 3.8.2007
Íbúð að Furulundi 8e, Akureyri fös 10.8.2007 fös 17.8.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 10.8.2007 fös 17.8.2007
Íbúð að Furulundi 8a, Akureyri fös 17.8.2007 fös 24.8.2007
Íbúð að Furulundi 8e, Akureyri fös 17.8.2007 fös 24.8.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 17.8.2007 fös 24.8.2007
Hraunborgir, Húsasund 16 fös 17.8.2007 fös 24.8.2007
Svínadalur, Bláskógar 12 fös 17.8.2007 fös 24.8.2007
Ölfusborgir, hús nr. 11 fös 17.8.2007 fös 24.8.2007
Íbúð að Furulundi 8e, Akureyri fös 24.8.2007 fös 31.8.2007
Íbúð að Furulundi 8i, Akureyri fös 24.8.2007 fös 31.8.2007
Hraunborgir, Húsasund 16 fös 24.8.2007 fös 31.8.2007
Raðhús, Laufásvegi 31, Stykkis fös 24.8.2007 fös 31.8.2007
Svínadalur, Bláskógar 12 fös 24.8.2007 fös 31.8.2007
Ölfusborgir, hús nr. 11 fös 24.8.2007 fös 31.8.2007
Hraunborgir, Húsasund 16 fös 31.8.2007 fös 7.9.2007
Svínadalur, Bláskógar 12 fös 31.8.2007 fös 7.9.2007
 
 
 
11
May

Verkalýðsfélag Akraness rannsakar félagslegt undirboð

Eins og margoft hefur komið fram hér á heimsíðunni þá heldur VLFA úti öflugu eftirliti með okkar félagssvæði.  Er það gert til að tryggja að félagsleg undirboð séu ekki viðhöfð á okkar svæði.  Einnig er þetta eftirlit nauðsynlegt til að tryggja að samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem hér starfa verði ekki raskað vegna félagslegra undirboða sem einstaka atvinnurekendur ástunda því miður, dæmin sanna það svo sannarlega.

Þessa dagana vinnur Verkalýðsfélag Akranes að því að kanna íslenskt fyrirtæki sem hefur töluverðan fjölda Litháa í vinnu samkvæmt upplýsingum sem félagið hefur fengið.  Formaður fór og hitti þrjá Lithána sem eru að starfa hjá þessu áðurnefnda íslenska fyrirtæki en þeir eru að reisa hér stórt og mikið iðnaðarhúsnæði hér á Akranesi.

Litháarnir tjáðu formanni það að þeir væru búnir að vera starfandi hér á landi á annað ár og síðast hafi þeir verið að störfum í Reykjanesbæ.  Það er ekkert til um þessa menn hjá íslenskum yfirvöldum, þeir eru ekki með kennitölur og ekki hefur verið skilað ráðningarsamningum af mönnum né þeir skráðir á nokkrun hátt hjá Vinnumálastofnun eins og lögin kveða skýrt á um.

Það lítur út fyrir að Liháarnir séu að starfa eftir lögum um starfskjör starfsmanna sem starfa tímabundið á Íslandi á vegum erlendra fyrirtækja.  Vinnumálastofnun er að kalla eftir hinum ýmsu göngum um málið frá þessu umrædda íslenska fyrirtæki.   Íslenska fyrirtækið greiðir einhverju Litháísku fyrirtæki eina greiðslu mánaðarlega. Litháíska fyrirtækið sér síðan um að greiða mönnunum laun.  Við höfum enga vitneskju hvort farið sé eftir lögum hvað varðar laun til Litháanna. 

Aðalmálið er að af öllum þeim Litháum sem hér starfa eru grunsemdir um að ekki séu greidd nein opinber gjöld og það skekkir klárleg samkeppnisstöðu annarra íslenskra fyrirtækja. Einnig er rétt að hafa í huga hvernig við Íslendingar eigum að halda út öflugu velferðarsamfélagi ef fyrirtæki ætla að koma sér hjá því að greiða opinber gjöld af sínum erlendu starfsmönnum eins og greinilega er gert í þessu máli.

10
May

Endurúthlutun sumarsins 2007 er nú lokið

Nú er endurúthlutun vegna sumarsins 2007 lokið. Allir þeir sem ekki fengu úthlutað í fyrri úthlutun áttu umsókn í endurúthlutun auk þeirra sem lagt hafa inn umsókn á skrifstofu félagsins á undanförnum dögum. Þeir sem fengu úthlutað í endurúthlutuninni hafa nú fengið sent bréf þar sem þeim er tilkynnt um það hvaða viku þeir fengu og hvernig á að ganga frá greiðslu.

Eindagi endurúthlutunar er 16. maí og eftir það verður hægt að bóka ógreiddar vikur.

Á skrifstofu félagsins er verið að ganga frá lista yfir þær vikur sem ekki var úthlutað og verður hann auglýstur hér á heimasíðunni á mánudagsmorgun 14. maí. Frá þeim tíma geta félagsmenn haft samband við skrifstofu og bókað lausar vikur af listanum. Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.

09
May

Fréttablað félagsins kom út rétt fyrir 1. maí

Rétt fyrir 1. maí sl. kom fréttablað félagsins út og var það borið út í öll hús hér á Akranesi og einnig í nærsveitir.  Félagið gefur árlega út tvö fréttablöð, annars vegar rétt fyrir 1. maí og hins vegar rétt fyrir jól.  Fréttablað félagsins hefur fengið mjög góð viðbrögð frá okkar félagsmönnum.  Þessi góðu viðbrögð lúta að útgáfu fréttablaðsins sem og öðru því sem stjórn félagsins hefur verið að vinna að á undanförnum þremur árum.  Þessi viðbrögð eru stjórn félagsins hvatning til að halda áfram á þeirri braut uppbyggingar sem stjórn félagsins hefur verið að vinna að frá því hún tók við Verkalýðfélagi Akraness 19. nóvember 2003.  Hægt er lesa fréttablaðið hér

07
May

Réttindi úr sjúkrasjóði félagsins stóraukin

Á síðasta aðalfundi var samþykkt að auka verulega við þá styrki sem sjúkrasjóður félagsins býður sínum félagsmönnum.  Á fundinum var t.d. samþykkt að taka fimm nýja styrki inn og var það gert vegna góðrar afkomu sjóðsins.  Þessi fjölgun á styrkveitingum til félagsmanna er einnig einn liður í því að láta félagsmenn njóta ávinnings af góðri afkomu félagsins.

Þeir styrkir sem nú standa fullgildum félagsmönnum til boða eru eftirfarandi:

  • 80% af launum eftir að greiðsluskyldu atvinnurekanda lýkur
  • Styrkur vegna glasa-, tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar
  • Styrkur vegna sjúkranudds/ sjúkraþjálfunar
  • Styrkur vegna krabbameinsskoðunar
  • Styrkur vegna skoðunar hjá Hjartavernd
  • Styrkur vegna heyrnatækjakaupa
  • Styrkur vegna gleraugnakaupa
  • Styrkur vegna heilsueflingar
  • Útfararstyrkur
  • Fæðingarstyrkur

Þessi listi er ekki tæmandi yfir þá styrki sem eru í boði hjá félaginu 

Stjórn félagsins skorar á félagsmenn að kynna sér vel hvaða réttindi þeir eiga hjá félaginu og eru einnig hvattir til að hafa samband við skrifstofu félagsins til að fá nánari upplýsingar sé þess þörf.

04
May

Tveir pólskir verkamenn fá vel á annað hundrað þúsund krónur í leiðréttingu á launum sínum

Í dag gekk félagið frá leiðréttingu á launum fyrir tvo pólska verkamenn og nam leiðréttingin tæpum 100.000 á hvorn fyrir sig eða samtals um 200 þúsund krónur. Tímabilið sem umrædd leiðrétting nær til er um fjórir vinnumánuðir. 

Pólsku verkamennirnir leituðu til Verkalýðsfélags Akraness eftir að þeir létu af störfum hjá fyrirtæki sem kemur af höfuðborgarsvæðinu.  Þeir leituðu til félagsins vegna grunsemda um að þeim hafi ekki verið greidd laun í samræmi við íslenska kjarasamninga.

Tímakaupið sem þeir fengu greitt var einungis 648 kr. í dagvinnu og 1.166 kr í yfirvinnu en hér er um að ræða sérhæfða byggingaverkamenn með áratuga langa reynslu í þeim efnum.  Það vantaði því 13,5% uppá laun pólsku verkamannanna til að þau uppfylltu einungis lágmarkstaxta kjarasamninga.

Eins og áður sagði þá náði félagið sátt við fyrirtækið og greiðsla vegna þessa vanefnda hefur nú þegar borist.

Þetta sýnir okkur að stéttarfélögin verða að halda vöku sinni fyrir þeim félagslegu undirboðum sem því miður eru alltof algeng eins og dæmin sanna svo rækilega.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image