• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
29
Jan

10,3 milljónir greiddar úr sjúrka-og fræðslusjóðum VLFA til félagsmanna í janúar

Það er óhætt að fullyrða að í aðild að öflugu stéttarfélagi er fólgin umtalsverð tryggingar- og réttindavernd sem og aðgengi að fræðslusjóðum sem stéttarfélögin eru aðilar að.

Núna um þessi mánaðarmót eða nánar tiltekið fyrir janúarmánuð greiðir Verkalýðsfélag Akraness út til félagsmanna 10,3 milljónir vegna réttinda sem þeir eiga í sjúkra- og fræðslusjóðum félagsins. 6,2 milljónir eru vegna ýmissa réttinda sem félagsmenn eiga úr sjúkrasjóði eins og sjúkradagpeninga og annarra styrkja sem félagið býður félagsmönnum uppá.

3,1 milljón er greidd í umræddum mánuði úr fræðslusjóðum sem félagið er aðili að vegna námskeiða og skólagjalda sem okkar félagsmenn eru að sækja.

Það er engum vafa undirorpið hversu mikilvæg stéttarfélögin eru fyrir félagsmenn og á það jafnt við þegar kemur að greiðslum úr þeim fjölmörgu sjóðum sem félagsmenn eiga réttindi í sem og þegar félagsmenn vilja auka færni sína eða menntun með fjárhagsaðstoð frá fræðslusjóðunum. Að ógleymdu hinu mikilvæga starfi sem stéttarfélögin gegna sem lýtur að því að verja og vernda launakjör og kjarasamninga sinna félagsmanna.

26
Jan

NTV starfsmiðuð fjarnámskeið fyrir félagsmenn okkar

Kæru félagsmenn, endilega skoðið starfsmiðuð fjarnámskeið NTVað fullu fjármögnuð af starfsmenntasjóðum sem hefjast í byrjun febrúarmánaðar.

Gerður hefur verið samningur milli NTV skólans og starfsmenntasjóðanna Landsmennt, Sjómennt, Sveitamennt og Ríkismennt um að bjóða aðildarfélögum sjóðanna fulla fjármögnun á 6 námskeiðum/námsleiðum sem allt eru starfsþróunarmiðuð og verkefnadrifin. 

Námskeiðin sem um ræðir eru:
Bókhald Grunnur - 8 vikur (120 kes.)
Digital marketing - 7 vikur (112 kes.)
Frá hugmynd að eigin rekstri - 5 vikur (75 kes.)
App og vefhönnun - 6 vikur (90 kes.)
Vefsíðugerð í WordPress - 4 vikur (50 kes.)
Skrifstofu og tölvufærni - 6 vikur (96 kes.) 

Nánari upplýsingar um námskeiðin má finn áhttp://www.ntv.is/is/um-ntv/yfirlit-flokka/view/stettarfelags-namskeid

 

Við hvetjum félagsmenn okkar til að nýta sér þessi námskeið , hér er hægt að skrá sig : http://www.ntv.is/is/namskeid/nam-i-bodi-stettarfelags

25
Jan

Fundað um nýjan kjarasamning við Elkem Ísland

Samninganefndir stéttarfélaganna sem eiga aðild að kjarasamningi Elkem Ísland á Grundartanga komu saman til fundar með forsvarsmönnum fyrirtækisins á síðasta miðvikudag, en eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá rann kjarasamningur starfsmanna út um síðustu áramót.

Á fundinum var klárað að samlesa allar kjarasamningsgreinar samningsins og bera þær saman við kjarasamninga í sambærilegum iðnaði og yfirfara bókanir og yfirlýsingar með það að markmiði að setja þær inn í kjarasamninginn þar sem það á við sem og að henda þeim bókunum sem ekki eiga við lengur.

Ekki var á þessum fundi farið yfir kröfugerð eða hugmyndir stéttarfélaganna að launabreytingum en ljóst er að krafan lýtur að því að launabreytingar og kjör verði ekki lakari en samið var um í kjarasamningi Norðuráls nýverið. 

Það er sameiginlegur skilningur samningsaðila að kjarasamningurinn gildi frá þeim tíma sem hann rann út eða nánar tilgetið frá 1. janúar 2021 og því eru samningsaðilar sammála að taka sér þann tíma sem til þarf við að ná fram nýjum kjarasamningi.  Vissulega er mikilvægt að hraða þeirri vinnu eins og kostur  er til að starfsmann fái notið þeirra launabreytinga sem kveðið verður á um í samningum sem fyrst.

19
Jan

Ætlar Samband íslenskra sveitafélaga ekki að fara eftir skattalögum?

Í kjarasamningum sem undirritaðir voru í fyrra á milli Verkalýðsfélags Akraness og Samband íslenskra sveitarfélaga var samið um að allir starfsmenn sem heyrðu undir kjarasamning félagsins og starfa hjá Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit og hjúkrunar-og dvalarheimilinu Höfða ættu rétt á greiðslu 1. febrúar ár hvert sem næmi 1,5% af heildarlaunum starfsmanns.

En þessi greiðsla kom til vegna þess samningsatriðis sem laut að jöfnun lífeyrisréttinda milli almenna vinnumarkaðarins og opinbera markaðarins, en það hallaði á starfsmenn sem unnu hjá sveitarfélögunum sem nam 1,5%.

Í fyrstu samdi VLFA við Samband íslenskra sveitarfélaga um að hækka launatöflur um þessi 1,5% umfram almenna launahækkanir.

Frá þessari leið var horfið vegna þess að Samband íslenskra sveitarfélaga óttaðist að opinberu félögin myndu einnig krefjast þess að fá hækkun á sínum launatöflum um 1,5% þrátt fyrir að eiga ekki rétt á því vegna þess að þessi hækkun var leiðrétting á lífeyrisréttindum milli opinbera markaðarins og almenna. Samband íslenskra sveitarfélaga lagði hart að VLFA að greiða frekar þessi 1,5% einu sinni á ári með því að stofna svokallaðan Félagsmannasjóð m.a. til að lágmarka ágreining við opinberu félögin um þetta 1,5%.

Það var meinlaust af hálfu VLFA að fara þessa leið enda átti að vera gulltryggt að starfsmenn myndu fá fulla greiðslu sem næmi þessu 1,5% af heildarlaunum sínum greitt einu sinni á ári og tryggt væri að sveitarfélögin myndu eðli málsins samkvæmt sjá alfarið um útgreiðslu til starfsmanna.

Núna hefur hins vegar það gerst að Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gert samkomulag við stóran hluta af verklýðshreyfingunni um að greiða þessi 1,5% inn í einhvern Félagsmannasjóð sem er á forræði verkalýðshreyfingarinnar, sem sér síðan um að greiða út til starfsmanna sveitarfélaganna einu sinni á ári.

Verkalýðsfélag Akraness hefur ætíð alfarið hafnað þessari aðferðafræði, enda er það mat félagsins að þessi gjörningur standist hvorki skattalög né lög um lífeyrisréttindi. Enda er ekki tekin staðgreiðsla, tryggingargjald né mótframlag í lífeyrissjóði af þessu 1,5% eins og lög kveða skýrt á um að eigi að gera varðandi allar launagreiðslur.

Það er umhugsunarefni að af öllum sé Samband íslenskra sveitarfélaga og verkalýðshreyfingin í samkrulli um að finna leiðir til að koma sér hjá greiðslu opinberra gjalda, enda skýrt kveðið á um að greiða þarf opinber gjöld af öllum launagreiðslum.

VLFA hefur eins og áður sagt neitað alfarið að fara þessa leið og hefur bæði komið þeim skilaboðum til Sambands íslenskra sveitarfélaga sem og Akraneskaupstaðar. Einnig hefur félagið talað við ríkisskattstjóra til að kanna hvort félagið hafi skattalega heimild til að framkvæma þessar launagreiðslur án þess að af þeim séu dregin þau opinberu gjöld sem kveðið er á um í skattalögum.

Í samtali VLFA við ríkisskattstjóra sem byggðist á því að fá upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig eigi að meðhöndla þessar launagreiðslur til starfsmanna sveitarfélaganna. VLFA gat ekki skilið annað á fulltrúa frá RSK að þeir leggja sama skilning og VLFA gerir í þessu máli, þ.e.a.s. að þessi framkvæmd standist ekki skattalög. Formaður veit ekki annað en að RSK ætli að óska eftir skýringum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og verkalýðshreyfingunni um framkvæmd á þessari útgreiðslu á 1,5% af heildarlaunum starfsmanna sveitarfélaga.

Verkalýðsfélag Akraness hefur alltaf sagt bæði við fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga sem og fulltrúa Akraneskaupstaðar að félagið sé ekki að fara að gerast launagreiðandi fyrir sveitarfélögin. Og þaðan að síður að taka þátt í því að meðhöndla launagreiðslur upp á marga milljarða án þess að greitt sé að þeim öll þau launatengdu gjöld sem lög á Íslandi kveða skýrt á um.

 

Félagið hefur á liðnum mánuðum átt í samtali við samningsaðila um lausn á þessu máli en nú eru einungis örfáir dagar þar til útgreiðsla á þessu 1,5% á að berast til starfsmanna og mikilvægt að sú greiðsla berist starfsmönnum eins og lög og kjarasamningar kveður á um.

 

Formaður hefur upplýst kjörna fulltrúa um stöðuna á þessum ágreiningi því á endanum eru það kjörnir fulltrúar sem bera ábygð á því að kjarasamningar og skattalög séu virkt í þessu mikla hagsmunamáli.

14
Jan

Samningafundur um nýjan kjarasamning við Elkem Ísland

Viðræður um nýjan kjarasamning milli þeirra stéttarfélaga sem eiga aðild að kjarasamningi Elkem Ísland á Grundartanga eru komnar á fullt skrið. Í morgun var haldinn fundur í fundarsal Verkalýðsfélags Akraness.

Á þessum fundi var verið að lesa yfir allar samningsgreinar í samningum því sumar greinar samningsins eiga ekki lengur við. Ekki er farið að ræða að neinu marki launalið samningsins en þó er ljóst að ekki verður samið um minni launabreytingar en um var samið í kjarasamningi Norðuráls á síðasta ári.

Næsti samningafundur hefur verið bókaður á næsta miðvikudag og á þeim fundi er stefnt að því að klára yfirlestur á kjarasamningnum.

               

07
Jan

Félags-og barnamálaráðherra í heimsókn á skrifstofu félagsins

Ásmundur Einar Daðason félags-og barnamálaráðherra kom í heimsókn á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness og áttu formaður félagsins og ráðherrann gott samtal um málefni er lúta að hagsmunum launafólks og stöðunni á íslenskum vinnumarkaði.

Þetta var góður fundur en samskipti VLFA við félagsmálaráðherra hafa ætíð verið góð, en ráðherrann hefur verið duglegur að kíkja í heimsókn á liðnum árum á skrifstofu félagsins, til að fara yfir stöðuna á vinnumarkaðnum og eftirfylgni á þeim atriðum sem lutu að stuðningi stjórnvalda samhliða gerð Lífskjarasamningsins.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image