Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.

Eins og flestir vita þá lagði Starfsgreinasamband Íslands fram kröfugerð sína síðastliðinn mánudag. Kröfugerð sem byggist á því að innan þriggja ára verði lágmarkstaxti verkafólks orðinn 300.000 kr. Þetta er sanngjörn krafa sem byggist á því að stíga jöfn og þétt skref í átt að þvi að lágmarkslaun dugi fyrir þeim framfærsluviðmiðum sem hið opinbera hefur gefið út og að verkafólk geti haldið mannlegri reisn.
Formaður félagsins mun funda með Eygló Harðardóttur, félags- og velferðarráðherra, á morgun og hefst fundurinn kl. 10. Það verða næg umræðuefni við ráðherrann enda er málaflokkur félagsmálaráðherra afar víðtækur og tengist ýmsum hagsmunum íslensks verkafólks og þeirra sem minna mega sín í íslensku samfélagi.
Í gær var fundur hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu Norðuráls og er skemmst frá því að segja að lítið þokast áfram í þeirri deilu. Enda ber gjörsamlega himinn og haf á milli deiluaðila í þessari deilu. Formaður hefur sagt í gegnum árin að fyrirtæki eins og Norðurál sem býr við góð rekstrarskilyrði, hefur ætíð skilað góðri afkomu og er með hvað lægstu launagreiðslur af heildarveltu á íslenskum vinnumarkaði á og ber skylda til að skila slíkum ávinningi til starfsmanna fyrirtækisins.
Félagsskírteini ársins 2015 eru nú farin í póst til félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness og ættu því að berast þeim á næstu dögum. Með skírteinunum fylgja yfirlit um greidd félagsgjöld árið 2014. Dagbók félagsins er einnig á leið úr prentun og hægt verður að nálgast eintak af henni á skrifstofu félagsins í næstu viku.