Rétt í þessu lauk fundi Verkalýðsfélags Akraness og trúnaðarmanna HB Granda með forsvarsmönnum HB Granda. VLFA og trúnaðarmenn lögðu til við forsvarsmenn fyrirtækisins að þeir myndu fresta áformum um að hætta landvinnslu á Akranesi og hefja viðræður við bæjaryfirvöld á Akranesi á grundvelli viljayfirlýsingar sem bæjaryfirvöld gáfu út í gær. Það er skemmst frá því að segja að forsvarsmenn fyrirtækisins tóku jákvætt í þessa hugmynd og voru tilbúnir til að hefja viðræður við Akraneskaupstað á grundvelli viljayfirlýsingarinnar. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem aðilar gáfu út kemur fram að ef þessar viðræður við Akraneskaupstað, Faxaflóahafnir og aðra aðila sem tengjast málinu munu ekki verða með jákvæðum hætti að mati fyrirtækisins, þá muni landvinnsla á Akranesi hætta 1. september á þessu ári.