• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
02
Mar

Páskar í orlofshúsum félagsins 2026

Vekjum athygli félagsmanna á að við erum að taka á móti umsóknum vegna leigu orlofshúsa um páska 2026.

Páskavikan er leigð út í heilu lagi, frá miðvikudegi til miðvikudags.

Dregið er úr umsóknum 10. mars.

Opið er fyrir umsóknir 2.- 8. mars.

Þar sem mikil ásókn í dvöl í orlofshúsum um páska er sá háttur hafður á að þeir sem hafa áhuga á dvöl þessa viku leggja inn umsókn.

Dregið er úr umsóknum af handahófi, þannig að allir eiga jafnan möguleika. Einn pottur er fyrir hvert orlofshús og hægt er að sækja um á ákveðnum stöðum eða þeim öllum.

Til að komast í pottinn þá þarf að hafa samband við skrifstofu í síma 430-9900 eða senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tilgreina hvaða hús sótt er um auk nafns, kennitölu og símanúmers.

Hringt er í þann sem dreginn er út og vilji hann ekki nýta sér vikuna, er dregið aftur.

Punktastaða skiptir ekki máli og ekki eru dregnir af punktar við úthlutun. 

Greiða þarf leigu strax. 

Verð fyrir vikuleigu um páska:

  • Efstiás í Svínadal - 28.000 kr.
  • Bláskógar í Svínadal - 28.000 kr.
  • Ásendi 10 í Húsafelli - 28.000 kr.
  • Hraunbrekkur 2 í Húsafelli - 28.000 kr.
  • Ásendi 9 í Húsafelli - 30.000 kr.
  • Birkihlíð 6 í Húsafelli - 30.000 kr.
  • Birkihlíð 11 í Húsafelli - 30.000 kr.
  • Hraunborgir - 28.000 kr.
  • Berjabraut í Kjós - 30.000 kr.
  • Hornsteinn við Glym í Hvalfirði - 30.000 kr.
  • Íbúð á Akureyri - 28.000 kr. 

 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image