• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
27
Feb

Formaður VLFA og SGS gestur á fundi eldri sjálfstæðismanna í Vallhöll

Formanni Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambands Íslands var boðið að vera gestur á fundi eldri flokksmanna Sjálfstæðisflokkurinn í Vallhöll síðastliðinn þriðjudag.

Á fundinum hélt formaðurinn um 30 mínútna ræðu þar sem hann fjallaði um stöðu launafólks, mikilvægi sterkrar verkalýðshreyfingar og þau verkefni sem fram undan eru í kjaramálum og félagsmálum. Í ræðunni var einnig komið inn á efnahagsástandið, stöðu heimilanna og þær áskoranir sem blasa við á vinnumarkaði.

Að lokinni ræðu tók formaðurinn við fjölmörgum fyrirspurnum úr sal og skapaðist lífleg og málefnaleg umræða. Umtalsverður fjöldi sótti fundinn og var þátttaka og áhugi fundargesta greinilegur.

VLFA þakkar fyrir boðið og tækifærið til að eiga opið og uppbyggilegt samtal um hagsmunamál launafólks.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image