• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Sjómenn, til hamingju með daginn! Frá vinstri: Vilhjálmur Birgisson, Hallgrímur Þór Hallgrímsson, séra Eðvarð Ingólfsson, Kristófer Jónsson og Haraldur Jónsson
07
Jun

Sjómenn, til hamingju með daginn!

Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag um allt land. Í hátíðarguðþjónustu í Akraneskirkju í morgun hlaut Hallgrímur Þór Hallgrímsson heiðursmerki fyrir vel unnin störf, en Hallgrímur sinnti sjómennsku allan sinn starfsaldur.

Að aflokinni guðsþjónustu var haldið að Akratorgi þar sem blómsveigur var lagður að minnismerki sem þar stendur um týnda sjómenn. Frekari upplýsingar um dagskrá sjómannadagsins á Akranesi má finna hér.

Stjórn og starfsfólk Verkalýðsfélags Akraness færa sjómönnum landsins og fjölskyldum þeirra innilegar hamingjuóskir í tilefni sjómannadagsins.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image