• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Verkalýðsfélag Akraness kveður Magnús Pétursson ríkissáttasemjara Vilhjálmur Birgisson afhendir Magnúsi Péturssyni kveðjugjöf frá VLFA
29
May

Verkalýðsfélag Akraness kveður Magnús Pétursson ríkissáttasemjara

Nú liggur fyrir að Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari, er að láta af störfum og í tilefni þess ákvað formaður Verkalýðsfélags Akraness að afhenda ríkissáttasemjara smá gjöf frá félaginu. Meðal annars fékk hann veglegan blómvönd og Vilko vöffluduft ásamt smá drykk til að skola því niður með. Vöffluduftið getur Magnús notað þegar hann vill rifja upp góða tíma úr Karphúsinu en það er morgunljóst að Magnús hefur verið afar farsæll í starfi sem ríkissáttasemjari og munu margir sakna hans enda hefur hann staðið sig með afbrigðum vel í þessu mjög svo vandasama og erfiða starfi. 

Formaður Verkalýðsfélags Akraness vill fyrir hönd félagsmanna þakka Magnúsi kærlega fyrir farsælt og ánægjulegt samstarf á liðnum árum með ósk um góða tíma og velferð á komandi árum. 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image