• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
29
Apr

Félagsmenn, munið aðalfundinn í kvöld!

 Félagsmenn, munið eftir aðalfundi félagsins sem haldinn verður á Gamla Kaupfélaginu í kvöld kl. 18:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og að þeim loknum verður fundargestum boðið upp á kvöldverð. 

Á aðalfund eru velkomnir allir félagsmenn, úr öllum deildum félagsins og er mæting á aðalfund gott tækifæri til að fá innsýn í starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Aðalfundur er æðsta vald félagsins og eru ýmis mál á dagskrá fundarins, meðal annars breyting á reglugerð vinnudeilusjóðs en allt stefnir í að vegna boðaðra verkfalla þurfi að úthluta úr honum til félagsmanna sem leggja niður störf í verkfalli.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka þannig virkan þátt í starfi félagsins.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image