• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Formaður Framsýnar stéttarfélags í heimsókn Kristbjörg Sigurðardóttir, Vilhjálmur Birgisson og Aðalsteinn Árni Baldursson
05
Feb

Formaður Framsýnar stéttarfélags í heimsókn

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags á Húsavík, kom í heimsókn á skrifstofu félagsins síðastliðinn þriðjudag ásamt Kristbjörgu Sigurðar, fv. varaformanni Framsýnar, en mjög náið og gott samstarf hefur verið með þessum tveimur stéttarfélögum í gegnum árin.

Það liggur fyrir að mikill samhljómur hefur verið í áherslum og baráttu fyrir bættum hag alþýðunnar hjá þessum félögum. Í þessari heimsókn var mikið rætt um komandi kjarasamninga og morgunljóst að bæði þessi félög vilja að látið verði sverfa til stáls ef atvinnurekendur sjá ekki að sér og ganga að afar sanngjarnri kröfu stéttarfélaganna um að launataxtar verkafólks dugi fyrir lágmarksframfærslu sem hið opinbera hefur gefið út.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image