• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Verkalýðsfélag Akraness gefur leikskólabörnum á Akranesi harðfisk Mynd frá sjómannadeginum 2015, Dagný Allansdóttir fær harðfisk hjá afa sínum, Vilhjálmi Birgissyni.
03
Jun

Verkalýðsfélag Akraness gefur leikskólabörnum á Akranesi harðfisk

Í dag heimsótti Júlíus Pétur Ingólfsson, stjórnarmaður í Verkalýðsfélagi Akraness, alla leikskólana á Akranesi sem eru Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel. Tilefni heimsóknanna var Sjómannadagurinn sem er næstkomandi sunnudag en það er hefð hjá Verkalýðsfélagi Akraness að heimsækja öll leikskólabörn og gefa þeim harðfisk í tilefni dagsins.

Stjórn félagsins er það mikill heiður að geta glatt leikskólabörn á Akranesi með þessum hætti og minnt þau á mikilvægi sjómannsstarfsins. Það skein mikil gleði úr hverju andliti og kunnu börnin svo sannarlega að þakka fyrir sig.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image