• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
05
Feb

Yfirlýsing VLFA vegna yfirlýsingar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Hún er mögnuð yfirlýsingin frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem birtist í dag um að það hafi verið algjört aukaatriði að Salek samkomulagið í heild sinni þyrfti að fylgja með sem fylgiskjal með nýgerðum kjarasamningi við Verkalýðsfélag Akraness. Þetta eru gjörsamlega nýjar fréttir fyrir formann Verkalýðsfélags Akraness því félagið er með bréf frá Sambandinu frá því í nóvember í fyrra þar sem kemur hvellskýrt fram að félagið verði að skrifa undir með nákvæmlega sama hætti og önnur stéttarfélög og Salek samkomulagið verði með sem fylgiskjal. Já, þetta er "núna" orðið að aukaatriði að Salek samkomulagið verði gert að ígildi kjarasamnings enda staðfesti Félagsdómur það að ef Salek samkomulagið færi með sem fylgiskjal á væri það orðið að ígildi kjarasamnings. Öllu má nú nafn gefa hvað "aukaatriði" þýðir. En þetta var ætíð skýlaus krafa af hálfu Sambandsins um að allt Salek samkomulagið yrði gert að kjarasamningsígildi en núna þegar Samband íslenskra sveitafélaga hefur þurft að lúffa þá er þetta orðið að aukaatriði. Hjákátlegur málflutningur enda veit þetta fólk betur. 

Málið er að það var aldrei ágreiningur um þær launabreytingar sem í boði voru eins og fram kemur í bréfi og tilboði sem Verkalýðsfélag Akraness sendi Sambandi íslenskra sveitarfélaga 24. nóvember 2015 heldur snerist ágreiningurinn um þá kröfu Sambandsins um að Salek samkomulagið í heild sinni yrði með sem hluti af kjarasamningnum. VLFA sagði að það myndi aldrei koma til greina að binda aðra kjarasamninga sem félagið ætti eftir að gera og það kæmi heldur ekki til greina að samþykkja að tekið yrði upp nýtt vinnumarkaðasmódel þar sem stofnað yrði þjóðhagsráð sem mundi ákvarða allar launabreytingar eftir árið 2018. Með slíku væri verið að skerða og takmarka samningsfrelsi stéttarfélaga gróflega enda væri slíkt andstætt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur.

Í ljósi þess að ekki var neinn ágreiningur um launabreytingar í samningnum og fylgiskjalið var farið út þá gat Verkalýðsfélag Akraness skrifað undir samninginn enda stóð ágreiningurinn um Salek samkomulagið í held sinni. Takið líka eftir að inngangurinn í kjarasamningi Verkalýðsfélags Akraness er alls ekki sá sami og í öllum öðrum samningum sem sambandið hefur gert hingað til. Í inngangi kjarasamnings VLFA við Samband íslenskra sveitarfélaga segir orðrétt:  

"Kjarasamningur þessi byggir á þeirri launastefnu sem lagður var grunnur að í 2.gr. í rammasamkomulagi milli aðila vinnumarkaðar undirritað var 27. október."

Takið eftir, í inngangnum segir kjarasamningur þessi sem þýðir að þessar launabreytingar ná bara til þessa samnings en ekki annara sem VLFA á eftir að gera og um það snerist okkar deila, að verið væri að binda aðra kjarasamninga sem félagið ætti eftir ógerða og líka að láta Salek samkomulagið verða ígildi kjarasamnings með því að hengja það með. En núna koma þessir snillingar eftir að hafa verið rassskelltir og segja að það hafi verið aukaatriði að Salek samkomulagið hafi þurft að fylgja með í heild sinni. Lágkúra þessa ágæta fólks ríður ekki við einteyming. 

En takið líka eftir að inngangur í öllum hinum 45 kjarasamningunum sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gert hljóðar með allt öðrum hætti en inngangurinn í kjarasamningi VLFA, hjá hinum 45 félögunum hljóðar inngangurinn orðrétt svona:  

"Aðilar eru sammála um að vinna samkvæmt þeirri launastefnu sem lagður var grunnur að með rammasamkomulagi milli aðila vinnumarkaðar, sem undirritað var 27. október 2015, sjá fylgiskjal III".

Hér eru himinn og haf á milli en þarna segja menn að þeir séu sammála um að vinna samkvæmt launastefnunni sem rammasamkomulagið segir til um og þar er að sjálfsögðu átt við aðra samninga sem á eftir að gera. Á þessum tveimur inngöngum í kjarasamningunum er grundvallarmunur enda segir eins og áður hefur komið fram í inngangnum í kjarasamningi við Verkalýðsfélag Akraness að launabreytingar nái einungis til þessa umrædda samnings. 

Samband íslenskra sveitarfélaga er á flótta undan eigin gjörðum, mætti fyrir Félagsdóm eiðsvarið og sagði ósatt. Þau ósannindi byggðust á því að draga til baka fyrri orð um að rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins væru skuldbindandi fyrir Verkalýðsfélag Akraness og að það hafi ekki verið skýlaus krafa að rammasamkomulagið fylgdi með. Þetta gerðu þau þrátt fyrir að fyrirliggjandi væru gögn sem staðfestu hið gagnstæða. Að sjálfsögðu líður fólki illa eftir að hafa þurft að hörfa frá því ofbeldi sem það ætlaði sér að beita með því að láta Salek samkomulagið verða ígildi kjarasamnings. En maður sér alltaf betur og betur að sannleikurinn virðist oft því miður vera "aukaatriði" hjá sumu fólki.  

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image