• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fundur með starfsmönnum Sjúkrahúss Akraness Þessi mynd var tekin á fundi með starfsmönnum Sjúkrahúss Akraness árið 2007
01
Nov

Fundur með starfsmönnum Sjúkrahúss Akraness

Í morgun fundaði formaður félagsins með starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands hér á Akranesi og var fundarefnið ýmis mál er lúta að réttindum starfsmanna stofnunarinnar. Þetta var góður fundur þar sem margt bar á góma, t.d. fór formaður yfir þau réttindi sem starfsmenn eiga hjá stéttarfélaginu og einnig var farið yfir stöðu dómsmáls sem félagið rekur nú fyrir félagsdómi og varðar réttindi starfsmanna HVE á Akranesi. En fram kom í máli formanns að dómsniðurstöðu sé að vænta innan örfárra daga í því máli.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands, eins og aðrar stofnanir hér á landi, hefur þurft að þola mikinn niðurskurð sem leitt hefur af sér umtalsverða fækkun á starfsfólki. Það hefur síðan haft þær afleiðingar að mun meira álag er á þá starfsmenn sem eftir eru og var ljóst í máli starfsmanna að komið sé að algjörum þolmörkum hvað varðar niðurskurð hjá stofnuninni.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image