• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
09
Jun

Fundur með starfsmönnum Norðuráls í kvöld

Verkalýðsfélag Akraness minnir á fund sem haldinn verður með starfsmönnum Norðuráls í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld, fimmtudag, kl. 20:30.

Á fundinum verður farið yfir þá grafalvarlegu stöðu sem upp er komin í kjaradeilu félagsins við Norðurál en nú er að verða hálft ár síðan launaliður samningsins rann út og ekkert þokast í viðræðum.

Félagið hvetur starfsmenn Norðuráls til að fjölmenna á þennan áríðandi fund og taka þátt í að ákveða hver næstu skref verða í þessari erfiðu deilu.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image