• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
27
Oct

Formaður félagsins hélt vinnustaðafund með starfsmönnum Norðuráls í gærkveldi

Formaður félagsins hélt vinnustaðafundi með tveimur vöktum C og D uppí Norðuráli í gærkveldi.  Tilgangur með þessum fundum var að heyra hljóðið í okkar félagsmönnum og kynna fyrir þeim gang viðræðna við forsvarsmenn Norðuráls.  Það eru miklar væntingar sem starfsmenn Norðuráls gera til nýs kjarasamnings, á því er enginn vafi.  Það var afar gagnlegt að heyra í starfsmönnunum og fá upplýsingar um hvað starfsmenn vilja leggja mestu áherslu á í komandi samningum.  Það er vilji formanns félagsins að vera í eins nánu sambandi við félagsmenn sína á meðan á samningagerð stendur eins og kostur er.  Næsti fundur við forsvarsmenn Norðuráls er á morgun kl 8:30

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image