• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Nýr starfsmaður á skrifstofu félagsins Dagbjört Guðmundsdóttir, nýr starfsmaður á skrifstofu félagsins
23
Sep

Nýr starfsmaður á skrifstofu félagsins

Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá var auglýst eftir nýjum starfskrafti í 50% starf vegna aukinna verkefna og það er skemmst frá því að segja að hvorki fleiri né færri en 25 umsóknir bárust. Það var gríðarlega erfitt að velja úr þeim góða hópi sem sótti um, en niðurstaða stjórnar félagsins var að ráða Dagbjörtu Guðmundsdóttur í starfið. Stjórn félagsins vill þakka öllum umsækjendum fyrir þann áhuga sem þeir sýndu starfinu með umsókn sinni.

Sl. mánudag hóf Dagbjört störf á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness og vill stjórn félagsins bjóða Dagbjörtu hjartanlega velkomna til starfa hjá félaginu og hlakkar til ánægjulegs samstarfs með henni í framtíðinni.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image