• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Góður fundur með nýkjörnum formanni VR Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og Kristinn Örn Jóhannsson formaður VR
17
Mar

Góður fundur með nýkjörnum formanni VR

Í gær kom nýkjörinn formaður VR, Kristinn Örn Jóhannsson, í heimsókn á skrifstofu félagsins og fundaði með formanni Verkalýðsfélags Akraness.

Fundurinn stóð í tæpa tvo tíma og var afar gaman og fróðlegt að heyra í Kristni og greinilegt var á máli hans að hann er fullur tilhlökkunar að takast á við það ábyrgðarmikla starf sem formennska í VR er.

Formaður félagsins ítrekaði hamingjuóskir með nýja embættið frá stjórn félagsins og færði Kristni blómvönd og bókina Með oddi og egg, sem fjallar um stéttarfélög á Íslandi. Þakkaði Kristinn kærlega fyrir þær móttökur sem hann fékk og vonaðist hann til að eiga gott samstarf við Verkalýðfélag Akraness í framtíðinni.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image