• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Nýr kjarasamningur starfsmanna Klafa í vinnslu Starfsmenn Klafa að kjósa um kjarasamninginn frá árinu 2005
10
Dec

Nýr kjarasamningur starfsmanna Klafa í vinnslu

Unnið er að því þessa dagana að klára samning fyrir starfsmenn Klafa en það eru starfsmenn sem starfa á höfninni á Grundartanga.  Verkalýðsfélag Akraness hefur lagt fram tilboð til Samtaka atvinnulífsins, en það tilboð byggist að meginhluta á þeim samningi sem félagið gerði fyrir starfsmenn Elkem.

Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni gefur kjarasamningur Elkem starfsmönnum umtalsverða hækkun á launum og hækkuðu heildarlaun byrjanda um 45.000 kr. og hjá starfsmanni eftir 10 ára starf um 57.000 kr. á mánuði.

Formaður og trúnaðarmaður starfsmanna vonast til að búið verði að ganga frá nýjum samningi fyrir helgi.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image