• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Frystihús HB Granda á Akranesi opnar eftir sumarlokun Frystihús HB Granda á Akranesi
08
Sep

Frystihús HB Granda á Akranesi opnar eftir sumarlokun

Starfsemi í frystihúsi HB Granda hér á Akranesi er nú að komast á fullt skrið aftur eftir sumarlokun sem stóð frá 11. júlí til 18. ágúst. Í sumarlokuninni var frystihúsinu breytt og settur upp nýr lausfrystibúnaður þar sem nú er verið að vinna léttsöltuð og lausfryst ufsaflök.

Rúmlega 20 manns starfa í frystihúsinu núna og nú er bara að vona að þessi nýja framleiðsla muni ganga sem allra best með von um að fjölga þurfi starfsmönnum við þessa nýju vinnslu.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image