• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fundur með viðskiptaráðherra á Skrúðgarðinum í kvöld Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra
11
Sep

Fundur með viðskiptaráðherra á Skrúðgarðinum í kvöld

Verkalýðsfélag Akraness vill minna félagsmenn sína á fund sem viðskiptaráðuneytið stendur fyrir í kvöld. Fjallar hann um nýja sókn í neytendamálum.

Fundurinn hefst kl. 20:00 og er í Skrúðgarðinum. Ræðumenn á fundinum verða Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, Jón Magnússon þingmaður Frjálslynda flokksins og Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar.

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness skorar á félagsmenn sína að mæta og spyrja viðskiptaráðherra spurninga er lúta að neytendamálum enda er algerlega ljóst að af nægu er að taka í þeim efnum.

Formaður félagsins, Vilhjálmur Birgisson, mun verða fundarstjóri á fundinum í kvöld.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image