• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
02
May

Fundað verður um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa á miðvikudaginn

Fundað verður á miðvikudaginn kemur um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa.  Krafa stéttarfélaganna er alveg skýr það er sömu hækkanir og Íslenska járnblendið samdi um, sem var um 21% á samningstímanum.  Einnig eru nokkur atriði til viðbótar sem starfsmenn vilja fá á hreint í þessum samningum t.b hagnaðarhlutdeild til handa starfsmönnum Klafa.  

01
May

Einn réttur - ekkert svindl !

Krafa dagsins 1. maí 2005, „Einn réttur – ekkert svindl” vísar til sérstaks átaks sem Alþýðusambandið og aðildarsamtök þess hrinda af stað á morgun, 2. maí.

Markmið átaksins er:

  • Að verja kjör og réttindi á íslenskum vinnumarkaði bæði fyrir Íslendinga og útlendinga sem hér starfa.
  • Að koma í veg fyrir félagsleg undirboð á vinnumarkaði með erlendu vinnuafli í ólöglegri atvinnustarfsemi.
  • Að tryggja eðlilega samkeppnisstöðu fyrirtækja sem virða kjarasamninga og viðmið sem gilda á íslenskum vinnumarkaði.
  • Að tryggja að atvinnustarfsemi greiði sinn skerf til samfélagsins og reksturs þess.

Átakið mun beinast gegn hvers konar ólöglegri starfsemi á vinnumarkaði. Það mun beinast gegn fyrirtækjum sem misnota erlent vinnuafl og stunda undirboð til að skapa sér samkeppnisforskot á markaði. Það mun hins vegar ekki beinast gegn erlendu launafólki sem komið hefur til starfa góðri trú um að allt væri í lagi og það sjálft því í fullum rétti.   

29
Apr

Verkalýðsfélag Akraness sendir félagsmönnum sínum baráttukveðjur í tilefni af 1. maí

Verkalýðsfélag Akraness vill minna félagsmenn sína á dagskrána vegna 1. maí hátíðarhaldanna.  Dagskráin hefst með kröfugöngu frá  Kirkjubraut 40. kl 14:00.   Að lokinni kröfugöngunni mun hefjast eftirfarandi dagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness að kirkjubraut 40. 3ju hæð.  Rétt er að minna börnin á að frítt verður í bíó og hefst bíósýningin kl. 15:00.   Fundarstjóri verður Gísli S Einarsson fyrrverandi alþingismaður 

Samspil á klarinett.

Undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur.

  

Hátíðarræða.

Ólafur Darri Andrason

Deildarstjóri hagfræðideildar ASÍ.

  

Fjöldasöngur.

Maístjarnan,

stjórnandi Gísli Einarsson.

 

Gospel-Kórinn.

            Undir stjórn Rósu Guðrúnar Sveinsdóttur.

  

Fjöldasöngur.

Alþjóðasöngur Verkalýðsins,

stjórnandi Gísli Einarsson.

 

Kaffiveitingar. 

Verkalýðfélag Akraness hvetur félagsmenn til að fjölmenna

27
Apr

Aðalfundur félagsins tókst mjög vel

Aðalfundi Verkalýðsfélags Akraness var að ljúka rétt í þessu það voru um 40 félagsmenn sem mættu á fundinn.   Það kom fram hjá endurskoðanda félagsins að heildarhagnaður allra sjóða félagsins hefði verið um 21 milljón króna.  Sem þýðir að hagnaður félagsins hafi aukist um 115% á milli ára sem verður að teljast góður árangur hjá nýrri stjórn. 

Tillaga kom frá aðalstjórn um óbreytt félagsgjald sem er 1% og er með því lægsta sem gerist innan Starfsgreinasambands Íslands.

Tillaga kom frá stjórn sjúkrasjóðs um að stórauka sjúkradagpeninga eða úr rétt rúmum 2.700 pr dag í tæpar 3.500 á dag.  Einnig kom tillaga um að hækka greiðslu vegna krabbameinsleitar úr 1.500 í 2.500 er þetta gert vegna góðrar afkomu sjóðsins.  Allar þessar tillögur voru samþykktar. 

Það kom fram að sjúkradagpeningar til handa félagsmönnum hefðu hækkað um 30% frá því að ný stjórn tók við.  

Nokkrir fundarmenn lýstu yfir mikilli ánægju með hvernig til hefði tekist hjá stjórn félagsins á sínu fyrsta starfsári og ljóst að allt annar bragur væri komin á Verkalýðsfélag Akraness til hins betra.   Ljóst er orðið að þær hremmingar sem Verkalýðsfélag Akraness hefur gengið í gegnum á liðnum árum eru að baki. 

Það kom fram í skýrslu stjórnar að það hefði fjölgað um 199 félagsmenn á milli ára sem er afar ánægjulegt.  Markmið stjórnar Verkalýðfélags Akraness er hvellskýrt það er að vera það stéttarfélag á Íslandi sem mest og best þjónar sínum félagsmönnum.  Vissulega eru þetta háleit markmið, en með viljann að vopni er allt hægt.

27
Apr

Reglur við úthlutun orlofshúsa

Nokkuð hefur verið um að félagsmenn hafi hringt á skrifstofu og verið að velta því fyrir sér hvers vegna þeir hafi ekki fengið úthlutað orlofhúsi, en næsti maður hafi kannski fengið tvö ár í röð.  Því ræður punktakerfið sem er innifalið í því tölvukerfi sem félagið notar við skráningu iðgjalda og heldur utan um upplýsingar um félagsmenn.  Hér til hliðar undir liðnum orlofshús er að finna allar nánari upplýsingar um úthlutunarkerfið og eru félagsmenn hvattir til að kynna sér þær reglur vel. 

26
Apr

Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness verður haldinn á morgun miðvikudaginn 27. apríl

Aðalfundur félagsins verður haldinn á morgun að Kirkjubraut 40. 3, hæð og hefst fundurinn kl. 20.00.   Félagsmenn eru hvattir til að mæta.  Boðið verður upp á kaffiveitingar í fundarlok

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image