• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
02
Jan

Atvinnuleysisbætur hækka um 3 %

Atvinnuleysisbætur hækkuðu um 3% þann 1. janúar.
Eftirfarandi tilkynning kemur af vef Vinnumálastofnunnar.
Með vísun til 7. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, og yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar sem gerð var vegna kjarasamninga á almennum markaði frá 7. mars sl. hefur félagsmálaráðherra ákveðið að hækka atvinnuleysisbætur um 3% frá 1. janúar 2005.
Hámarksbætur atvinnuleysistrygginga verða þá 4.219 kr. á dag, eða kr. 91.426 á mánuði

30
Dec

Gleðilegt nýtt ár!

Verkalýðsfélag Akraness óskar félagsmönnum sem  og  öðrum landsmönnum gleðilegs nýs árs og farsældar á nýju ári!

30
Dec

Búið að funda með starfsmönnum Íj

Seinni fundurinn með starfsmönnum Íj var haldinn í dag.  Á fundinum fór formaður félagsins yfir stöðuna í kjaraviðræðum við forsvarsmenn Íj, kynnti einnig samningstilboð frá forsvarsmönnum Íj.  Það liggur orðið ljóst fyrir hvaða væntingar starfsmenn gera í þessum kjaraviðræðum, eins hversu langt menn eru tilbúnir að ganga til að ná fram sínum kröfum.  Það ríkir mikil samstaða  á meðal starfsmanna um að ná fram bættum kjörum í þessum samningum.  Einnig  eru atriði tengd vinnufyrirkomulagi sem starfsmenn vilja að verði skýlaust breytt, og setja það atriði sem algert skilyrði eigi að takast að ganga frá kjarasamningi.  Niðurstöðu úr þessum tveimur fundum hefur formaður félagsins, nú þegar komið á framfæri við okkar viðsemjendur.

29
Dec

Agnar Jónsson fyrrverandi formaður VLFA gerður að heiðursfélaga

Haldinn var í kvöld jólatrúnaðarráðsfundur þar sem öllum sem gegna trúnaðarstarfi fyrir Verkalýðsfélag Akraness var boðið að þiggja veitingar í boði  félagsins.   Aðaldagskrárliðurinn var að heiðra Agnar Jónsson fyrrverandi formann félagsins.  Agnar Jónsson var formaður félagsins frá árinu 1981 til 1985.  Vill stjórn Verkalýðsfélags Akraness þakka Agnari kærlega fyrir hans framlag í þágu verkafólks á Akranesi.  Formaður félagsins Vilhjálmur Birgisson afhenti Agnari Jónssyni heiðursskjal, blómvönd og nýja bók sem fjallar um öll stéttarfélög á Íslandi í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.

29
Dec

Fundað með starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins

Fundur var haldinn með starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins í gærkveldi  vegna kjarasamnings Íj.  Formaður félagsins fór yfir stöðuna í samningaviðræðum við forsvarsmenn Íj eins og hún er í dag.  Kynnti formaður VLFA einnig tilboð að nýjum kjarasamningi sem forsvarsmenn Íj hafa lagt fram .  Það eru nokkur atriði sem Verkalýðsfélag Akraness og starfsmenn Íj eru sammála um að verði að laga í þessu tilboði frá stjórnendum Íj, til að hægt verði að ganga frá nýjum kjarasamningi.  Þessi fundur var afar þýðingar mikil fyrir Verkalýðsfélag Akraness því eftir fundinn veit formaður félagsins hvað starfsmenn vilja, og hversu langt starfsmenn eru tilbúnir að  ganga til að knýja fram sínar grundvallarkröfur.  Mun formaður félagins kynna forsvarsmönnum Íj niðurstöður frá þessum fundi.  Næsti fundur verður á morgun en þá koma tvær síðustu vaktirnar hefst fundurinn kl. 13:00 og er haldinn að Kirkjubraut 40.    

28
Dec

Fundað með starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins

Verkalýðsfélag Akraness heldur fund í kvöld með starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins fundurinn verður haldinn kl. 20:00 á sal félagsins að Kirkjubraut 40. 3 hæð.  Þrjár vaktir munu koma á fundinn í kvöld ásamt dagmönnum, síðan eru tvær vaktir sem munu funda  fimmtudaginn 30. des.  Tilefni með fundunum er að fara yfir þau samningsdrög sem fyrir liggja, kynna starfsmönnum innihald þeirra og fá skoðun starfsmanna á þeirri stöðu sem upp er komin.  Það eru nokkur atriði sem ber á milli deiluaðila og ætlar formaður VLFA að fá frá  starfsmönnum hvaða leið þeir vilja fara í þessum atriðum sem eftir standa. 

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image