• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
09
Feb

Kynningarfundur um starfsmönnum Norðuráls á mánudaginn 14. febrúar

Samningafundur var haldinn í morgun vegna vaktafyrirkomulags starfsmanna.   Samningsaðilar eru að reyna að finna lausn á þeirri kröfu starfsmanna um að fá fimmta vakthópinn inn.  Það liggur orðið nokkuð ljóst fyrir að starfsmenn vilja minnka þetta mikla vinnuálag sem fylgir þessu vaktakerfi sem starfsmenn vinna nú eftir.  Samningsaðilar ræddu tvær hugmyndir um breytingu á vaktafyrirkomulagi starfsmanna á fundinum í morgun.  Ákvað samninganefnd stéttarfélaganna að  boða til kynningafundar  mánudaginn 14. febrúar kl. 20:15 að Kirkjubraut 40, sem er salur Verkalýðsfélags Akraness.  Á þessum kynningarfundi verða kynntar þær hugmyndir sem stéttarfélögin eru að velta fyrir sér.  Eitt er alveg víst að Verkalýðsfélag Akraness vill heyra hver vilji starfsmanna er í þessu máli, því er mikilvægt að starfsmenn sjái sér fært að mæta og kynna sér þessar hugmyndir.

08
Feb

Samningafundur verður á morgun um vinnufyrirkomulag starfsmanna Norðuráls

Fundað verður um vaktafyrirkomulag starfsmanna Norðuráls á morgun.  Fundur verður haldinn upp í Norðuráli og hefst kl. 8:30.

08
Feb

Fyrri kynningafundinum lokið um nýgerðan kjarasamning við Íslenska járnblendifélagið

Kynningafundur með ofngæslumönnum um nýgerðan kjarasamning við Íslenska járnblendifélagið var haldinn í dag í mötuneyti starfsmanna.  Formaður Verkalýðsfélags Akraness fór ýtarlega yfir kjarasamninginn og svaraði þeim spurningum sem starfsmenn Íj lögðu fyrir hann.  Næsti kynningarfundur verður haldinn fyrir dagmenn og verður sá fundur fimmtudaginn 10. febrúar kl. 13:30.  Starfsmenn Íj munu geta kosið um nýgerðan kjarasamning hjá aðaltrúnaðarmanni Íj alveg til kl. 12:00 fimmtudaginn 17. febrúar.

07
Feb

Kynningarfundur um nýgerðan kjarasamning verður haldinn með verkamönnum Íslenska járnblendifélagins á morgun

Kynningarfundur um nýgerðan kjarasamning verður haldinn á morgun kl. 13:30 með starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins.  Það verða ofngæslumenn sem verða á fundinum á morgun.  Á fimmtudaginn verður síðan haldinn kynningarfundur með dagmönnum.  Formaður félagsins mun fara mjög ítarlega yfir nýgerðan kjarasamning á þessum kynningarfundum.  Hægt verður að kjósa um samninginn eftir báða fundina, og einnig geta starfsmenn kosið alveg fram til

kl. 12:00 þriðjudaginn 15. febrúar. 

07
Feb

Fundað var í morgun um vaktafyrirkomulag starfsmanna Norðuráls

Samningafundur um vaktafyrirkomulag starfsmanna Norðuráls var haldinn í morgun.  Samningsaðilar veltu fyrir sér ýmsum möguleikum á fundinum í morgun með breytingu á vaktafyrirkomulagi starfsmanna Norðuráls í huga.  Eru samningsaðilar að skoða þessi mál hvor í sínu lagi og ætla að funda aftur á miðvikudaginn 9. feb kl. 8:30.

06
Feb

Samningafundur um vaktafyrirkomulag starfsmanna Norðuráls

Samningafundur verður haldinn í fyrramálið um nýjan kjarasamning við Norðurál.  Það sem verður til umræðu á fundinum á morgun er vaktafyrirkomulag starfsmanna.  Krafan er skýr frá starfsmönnum það er að fá fimmta vakthópinn inn.  Þessi krafa starfsmanna vegur afar þungt í þessum kjaraviðræðum.  Verkalýðsfélag Akraness hefur undir höndum áskorun frá starfsmönnum á vöktum, þar sem þeir  skora á samninganefnd stéttarfélaganna að tryggja að bætt verði fimmta vakthópnum inn.  Einnig skoruðu starfsmenn á samninganefndina að laun og önnur kjaraatriði verði jöfnuð við starfsmenn Alcan (Ísals).  Eftir þessari áskorun starfsmanna mun Verkalýðsfélag Akraness vinna eftir.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image