Hagstofa Íslands birti í morgun nýjar tölur um afkomu viðskiptahagkerfisins árið 2025. Þær ná til rúmlega 38 þúsund rekstraraðila með um 147 þúsund starfsmenn og gefa mynd af stórum hluta almenna vinnumarkaðarins utan fjármála- og vátryggingastarfsemi. Þetta er fólkið sem sækir og vinnur fiskinn, byggir húsin, framleiðir vörurnar og sinnir verslun og þjónustu.
Með vinnu sinni skapar þetta fólk stóran hluta þeirra verðmæta sem íslenskt samfélag byggir á. Af hverjum 100 krónum í samanlagðar tekjur fóru 21 króna og 60 aurar í laun og launatengd gjöld og 9 krónur og 52 aurar stóðu eftir í rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði. Það jafngildir 44 krónum í rekstrarhagnað fyrir hverjar 100 krónur í launakostnað. Heildartekjur námu 7.354 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld námu 1.588 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var 700 milljarðar króna. Hagnaður eftir skatt var 518 milljarðar króna. Eigið fé í árslok nam 6.492 milljörðum króna, eða 43,9% af eignum.
Í sjávarútvegi og fiskvinnslu fór hagnaður eftir skatt úr 40,9 milljörðum króna árið 2024 í 63,7 milljarða árið 2025. Það er aukning um 22,7 milljarða, eða 55,5% á einu ári. Tekjur jukust um 15,0% og launakostnaður um 10,2%. Laun og launatengd gjöld jukust um 12,1 milljarð króna, en hlutfall þeirra af tekjum lækkaði úr 27,5% í 26,4%. Bókfærðar skuldir viðskiptahagkerfisins námu 8.209 milljörðum króna í árslok og nettókostnaður af fjármagnsliðum var 194 milljarðar. Það er morgunljóst að lægri verðbólga og hagstæðari fjármögnunarkjör skipta fyrirtækin miklu máli.
Það er rétt að hnykkja á því að tæpar 80 krónur af hverjum 100 krónum í tekjur standa eftir þegar launakostnaður hefur verið dreginn frá. Þær fara í hráefni, aðkeypta þjónustu, annan rekstrarkostnað og afskriftir eða standa eftir sem rekstrarhagnaður. Þegar launahækkanir eru nefndar til að skýra verðhækkanir eigum við að fá að sjá hvernig tekjurnar og allir þessir liðir hafa þróast. Það á að leggja allan reikninginn á borðið.