Bláskógar 12, Svínadal
Bústaðurinn er staðsettur í Svarfhólsskógi, 44 m2 með tveimur svefnherbergjum og svefnlofti. Hjónarúm eru í báðum svefnherbergjum auk barnarúms. Á svefnlofti eru aukadýnur. Sængur og koddar eru fyrir 8 manns.
Vorið 2008 var endurnýjuð eldhúsinnrétting og gólfefni á neðri hæð endurnýjuð 2020. Baðherbergi endurnýjað vor 2019.
Góður pallur er í kringum bústaðinn, heitur pottur, gasgrill og garðhúsgögn.
Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins, Þjóðbraut 1, ásamt tuskum og gólfmoppu. Þetta er lokað svæði, þannig að gestir þurfa að nálgast síma á skrifstofunni hjá okkur áður en farið er af stað. Gestir þurfa sjálfir að fara með rúmföt, handklæði, diskaþurrkur og salernispappír.
Hægt er að sjá fleiri myndir hér.
Yfirlitskort af Svarfhólsskógi: Húsið að Bláskógar 12 er merkt með X á kortið. Athugið að kortið snýr öfugt, norður er niður á því.
Búnaður
Sími, sem gengur að læstu hliði, afhendist á skrifstofu fyrir upphaf leigutímabils.
Sjónvarp | √ | Ísskápur m. frystihólfi | √ |
Gasgrill | √ | Uppþvottavél | √ |
Kaffivél | √ | Helluborð og ofn | √ |
Brauðrist | √ | Barnastóll | √ |
Örbylgjuofn | √ | Þvottavél | × |
Vöfflujárn | √ | Þurrkari | × |
Pönnukökupanna | √ | Heitur pottur | √ |
Samlokugrill | √ |
Borðbúnaður f. amk. 6 manns |
|
Handþeytari | √ |
Svefnaðstaða
Sængur og koddar |
7 |
Rúm |
2 |
Stærð á rúmum |
160x200
160x200
|
Barnaferðarúm | √ |
Svefnloft | √ |
Auka dýnur | 3 |
Annað
Tuskur og gólfmoppur til þrifa, afhendist á skrifstofu fyrir upphaf leigutímabils.
Uppþvottalögur |
√ |
Töflur í uppþvottavél |
√ |
Ræstiefni |
√ |
Handsápa |
× |
Salernispappír |
× |
Handklæði |
× |
Borðtuskur |
× |
Viskustykki |
× |
Þvottaefni |
× |