Styrkir í sjúkrasjóði Verkalýðsfélags Akraness eru tengdir heilsu og vellíðan, vegna kaupa á gleraugum og heyrnartækjum sem og vegna fæðingar barns. Dánarbætur og sjúkradagpeningar falla einnig undir styrki úr sjúkrasjóði.
Hér má sjá yfirlit yfir þá styrki sem hægt er að sækja um.
Réttur skapast þegar félagsmaður hefur greitt í félagið í a.m.k.sex mánuði og er greiðandi þegar sótt er um.
Landsmennt veitir styrki, til félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness, m.a. vegna náms og endurmenntunar sem og frístundanámskeiða og ökunáms. Hér má sjá nánari upplýsingar um hvað er styrkhæft.