Útlitið er er ekki gott hvað varðar nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Fangs. Verkalýðsfélag Akraness hefur verið í sambandi við Samtök atvinnulífsins en þau fara með samningsumboðið fyrir eigendur Fangs. Stjórn Fangs tók einhliða ákvörðun um hversu mikið laun starfsmanna Fangs skyldu hækka. Við þá ákvörðun var litið til þeirra almennu kjarasamninga sem um störfin gilda sem og annarra launabreytinga á vinnumarkaði vegna sambærilegra starfa. Einnig ákvað stjórn fyrirtækisins að fresta viðræðum hvað varðar önnur kjaraatriði þar til haustsins. Við þetta getur Verkalýðsfélag Akraness alls ekki unað. Það er ekki á valdi stjórnar Fangs að ákveða það einhliða hversu mikið laun starfsmanna hækka. Eins og áður sagði tók stjórn Fangs líka ákvörðun um að fresta viðræðum um nýjan kjarasamning til haustsins, og það án nokkurs samráðs við þau stéttarfélög sem hafa samningsumboð fyrir þau störf sem hér um ræðir. Rétt er að það komi skýrt fram að kjarasamningur starfsmanna Fangs rann út 30. nóvember 2004, og hafa starfsmenn því verið samningslausir í 7 mánuði. Félagið hefur sett sig í samband við fulltrúa ríkissáttasemjara og greint honum frá þeirri stöðu sem upp er komin. Á það skal bent enn og aftur að það er búið að semja fyrir starfsmenn Ij og Klafa. Þær launahækkanir sem stjórn Fangs hefur boðið sínum starfsmönnum er því miður ekki í samræmi við þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið við starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins og Klafa. Krafa starfsmanna Fangs er skýr þ.e sambærilegar launahækkanir og aðrir á svæðinu fengu. Annað er ekkert samgirni.
Útlitið ekki gott hvað varðar nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Fangs
Útlitið ekki gott hvað varðar nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Fangs
Fleiri fréttir
Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eru duglegir að nýta rétt sinn í sjúkrasjóði félagsins. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 greiddi sjóðurinn út tæpar 134 milljónir króna. Þar af fóru rúmar 77 milljónir í sjúkradagpeninga og tæpar 57 milljónir í styrki og aðrar greiðslur.
Tæpar 76 milljónir króna voru greiddar vegna veikinda félagsmanna sjálfra og rúmar 1,25 milljónir vegna veikinda barna og maka. Sjúkradagpeningar geta numið allt að 780.000 krónum. Einnig er hægt að sækja um greiðslur vegna alvarlegra veikinda barna eða maka.
Það er líka ánægjulegt að sjá hvað félagsmenn nýta sjóðinn vel til að sinna heilsunni. Frá janúar til september fóru tæpar 15 milljónir króna í heilsueflingu og um 13,5 milljónir í heilsufarsskoðanir. Styrkurinn getur numið allt að 55.000 krónum í hvorum lið. Þá greiddi sjóðurinn um 12,5 milljónir í fæðingarstyrki og rúmar 6 milljónir vegna gleraugna og linsa. Fæðingarstyrkur getur numið allt að 170.000 krónum og styrkur vegna gleraugna eða linsa allt að 70.000 krónum.
Félagsmenn geta einnig sótt um allt að 100.000 krónur vegna viðtalsmeðferðar og sömu fjárhæð vegna heyrnartækja. Styrkur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds eða meðferðar hjá kírópraktor getur numið allt að 50.000 krónum. Þá er hægt að sækja um allt að 200.000 krónur vegna glasa- eða tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar og allt að 10.000 krónur vegna göngugreiningar.
Þetta eru peningar sem muna um. Þegar veikindi koma upp eða fólk þarf að leggja út fyrir gleraugum eða sjúkraþjálfun skiptir máli að vita hvaða stuðningur er í boði. Ég hvet félagsmenn til að kynna sér rétt sinn og hafa samband við okkur á skrifstofu VLFA ef þeir eru í vafa um hvað þeir eiga rétt á.
Hagstofa Íslands birti í morgun nýjar tölur um afkomu viðskiptahagkerfisins árið 2025. Þær ná til rúmlega 38 þúsund rekstraraðila með um 147 þúsund starfsmenn og gefa mynd af stórum hluta almenna vinnumarkaðarins utan fjármála- og vátryggingastarfsemi. Þetta er fólkið sem sækir og vinnur fiskinn, byggir húsin, framleiðir vörurnar og sinnir verslun og þjónustu.
Með vinnu sinni skapar þetta fólk stóran hluta þeirra verðmæta sem íslenskt samfélag byggir á. Af hverjum 100 krónum í samanlagðar tekjur fóru 21 króna og 60 aurar í laun og launatengd gjöld og 9 krónur og 52 aurar stóðu eftir í rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði. Það jafngildir 44 krónum í rekstrarhagnað fyrir hverjar 100 krónur í launakostnað. Heildartekjur námu 7.354 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld námu 1.588 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var 700 milljarðar króna. Hagnaður eftir skatt var 518 milljarðar króna. Eigið fé í árslok nam 6.492 milljörðum króna, eða 43,9% af eignum.
Í sjávarútvegi og fiskvinnslu fór hagnaður eftir skatt úr 40,9 milljörðum króna árið 2024 í 63,7 milljarða árið 2025. Það er aukning um 22,7 milljarða, eða 55,5% á einu ári. Tekjur jukust um 15,0% og launakostnaður um 10,2%. Laun og launatengd gjöld jukust um 12,1 milljarð króna, en hlutfall þeirra af tekjum lækkaði úr 27,5% í 26,4%. Bókfærðar skuldir viðskiptahagkerfisins námu 8.209 milljörðum króna í árslok og nettókostnaður af fjármagnsliðum var 194 milljarðar. Það er morgunljóst að lægri verðbólga og hagstæðari fjármögnunarkjör skipta fyrirtækin miklu máli.
Það er rétt að hnykkja á því að tæpar 80 krónur af hverjum 100 krónum í tekjur standa eftir þegar launakostnaður hefur verið dreginn frá. Þær fara í hráefni, aðkeypta þjónustu, annan rekstrarkostnað og afskriftir eða standa eftir sem rekstrarhagnaður. Þegar launahækkanir eru nefndar til að skýra verðhækkanir eigum við að fá að sjá hvernig tekjurnar og allir þessir liðir hafa þróast. Það á að leggja allan reikninginn á borðið.
Fréttabréf
Fáðu fréttir félagsins í pósthólfið
Skráðu þig á póstlistann og fáðu rafrænt fréttabréf félagsins sent tvisvar á ári.
Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.
