Kjarasamningur við ríkið að fæðast

Kjarasamningur við ríkið að fæðast

Margt bendir til þess að hugsanlega sé kjarasamningur að verða til á milli Starfsgreinasambands Íslands og ríkisins og eru umtalsverðar líkur á að skrifað verði undir nýjan kjarasamning í næstu viku. Drög að þessum samningi eru í anda þess sem samið var um við Samtök atvinnulífsins í kjarasamningnum á hinum almenna vinnumarkaði. Í þeim samningi var samið um sérstaka hækkun til þeirra sem voru að vinna á lægstu töxtunum og drögin við ríkið taka að sjálfsögðu mið af því.

Þeir sem vinna eftir kjarasamningum við ríkið og tilheyra Verkalýðsfélagi Akraness eru að stærstum hluta starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Vesturlands eða með öðrum orðum á Sjúkrahúsi Akraness.

Hinsvegar er ekki sömu sögu að segja gagnvart sveitarfélögunum, þar hefur lítið sem ekkert þokast og er farið að gæta verulegrar óþreyju hjá stéttarfélögunum í garð sveitarfélaganna. Ef ekki fer að sjást til lands í þeim samningum er allt eins líklegt að deilunni verði áður en langt um líður vísað til ríkissáttasemjara.

Fleiri fréttir

Festa og Gildi stefna á sameiningu um áramót – skrifstofan á Akranesi verður áfram
Félagsmenn nýta rétt sinn – tæpar 134 milljónir úr sjúkrasjóði VLFA á níu mánuðum
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.