Verkalýðsfélag Akraness vill minna á kynningarfund sem forsvarsmenn Laugafisks halda með íbúum Akraness þriðjudaginn 7. júní að Kirkjubraut 40, 3. hæð og hefst fundurinn kl 17:30. Á fundunum verður kynnt hvað fyrirtækið hefur nú þegar gert, og er að gera til að draga úr lyktarmengun. Það er vilji forsvarsmanna Laugafisks að starfa í sátt og samlyndi við sitt nánasta umhverfi, sem og alla íbúa Akraneskaupstaðar. Þess vegna vilja forsvarsmenn fyrirtækisins kynna fyrir bæjarbúum hvað fyrirtækið er að gera í þessum málum. Verkalýðsfélag Akraness hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að finna farsæla lausn á þessu vandamáli sem snýr að lyktarmengun. Formaður félagsins fundaði bæði með fulltrúum bæjarráðs, sem og framkvæmdastjóra Laugafisks og lýsti yfir áhyggjum sínum yfir stöðu mála. Þessir fundir með bæjarráðinu virðast hafa borið árangur þar sem heilbrigðisnefnd Vesturlands hefur dregið til baka fyrri ákvörðun sína um að fyrirtækinu væri skylt að draga úr starfsemi sinni um 50% yfir sumarmánuðina. Sem hefði haft þær afleiðingar að starfsemi Laugafisks hefði að öllum líkindum stöðvast. Verkalýðsfélag Akraness hefur svo sannarlega orðið var við mikinn vilja hjá forsvarsmönnum Laugafisks til að finna lausn á þessu hvimleiða vandamáli. Félagið hefur líka séð mjög margt sem fyrirtækið er nú þegar búið að gera til lausnar á þessu vandamáli.
Forsvarsmenn Laugafisks ætla kynna fyrir bæjarbúum hvað þeir eru að gera til að draga úr lyktarmengun
Forsvarsmenn Laugafisks ætla kynna fyrir bæjarbúum hvað þeir eru að gera til að draga úr lyktarmengun
Fleiri fréttir
Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eru duglegir að nýta rétt sinn í sjúkrasjóði félagsins. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 greiddi sjóðurinn út tæpar 134 milljónir króna. Þar af fóru rúmar 77 milljónir í sjúkradagpeninga og tæpar 57 milljónir í styrki og aðrar greiðslur.
Tæpar 76 milljónir króna voru greiddar vegna veikinda félagsmanna sjálfra og rúmar 1,25 milljónir vegna veikinda barna og maka. Sjúkradagpeningar geta numið allt að 780.000 krónum. Einnig er hægt að sækja um greiðslur vegna alvarlegra veikinda barna eða maka.
Það er líka ánægjulegt að sjá hvað félagsmenn nýta sjóðinn vel til að sinna heilsunni. Frá janúar til september fóru tæpar 15 milljónir króna í heilsueflingu og um 13,5 milljónir í heilsufarsskoðanir. Styrkurinn getur numið allt að 55.000 krónum í hvorum lið. Þá greiddi sjóðurinn um 12,5 milljónir í fæðingarstyrki og rúmar 6 milljónir vegna gleraugna og linsa. Fæðingarstyrkur getur numið allt að 170.000 krónum og styrkur vegna gleraugna eða linsa allt að 70.000 krónum.
Félagsmenn geta einnig sótt um allt að 100.000 krónur vegna viðtalsmeðferðar og sömu fjárhæð vegna heyrnartækja. Styrkur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds eða meðferðar hjá kírópraktor getur numið allt að 50.000 krónum. Þá er hægt að sækja um allt að 200.000 krónur vegna glasa- eða tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar og allt að 10.000 krónur vegna göngugreiningar.
Þetta eru peningar sem muna um. Þegar veikindi koma upp eða fólk þarf að leggja út fyrir gleraugum eða sjúkraþjálfun skiptir máli að vita hvaða stuðningur er í boði. Ég hvet félagsmenn til að kynna sér rétt sinn og hafa samband við okkur á skrifstofu VLFA ef þeir eru í vafa um hvað þeir eiga rétt á.
Hagstofa Íslands birti í morgun nýjar tölur um afkomu viðskiptahagkerfisins árið 2025. Þær ná til rúmlega 38 þúsund rekstraraðila með um 147 þúsund starfsmenn og gefa mynd af stórum hluta almenna vinnumarkaðarins utan fjármála- og vátryggingastarfsemi. Þetta er fólkið sem sækir og vinnur fiskinn, byggir húsin, framleiðir vörurnar og sinnir verslun og þjónustu.
Með vinnu sinni skapar þetta fólk stóran hluta þeirra verðmæta sem íslenskt samfélag byggir á. Af hverjum 100 krónum í samanlagðar tekjur fóru 21 króna og 60 aurar í laun og launatengd gjöld og 9 krónur og 52 aurar stóðu eftir í rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði. Það jafngildir 44 krónum í rekstrarhagnað fyrir hverjar 100 krónur í launakostnað. Heildartekjur námu 7.354 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld námu 1.588 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var 700 milljarðar króna. Hagnaður eftir skatt var 518 milljarðar króna. Eigið fé í árslok nam 6.492 milljörðum króna, eða 43,9% af eignum.
Í sjávarútvegi og fiskvinnslu fór hagnaður eftir skatt úr 40,9 milljörðum króna árið 2024 í 63,7 milljarða árið 2025. Það er aukning um 22,7 milljarða, eða 55,5% á einu ári. Tekjur jukust um 15,0% og launakostnaður um 10,2%. Laun og launatengd gjöld jukust um 12,1 milljarð króna, en hlutfall þeirra af tekjum lækkaði úr 27,5% í 26,4%. Bókfærðar skuldir viðskiptahagkerfisins námu 8.209 milljörðum króna í árslok og nettókostnaður af fjármagnsliðum var 194 milljarðar. Það er morgunljóst að lægri verðbólga og hagstæðari fjármögnunarkjör skipta fyrirtækin miklu máli.
Það er rétt að hnykkja á því að tæpar 80 krónur af hverjum 100 krónum í tekjur standa eftir þegar launakostnaður hefur verið dreginn frá. Þær fara í hráefni, aðkeypta þjónustu, annan rekstrarkostnað og afskriftir eða standa eftir sem rekstrarhagnaður. Þegar launahækkanir eru nefndar til að skýra verðhækkanir eigum við að fá að sjá hvernig tekjurnar og allir þessir liðir hafa þróast. Það á að leggja allan reikninginn á borðið.
Fréttabréf
Fáðu fréttir félagsins í pósthólfið
Skráðu þig á póstlistann og fáðu rafrænt fréttabréf félagsins sent tvisvar á ári.
Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.
