Formaður Verkalýðfélags Akraness fundaði með erlendu starfsmönnunum sem starfa hjá fyrirtækinu sem sætir rannsókn lögreglu vegna gruns um brot á atvinnuréttindum útlendinga. Fundurinn var á fimmtudaginn sl, túlkur kom formanni félagsins til aðstoðar en erlendu starfsmennirnir koma allir frá Litháen. Verklýðsfélag Akraness óskaði eftir því við lögregluna á Akranesi að hún rannsakaði hvort allir starfsmennirnir væru með tilskilin leyfi til að starfa hér á landi, en félagið hafði vísbendingar um að nokkrir væru ekki með atvinnuleyfi. Einnig hafði félagið mjög svo sterkar grunsemdir um að ekki væri verið að greiða starfsmönnum laun samkvæmt þeim ráðningarsamningum sem lagðir voru fram með umsóknum um atvinnuleyfi fyrir starfsmennina. Fundurinn með erlendu starfsmönnum var afar gagnlegur og er félagið að vinna úrúr þeim upplýsingum sem fram komu á fundinum. Fram kom í máli starfsmannanna að þeir hafa tb. ekki séð launaseðil frá því þeir hófu störf hér á landi, en sumir erlendu starfsmannanna hafa starfað hér í þó nokkur ár. Einnig kom fram hjá hjá Litháunum að mjög mikil vinna hafi verið síðustu þrjá til fjóra mánuði og hefur komið fyrir að nokkrir starfsmenn hafi unnið yfir 300 vinnustundir á mánuði. Verkalýðsfélag Akraness telur að miðað við þau gögn og þær upplýsingar sem liggja fyrir sýni klárlega að töluvert vanti upp á að Litháunum sé greidd laun eins og ráðningarsamningur mannanna kveði á um. Jafnvel sem nemur tvö til þrjú hundruð þúsund krónur á einum mánuði hjá einstaka starfsmanni. Eitt er víst að Verkalýðsfélag Akraness mun fylgja þessu máli eftir af fullum þunga. Væntanlega munu mál Litháana skýrast endanlega í næstu viku.
Formaður félagsins fundaði með Litháunum sem starfa hjá fyrirtækinu sem sætir rannsókn lögreglu
Formaður félagsins fundaði með Litháunum sem starfa hjá fyrirtækinu sem sætir rannsókn lögreglu
Fleiri fréttir
Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eru duglegir að nýta rétt sinn í sjúkrasjóði félagsins. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 greiddi sjóðurinn út tæpar 134 milljónir króna. Þar af fóru rúmar 77 milljónir í sjúkradagpeninga og tæpar 57 milljónir í styrki og aðrar greiðslur.
Tæpar 76 milljónir króna voru greiddar vegna veikinda félagsmanna sjálfra og rúmar 1,25 milljónir vegna veikinda barna og maka. Sjúkradagpeningar geta numið allt að 780.000 krónum. Einnig er hægt að sækja um greiðslur vegna alvarlegra veikinda barna eða maka.
Það er líka ánægjulegt að sjá hvað félagsmenn nýta sjóðinn vel til að sinna heilsunni. Frá janúar til september fóru tæpar 15 milljónir króna í heilsueflingu og um 13,5 milljónir í heilsufarsskoðanir. Styrkurinn getur numið allt að 55.000 krónum í hvorum lið. Þá greiddi sjóðurinn um 12,5 milljónir í fæðingarstyrki og rúmar 6 milljónir vegna gleraugna og linsa. Fæðingarstyrkur getur numið allt að 170.000 krónum og styrkur vegna gleraugna eða linsa allt að 70.000 krónum.
Félagsmenn geta einnig sótt um allt að 100.000 krónur vegna viðtalsmeðferðar og sömu fjárhæð vegna heyrnartækja. Styrkur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds eða meðferðar hjá kírópraktor getur numið allt að 50.000 krónum. Þá er hægt að sækja um allt að 200.000 krónur vegna glasa- eða tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar og allt að 10.000 krónur vegna göngugreiningar.
Þetta eru peningar sem muna um. Þegar veikindi koma upp eða fólk þarf að leggja út fyrir gleraugum eða sjúkraþjálfun skiptir máli að vita hvaða stuðningur er í boði. Ég hvet félagsmenn til að kynna sér rétt sinn og hafa samband við okkur á skrifstofu VLFA ef þeir eru í vafa um hvað þeir eiga rétt á.
Hagstofa Íslands birti í morgun nýjar tölur um afkomu viðskiptahagkerfisins árið 2025. Þær ná til rúmlega 38 þúsund rekstraraðila með um 147 þúsund starfsmenn og gefa mynd af stórum hluta almenna vinnumarkaðarins utan fjármála- og vátryggingastarfsemi. Þetta er fólkið sem sækir og vinnur fiskinn, byggir húsin, framleiðir vörurnar og sinnir verslun og þjónustu.
Með vinnu sinni skapar þetta fólk stóran hluta þeirra verðmæta sem íslenskt samfélag byggir á. Af hverjum 100 krónum í samanlagðar tekjur fóru 21 króna og 60 aurar í laun og launatengd gjöld og 9 krónur og 52 aurar stóðu eftir í rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði. Það jafngildir 44 krónum í rekstrarhagnað fyrir hverjar 100 krónur í launakostnað. Heildartekjur námu 7.354 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld námu 1.588 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var 700 milljarðar króna. Hagnaður eftir skatt var 518 milljarðar króna. Eigið fé í árslok nam 6.492 milljörðum króna, eða 43,9% af eignum.
Í sjávarútvegi og fiskvinnslu fór hagnaður eftir skatt úr 40,9 milljörðum króna árið 2024 í 63,7 milljarða árið 2025. Það er aukning um 22,7 milljarða, eða 55,5% á einu ári. Tekjur jukust um 15,0% og launakostnaður um 10,2%. Laun og launatengd gjöld jukust um 12,1 milljarð króna, en hlutfall þeirra af tekjum lækkaði úr 27,5% í 26,4%. Bókfærðar skuldir viðskiptahagkerfisins námu 8.209 milljörðum króna í árslok og nettókostnaður af fjármagnsliðum var 194 milljarðar. Það er morgunljóst að lægri verðbólga og hagstæðari fjármögnunarkjör skipta fyrirtækin miklu máli.
Það er rétt að hnykkja á því að tæpar 80 krónur af hverjum 100 krónum í tekjur standa eftir þegar launakostnaður hefur verið dreginn frá. Þær fara í hráefni, aðkeypta þjónustu, annan rekstrarkostnað og afskriftir eða standa eftir sem rekstrarhagnaður. Þegar launahækkanir eru nefndar til að skýra verðhækkanir eigum við að fá að sjá hvernig tekjurnar og allir þessir liðir hafa þróast. Það á að leggja allan reikninginn á borðið.
Fréttabréf
Fáðu fréttir félagsins í pósthólfið
Skráðu þig á póstlistann og fáðu rafrænt fréttabréf félagsins sent tvisvar á ári.
Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.
