Enn og aftur bar eftirlit með erlendu vinnuafli árangur hjá Verkalýðsfélagi Akraness. Fyrir nokkrum vikum fékk félagið ábendingu um að þýskir smiðir væru að störfum við byggingu á fjölbýlishúsi hér á Akranesi og grunur væri um að þeir væru ekki að fá greitt eftir réttum kjarasamningi. Verkalýðsfélag Akraness fór á vinnustaðinn og kom þá í ljós að ábendingin átti við rök að styðjast. Í framhaldinu óskaði félagið eftir launaseðlum og ráðningarsamningum af erlendu starfsmönnunum. Fyrirtækið varð við ósk félagsins og afhenti umrædd gögn. Kom þá í ljós þegar launaseðlar og ráðningarsamningar höfðu verið yfirfarnir, að ekki var verið að greiða eftir launataxta sem gildir fyrir smiði og vantaði þó nokkuð uppá. Þýsku smiðirnir fengu greiddar 734 kr. í dagvinnu auk 208 kr. í fastan bónus á hvern dagvinnutíma. Yfirvinnutímakaup þýsku smiðanna var einungis 1.332 kr. en átti að vera samkvæmt kjarasamningi 1.779 kr. Það vantaði því 34% uppá að farið væri eftir þeim launatöxtum sem gilda fyrir umrædd störf. Málið leystist í dag með samkomulagi og fá þýsku smiðirnir nú 988 kr. í dagvinnulaun og 1.779 kr. í yfirvinnu eins og kjarasamningur segir til um. Þetta sýnir enn og aftur hversu mikilvægt það er fyrir verkalýðshreyfinguna að vera á varðbergi gegn þeim undirboðum sem nú tröllríður íslenskum vinnumarkaði. Þessi undirboð snúa nær eingöngu að erlendu vinnuafli. Þetta fjórða tilfellið á stuttum tíma sem Verkalýðsfélag Akraness kemst að því að íslensk fyrirtæki eru að reyna að komast hjá því að greiða eftir þeim kjarasamningum sem um hefur verið samið í þessu landi. Sem er algerlega óviðunandi.
Enn og aftur ber eftirlit Verkalýðsfélags Akraness árangur með fyrirtækjum sem hafa erlent vinnuafl að störfum !
Enn og aftur ber eftirlit Verkalýðsfélags Akraness árangur með fyrirtækjum sem hafa erlent vinnuafl að störfum !
Fleiri fréttir
Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eru duglegir að nýta rétt sinn í sjúkrasjóði félagsins. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 greiddi sjóðurinn út tæpar 134 milljónir króna. Þar af fóru rúmar 77 milljónir í sjúkradagpeninga og tæpar 57 milljónir í styrki og aðrar greiðslur.
Tæpar 76 milljónir króna voru greiddar vegna veikinda félagsmanna sjálfra og rúmar 1,25 milljónir vegna veikinda barna og maka. Sjúkradagpeningar geta numið allt að 780.000 krónum. Einnig er hægt að sækja um greiðslur vegna alvarlegra veikinda barna eða maka.
Það er líka ánægjulegt að sjá hvað félagsmenn nýta sjóðinn vel til að sinna heilsunni. Frá janúar til september fóru tæpar 15 milljónir króna í heilsueflingu og um 13,5 milljónir í heilsufarsskoðanir. Styrkurinn getur numið allt að 55.000 krónum í hvorum lið. Þá greiddi sjóðurinn um 12,5 milljónir í fæðingarstyrki og rúmar 6 milljónir vegna gleraugna og linsa. Fæðingarstyrkur getur numið allt að 170.000 krónum og styrkur vegna gleraugna eða linsa allt að 70.000 krónum.
Félagsmenn geta einnig sótt um allt að 100.000 krónur vegna viðtalsmeðferðar og sömu fjárhæð vegna heyrnartækja. Styrkur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds eða meðferðar hjá kírópraktor getur numið allt að 50.000 krónum. Þá er hægt að sækja um allt að 200.000 krónur vegna glasa- eða tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar og allt að 10.000 krónur vegna göngugreiningar.
Þetta eru peningar sem muna um. Þegar veikindi koma upp eða fólk þarf að leggja út fyrir gleraugum eða sjúkraþjálfun skiptir máli að vita hvaða stuðningur er í boði. Ég hvet félagsmenn til að kynna sér rétt sinn og hafa samband við okkur á skrifstofu VLFA ef þeir eru í vafa um hvað þeir eiga rétt á.
Hagstofa Íslands birti í morgun nýjar tölur um afkomu viðskiptahagkerfisins árið 2025. Þær ná til rúmlega 38 þúsund rekstraraðila með um 147 þúsund starfsmenn og gefa mynd af stórum hluta almenna vinnumarkaðarins utan fjármála- og vátryggingastarfsemi. Þetta er fólkið sem sækir og vinnur fiskinn, byggir húsin, framleiðir vörurnar og sinnir verslun og þjónustu.
Með vinnu sinni skapar þetta fólk stóran hluta þeirra verðmæta sem íslenskt samfélag byggir á. Af hverjum 100 krónum í samanlagðar tekjur fóru 21 króna og 60 aurar í laun og launatengd gjöld og 9 krónur og 52 aurar stóðu eftir í rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði. Það jafngildir 44 krónum í rekstrarhagnað fyrir hverjar 100 krónur í launakostnað. Heildartekjur námu 7.354 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld námu 1.588 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði var 700 milljarðar króna. Hagnaður eftir skatt var 518 milljarðar króna. Eigið fé í árslok nam 6.492 milljörðum króna, eða 43,9% af eignum.
Í sjávarútvegi og fiskvinnslu fór hagnaður eftir skatt úr 40,9 milljörðum króna árið 2024 í 63,7 milljarða árið 2025. Það er aukning um 22,7 milljarða, eða 55,5% á einu ári. Tekjur jukust um 15,0% og launakostnaður um 10,2%. Laun og launatengd gjöld jukust um 12,1 milljarð króna, en hlutfall þeirra af tekjum lækkaði úr 27,5% í 26,4%. Bókfærðar skuldir viðskiptahagkerfisins námu 8.209 milljörðum króna í árslok og nettókostnaður af fjármagnsliðum var 194 milljarðar. Það er morgunljóst að lægri verðbólga og hagstæðari fjármögnunarkjör skipta fyrirtækin miklu máli.
Það er rétt að hnykkja á því að tæpar 80 krónur af hverjum 100 krónum í tekjur standa eftir þegar launakostnaður hefur verið dreginn frá. Þær fara í hráefni, aðkeypta þjónustu, annan rekstrarkostnað og afskriftir eða standa eftir sem rekstrarhagnaður. Þegar launahækkanir eru nefndar til að skýra verðhækkanir eigum við að fá að sjá hvernig tekjurnar og allir þessir liðir hafa þróast. Það á að leggja allan reikninginn á borðið.
Fréttabréf
Fáðu fréttir félagsins í pósthólfið
Skráðu þig á póstlistann og fáðu rafrænt fréttabréf félagsins sent tvisvar á ári.
Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.
