Næstkomandi sunnudag verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á hefðbundna hátíðardagskrá sem kostuð er af Verkalýðsfélagi Akraness, en því til viðbótar mun Björgunarfélag Akraness sjá um fjölskylduskemmtun sem er í boði Akraneskaupstaðar og Verkalýðsfélags Akraness. Eru sjómenn, fjölskyldur þeirra og bæjarbúar allir hvattir til að taka þátt í hátíðarhöldunum og njóta dagskrárinnar sem verður á þessa leið:
-Kl 10:00 - Athöfn við minnisvarða um drukknaða og týnda sjómenn í kirkjugarðinum að Görðum.
-Kl. 11:00 - Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju þar sem sjómaður verður heiðraður fyrir ævistarf sitt.
-Kl. 13:00 til 16:00 - Akranesviti verður opinn gestum. Vert að vekja athygli á því að Sigurbjörg Þrastardóttir, bæjarlistamaður Akraness, opnar sýningu í Akranesvita laugardaginn 31. maí sem opin verður að hluta til sumarlangt. Sigurbjörg sýnir ljóð um hafið og fleira í vitanum.
