Nú geta félagsmenn nálgast vasadagbækur fyrir árið 2018 á skrifstofu félagsins að Sunnubraut 13. Dagbækurnar eru alltaf vinsælar hjá félagsmönnum VLFA enda gott að geta skipulagt tímann bæði í leik og starfi. Félagsmenn utan Akraness geta haft samband við starfsfólk skrifstofu og fengið dagbók senda í pósti sér að kostnaðarlausu.
Dagbækurnar komnar á skrifstofu félagsins
Dagbækurnar komnar á skrifstofu félagsins
Fleiri fréttir
Hvað þýðir þetta fyrir sjóðfélaga Festu?
Áunnin lífeyrisréttindi hjá Festu flytjast yfir í sameinaðan sjóð og verða skráð sérstaklega. Sjóðirnir taka fram að réttindin geti tekið breytingum ef jafna þarf mun á tryggingafræðilegri stöðu þeirra fyrir sameiningu. Eftir sameiningu verða ný réttindi áunnin samkvæmt sameiginlegri réttindatöflu. Þá munu launagreiðendur greiða iðgjöldin til Gildis. gildiogfesta.is
Þeir sem þegar fá lífeyri frá Festu fá áfram greitt í gegnum Greiðslustofu lífeyrissjóða. Ef jöfnun á stöðu sjóðanna leiðir til lækkunar réttinda hjá öðrum sjóðnum geta greiðslur úr þeim sjóði staðið í stað um tíma frá 1. september 2027 á meðan verðlag hækkar. gildiogfesta.is
Miðað við stöðuna í árslok 2025 yrði sameinaður sjóður sá fjölmennasti á landinu og sá næststærsti að eignum. Hrein eign sjóðanna tveggja nam þá samtals um 1.570 milljörðum króna. Gildi áætlar að árlegur sparnaður geti orðið allt að 1,2 milljarðar króna þegar ávinningur af sameiningunni er að fullu kominn fram. Gildi lífeyrissjóður
Félagsmenn geta kynnt sér nánar hvað sameiningin þýðir fyrir þá á sameiginlegri upplýsingasíðu Gildis og Festu. Sjá einnig frétt Gildis um samþykkt samrunans.
Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eru duglegir að nýta rétt sinn í sjúkrasjóði félagsins. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 greiddi sjóðurinn út tæpar 134 milljónir króna. Þar af fóru rúmar 77 milljónir í sjúkradagpeninga og tæpar 57 milljónir í styrki og aðrar greiðslur.
Tæpar 76 milljónir króna voru greiddar vegna veikinda félagsmanna sjálfra og rúmar 1,25 milljónir vegna veikinda barna og maka. Sjúkradagpeningar geta numið allt að 780.000 krónum. Einnig er hægt að sækja um greiðslur vegna alvarlegra veikinda barna eða maka.
Það er líka ánægjulegt að sjá hvað félagsmenn nýta sjóðinn vel til að sinna heilsunni. Frá janúar til september fóru tæpar 15 milljónir króna í heilsueflingu og um 13,5 milljónir í heilsufarsskoðanir. Styrkurinn getur numið allt að 55.000 krónum í hvorum lið. Þá greiddi sjóðurinn um 12,5 milljónir í fæðingarstyrki og rúmar 6 milljónir vegna gleraugna og linsa. Fæðingarstyrkur getur numið allt að 170.000 krónum og styrkur vegna gleraugna eða linsa allt að 70.000 krónum.
Félagsmenn geta einnig sótt um allt að 100.000 krónur vegna viðtalsmeðferðar og sömu fjárhæð vegna heyrnartækja. Styrkur vegna sjúkraþjálfunar, sjúkranudds eða meðferðar hjá kírópraktor getur numið allt að 50.000 krónum. Þá er hægt að sækja um allt að 200.000 krónur vegna glasa- eða tæknifrjóvgunar eða ættleiðingar og allt að 10.000 krónur vegna göngugreiningar.
Þetta eru peningar sem muna um. Þegar veikindi koma upp eða fólk þarf að leggja út fyrir gleraugum eða sjúkraþjálfun skiptir máli að vita hvaða stuðningur er í boði. Ég hvet félagsmenn til að kynna sér rétt sinn og hafa samband við okkur á skrifstofu VLFA ef þeir eru í vafa um hvað þeir eiga rétt á.
Fréttabréf
Fáðu fréttir félagsins í pósthólfið
Skráðu þig á póstlistann og fáðu rafrænt fréttabréf félagsins sent tvisvar á ári.
Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.
