Orlofshús félagsins
Um bústaðinn
Í Hraunborgum á félagið 41 m2 A-bústað með tveimur svefnherbergjum uppi á lofti. Í öðru herberginu eru tvö 80 cm rúm en í hinu eru tvö 90cm rúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns.
Í kringum bústaðinn er góður pallur með heitum potti, gasgrilli og garðhúsgögnum.
Farið var í verulega uppfærslu á húsinu snemma árs 2021, bústaður málaður að utan og innan, skipt um gólfefni, rúm endurnýjuð og fleira.
Þjónustumiðstöðin í Hraunborgum er opin yfir sumartímann eins og tjaldstæðið. Þar er einnig sundlaug, minigolf og fleira sem opið er yfir sumartímann.
Gott að vita
- Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins, Þjóðbraut 1, ásamt tuskum og gólfmoppu. Gestir þurfa sjálfir að fara með rúmföt, handklæði, diskaþurrkur og salernispappír.
- Þetta er lokað svæði, þannig að gestir þurfa að nálgast síma á skrifstofunni hjá okkur áður en farið er af stað.
Leiðin að Hraunborgum
Verð
Verðflokkur 1. Vetrarverð gilda frá 1. janúar 2026.
| Sumarvika miðvikudagur til miðvikudags | 28.000 kr |
| Páskavika sama verð og sumarvika | 28.000 kr |
| Vetrarhelgi föstudagur til mánudags | 18.000 kr |
| Vetrarvika 7 nætur | 28.000 kr |
Aðstaða
Búnaður og svefnaðstaða
Búnaður
Sími, sem gengur að læstu hliði, afhendist á skrifstofu fyrir upphaf leigutímabils.
| Sjónvarp | √ |
| Ísskápur m. frystihólfi | √ |
| Gasgrill | √ |
| Uppþvottavél | √ |
| Kaffivél | √ |
| Helluborð og ofn | √ |
| Brauðrist | √ |
| Barnastóll | √ |
| Örbylgjuofn | √ |
| Þvottavél | × |
| Vöfflujárn | √ |
| Þurrkari | × |
| Pönnukökupanna | √ |
| Heitur pottur | √ |
| Samlokugrill | √ |
| Handþeytari | √ |
Borðbúnaður f. amk. 6 manns
Svefnaðstaða
Svefnherbergi eru á efri hæð
| Sængur og koddar | 6 |
| Rúm | 4 |
| Stærð á rúmum | 80x200 80x200 180x200 (2x90) |
| Barnaferðarúm | √ |
| Auka dýnur | 2 |
| Svefnloft | Ath. svefnherbergi eru á efri hæð |
Annað
Tuskur og gólfmoppur til þrifa, afhendist á skrifstofu fyrir upphaf leigutímabils.
| Uppþvottalögur | √ |
| Töflur í uppþvottavél | √ |
| Ræstiefni | √ |
| Handsápa | × |
| Salernispappír | × |
| Handklæði | × |
| Borðtuskur | × |
| Viskustykki | × |
| Þvottaefni | × |
Þarftu aðstoð?
Hafðu samband við skrifstofuna
Spurningar um orlofshúsin eða bókanir? Starfsfólk skrifstofunnar aðstoðar. Skrifstofan er opin mánudaga–fimmtudaga kl. 8:00–16:00 og föstudaga kl. 8:00–15:15.





