Orlofshús félagsins
Um íbúðirnar
Félagið á þrjár 53 fm íbúðir á Akureyri. Í þeim eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu. Tvíbreitt (160 x200) rúm er í stærra herbergi en 120x200 er í því minna og hægt er að fá barnarúm. Sængur og koddar eru fyrir 5 manns. Gasgrill er á svölum. Í íbúðinni er þvottavél.
Íbúðirnar eru allar í skammtímaleigu til félagsmanna yfir sumartímann eins og önnur orlofshús. Yfir vetrartímann eru tvær íbúðir í fastri útleigu til félagsmanna sem eru í námi á Akureyri. Ein er í helgar eða vikuleigu til félagsmanna.
Hér eru svo myndir eftir breytingar 2021 og 2022
Fjöldi manns heimsækir Akureyri árlega enda fjölmargt um að vera í bænum yfir allt árið. Hér má sjá það helsta sem í boði er hverju sinni.
Verð
Verðflokkur 1. Vetrarverð gilda frá 1. janúar 2026.
| Sumarvika miðvikudagur til miðvikudags | 28.000 kr |
| Páskavika sama verð og sumarvika | 28.000 kr |
| Vetrarhelgi föstudagur til mánudags | 18.000 kr |
| Vetrarvika 7 nætur | 28.000 kr |
Aðstaða
Búnaður og svefnaðstaða
Búnaður
| Sjónvarp | √ |
| Ísskápur m. frystihólfi | √ |
| Gasgrill | √ |
| Uppþvottavél | √ |
| Kaffivél | √ |
| Helluborð og ofn | √ |
| Brauðrist | √ |
| Barnastóll | √ |
| Örbylgjuofn | √ |
| Þvottavél | √ |
| Vöfflujárn | √ |
| Þurrkari | × |
| Pönnukökupanna | √ |
| Heitur pottur | × |
| Samlokugrill | √ |
| Handþeytari | √ |
Borðbúnaður f. amk. 5 manns
Svefnaðstaða
| Sængur og koddar | 5 |
| Rúm | 2 |
| Stærð á rúmum | 160x200 120x200 |
| Barnaferðarúm | √ |
| Auka dýnur | × |
| Svefnloft | × |
Annað
Tuskur og gólfmoppur til þrifa á staðnum
| Uppþvottalögur | √ |
| Töflur í uppþvottavél | √ |
| Ræstiefni | √ |
| Handsápa | × |
| Salernispappír | × |
| Handklæði | × |
| Borðtuskur | × |
| Viskustykki | × |
| Þvottaefni | × |
Þarftu aðstoð?
Hafðu samband við skrifstofuna
Spurningar um orlofshúsin eða bókanir? Starfsfólk skrifstofunnar aðstoðar. Skrifstofan er opin mánudaga–fimmtudaga kl. 8:00–16:00 og föstudaga kl. 8:00–15:15.


