• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Fréttir

Fréttir

02
Jun

Tillögur Samtaka atvinnulífsins skref í rétta átt

Samtök atvinnulífsins hafa komið með tillögur um að hækka samningsbundna launataxta um 12 þúsund krónur á mánuði með svokölluðum taxtaviðauka.  

Formaður félagsins mun fara yfir þessar hugmyndir sem Samtök atvinnulífsins hafa nú lagt fram.  Við fyrstu skoðun virðist svo sem þessi 12 þúsund króna hækkun til handa verkafólki á hinum almenna vinnumarkaði dugi ekki til að jafna það sem starfsmenn sveitarfélaga og ríkis hafa verið að fá í hækkanir á sínum launum að undanförnu.

Það hlýtur að vera krafa félaga innan Starfsgreinasambands Íslands að þær kauphækkanir sem starfsmenn hjá ríkinu og sveitarfélögunum hafa verið að fá að undanförnu komi einnig til handa verkafólki á hinum almenna vinnumarkaði með sambærilegum hætti og þar gerðist.

Samt sem áður eru þessar hugmyndir Samtaka atvinnulífsins jákvætt skref í rétta átt.

Núna hefur Starfsgreinasamband Íslands boðað til formannafundar á þriðjudaginn kemur þar sem þessar hugmyndir verða til umræðu og því fagnar formaður Verkalýðsfélags Akraness. 

31
May

Laun ófaglærðra starfsmanna Sjúkrahúss Akraness munu hækka um allt að 18 þúsund á mánuði fyrir 100% starf

Formaður félagsins ásamt skrifstofustjóra Sjúkrahúss Akraness funduðu í gær um þær hækkanir sem eru að koma til ófaglærðs starfsfólks SHA og munu gilda frá 1. maí.

Það er alveg ljóst að með þessum hækkunum hefur tekist að jafna þann launamun sem ríkt hefur á milli starfsmanna sem starfa hjá ríkinu á við starfsmenn sveitarfélaganna sem starfa við sambærileg störf.

Formaður félagsins fagnar þessari ákvörðun forsvarsmanna SHA og telur að starfsmann SHA geti nokkuð vel við unað sé tekið mið af verkafólki sem starfar við sambærileg störf á hinum almenna vinnumarkaði.

Sem dæmi má nefna að laun starfsmanna eru að hækka um allt að 18 þúsund á mánuði fyrir 100% starf.

Núna verður það skýlaus krafa að laun verkafólks á hinum almenna vinnumarkaði verði lagfærð til fulls á við þær hækkanir sem hafa orðið hjá sveitarfélögunum og ríkinu.  Ef það ekki gerist þá er ekkert annað í stöðunni en að sækja þær lagfæringar fyrir verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði með fullu afli.

29
May

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands hafnar því að halda formannafund

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness sendi Starfsgreinasambandi Íslands bréf 2. maí sl. og óskaði eftir því að haldinn yrði formannafundur.  Það er mat stjórnar félagsins að mjög veigamikil mál hafi verið afgreidd á liðnum mánuðum sem hafi gengið þvert á hagsmuni félagsmanna VLFA.  Þetta eru mál eins og frumvarp um starfsmannaleigur, frjálsa för launafólks frá hinum nýju ríkum EES og síðast en ekki síst endurskoðun kjarasamninga sem fór fram í desember. 

Stjórn félagsins hefur gagnrýnt það harðlega að ekki var mótuð sameiginleg stefna í þessum málum af hálfu formanna Starfsgreinsambandsins og sum þeirra hafa vart verið rædd t.d endurskoðun kjarasamninga. 

Svar hefur borist til Verkalýðsfélags Akraness og kemur fram í svarbréfinu að framkvæmdastjórn SGS sjái ekki ástæðu til að kalla saman formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins til að fjalla um umrædd mál. Er þessi afstaða SGS óskiljanleg með öllu.  Verkalýðsfélag Húsavíkur óskaði einnig eftir því við SGS að haldinn yrði formannafundur þar sem til umfjöllunar yrðu kjaramál og sá óróleiki sem er hjá verkafólki sem starfar á hinum almenna vinnumarkaði.  Verkalýðsfélagi Húsavíkur var einnig hafnað um formannafund.  Rétt er að benda á að verkafólk sem tekur laun eftir kjarasamningi SGS hefur setið verulega eftir hvað varðar launahækkanir á við aðra hópa.  Sem dæmi þá eru laun hjá sveitarfélögunum og ríki fyrir sambærileg störf um 20 til 30 þúsundum hærri en hjá verkafólki á hinum almenna vinnumarkaði.

Það liggur líka fyrir að Samtök atvinnulífsins er byrjuð að undirbúa sig fyrir endurskoðun kjarasamninga og hafa m.a. rætt við formann félagsins um þau mál.  Forsendunefndin á að vera búin að meta samningsforsendur fyrir 15. nóv. 

Því er það afar undarlegt að forysta SGS sjái ekki ástæðu til að kalla saman formenn aðildarfélaga SGS til að móta sameiginlega kröfu hvað varðar endurskoðun kjarasamninga og sérstaklega í ljósi þeirrar vinnu sem er nú þegar hafin hjá Samtökum atvinnulífsins. Hins vegar ætlar Starfsgreinasamband Íslands að halda kjaramálaráðstefnu í haust. Er það að mati formanns félagsins allt of seint í ljósi þess að Samtök atvinnulífsins eru nú þegar byrjuð að undirbúa endurskoðun kjarasamninga eins og áður sagði.

24
May

Þeir sem hafa hæstu launin hjá Akraneskaupstað hækka langtum meira en ófaglærðir komi til sameiningar á milli Starfsmannafélags Akraneskaupstaðar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur félagsfundur Starfsmannafélags Akraneskaupstaðar heimilað stjórn félagsins að kanna hugsanlega sameiningu félagsins við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Einnig hefur bæjarráð samþykkt að leita eftir samstarfi við Reykjavíkuborg um launamál starfsmanna Akranesskaupstaðar.

Formaður Verkalýðsfélags Akraness hefur verið að bera saman laun ófaglærðs starfsfólks kaupstaðarins miðað við kjarasamning Reykjavíkurborgar annars vegar og kjarasamning launanefndar sveitarfélaga hins vegar. Karl Björnsson formaður launanefndar sveitarfélaga sagði í viðtali við Skessuhornið ekki alls fyrir löngu að á launaráðstefnu sem haldin var 28. janúar hafi laun ófaglærðs fólks hjá Akraneskaupstað verið aðlöguð að kjarasamningi Reykjavíkurborgar. Einnig sagði hann að launanefndin hefði ekki treyst sér til að hækka þá sem hæstu hefðu launin hjá Akraneskaupstað.

Í þessum samanburði sem formaður félagsins hefur unnið kemur í ljós að stór hluti ófaglærðs fólks sem starfar hjá Akraneskaupstað hækkar sáralítið með því að taka laun eftir kjarasamningi Reykjavíkurborgar og í sumum tilfellum lækka einstök störf á við Reykjavíkurborg og nægir þar að nefna starfsfólk í ræstingu og í þvottahúsi. Hins vegar munu forstöðumenn, fulltrúar og deildarstjórar, eða með öðrum orðum: þeir sem hæstu hafa launin, hækka svo jafnvel tug-þúsundum skiptir. Þó eru störf sem munu einnig hækka t.d. matráðar með mannaforráð og stuðningsfulltrúar í skólum.  Þeir sem munu hækka lítillega eða jafnvel standa í stað eru skólaliðar, sundlaugarverðir, matráðar I, verkamenn í bæjarvinnu og starfsmenn á leikskóla.

Sem dæmi má nefna að 36 ára gamall starfsmaður í ræstingu sem vinnur eftir kjarasamningi launanefndar er með í grunnlaun 138.279 kr. Taki hann hins vegar laun eftir kjarasamningi Reykjavíkurborgar eru grunnlaunin 134.294 kr. Lækkunin er því upp á 5.785 kr.

Hins vegar mun algengt vera að stjórnendur og millistjórnendur Akraneskaupstaðar hækki frá 20.000 kr. upp í tæpar 50.000 kr. á mánuði.  Það getur ekki verið vilji bæjaryfirvalda að þeir sem hæstu hafa launin hækki um tugi þúsunda á mánuði á meðan ófaglærðir standa nánast í stað. 

Formaður Verkalýðsfélags Akraness átti óformlegan fund með formanni Starfsmannafélags Akraness þar sem farið var yfir þessi mál og ríkir ekki ágreiningur um að kjarabót þeirra lægstlaunuðustu verður ekki í neinu samræmi við þær kjarabætur sem þeir hæstlaunuðustu fá.

Einnig hefur formaður félagsins átt fund með bæjarráði þar sem hann gerði þeim grein fyrir því að hækkanir til þeirra sem hæstu hafa launin eru ekki nokkru samræmi við hækkanir til ófaglærða.  Vissulega ber að fagna því að Akraneskaupstaður er tilbúin að hækka laun starfsmanna bæjarins en grundvallaratriði er að það ríki sanngirni í þeim hækkunum.

Skilningur hefur ríkt í samfélaginu um að hækka laun þeirra sem hvað lægstu hafa launin en ef niðurstaðan verður sú að starfsmenn Akraneskaupstaðar fari að taka laun eftir kjarasamningi Reykjavíkurborgar þá hefur dæmið snúist við, þeir hæstlaunuðustu munu fá langmest en þeir sem lægstu hafa launin fá lítið og sumir ekki neitt. Er það, að mati formanns Verkalýðsfélags Akraness, algerlega óásættanlegt.

23
May

Árskort í Íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar

Sala árskorta í Íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar hefur farið vel af stað á skrifstofu félagsins. Um er að ræða töluverðan afslátt og vill stjórn sjúkrasjóðs hvetja félagsmenn til að nýta sér þessa kjarabót.

Þessi árskort eru til sölu á skrifstofu félagsins með 25% afslætti. Til dæmis er hægt að kaupa árskort í þrek og sund á kr. 18.750,- en fullt verð er kr. 25.000,-.

Þriggja mánaða kort í þrek og sund kostar 7.425,- á skrifstofunni en fullt verð er 9.900,-.

Rétt er að ítreka það að afslátturinn fæst aðeins á kort sem seld eru á skrifstofu félagsins því ekki er mögulegt að veita afslátt á kort sem félagsmenn kaupa í Íþróttamiðstöðinni.

19
May

Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins óskuðu eftir óformlegum fundi með formanni félagsins.

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri og Hannes Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka avinnulífsins óskuðu eftir óformlegum fundi með formanni Verkalýðsfélags Akraness. Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins tjáðu formanni félagsins áhyggjur sínar yfir þeirri verðbólguaukningu sem átt hefur sér stað að undanförnu og einnig áhyggjur um að kjarasamningum verði sagt upp í haust.

Vissulega tekur formaður félagsins undir þessar áhyggjur forsvarsmanna SA hvað varðar verðbólguna. Verðbólgan nú er langt yfir viðmiðunarmörkum Seðlabanka Íslands sem er 2,5% og hefur töluverð kaupmáttarrýrnun átt sér stað hjá því verkafólki á hinum almenna vinnumarkaði sem tekur laun eftir kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands.

Formaður Verkalýðsfélags Akraness tjáði forsvarsmönnum SA að hans mat væri  það að það væri grundvallaratriði að lagfæra laun þeirra lægstlaunuðu sem starfa á hinum almenna vinnumarkaði  ætli menn að komast hjá því að kjarasamningum verði sagt upp í haust.   Verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði hefur setið skelfilega eftir hvað varðar almennar launahækkanir.  Allir hópar sem sömdu á eftir Starfsgreinasambandi Íslands 7. mars 2004 sömdu um langt um meira en verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði fékk í sínum samningum.  Nægir þar að nefna starfsmenn sveitarfélaga og hjá ríki sem hafa fengið leiðréttingar á sínum launum á undanförnum vikum og mánuðum.

Það verður aðalkrafan þegar endurskoðun á kjarasamningum fer fram í haust að laun verkafólks á hinum almenna vinnumarkaði verði jöfnuð til fulls á við sveitarfélög og ríki.

Þessi fundur var afar gagnlegur og þetta framtak forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins að boða formann félagsins til óformlegra viðræðna um þessi mál sýnir að fullur vilji er hjá Samtökum atvinnulífsins til að reyna að finna lausn á þessu máli þannig að ekki komi til uppsagnar á kjarasamningum í haust. Allir verða að leggjast á eitt og ekki síst íslensk stjórnvöld og reyna að kveða niður þann verðbólgudraug sem nú er farinn að láta á sér kræla allískyggilega því það er ekkert jafn slæmt fyrir íslenskt verkafólk en há verðbólga sem leiðir ekki nema eitt af sér sem er kaupmáttarskerðing.

Aðalmálið er eins og áður sagði að ef ekki á að koma til uppsagnar á kjarasamningum verður að leiðrétta laun þeirra sem lægstu hafa launin á hinum almenna vinnumarkaði um það þarf að ríkja sátt í samfélaginu. Ef verkafólk á hinum almenna vinnumarkaði fær ekki leiðréttingu á sínum samningum á við aðra sambærilega hópa er ekkert annað en uppsögn kjarasamninga sem mun blasa við.

17
May

Lífeyrissjóður Vesturlands sameinast Lífeyrissjóði Suðurlands

Ársfundur Lífeyrissjóðs Vesturlands var haldinn í gær í Ólafsvík. Á fundinum var kosið um sameiningu Lífeyrissjóðs Vesturlands við Lífeyrissjóð Suðurlands og var sú tillaga samþykkt. Formaður félagsins fór á fundinum yfir áhyggjur sínar vegna þessarar sameiningar en rekstur þessara sjóða hefur verið gjörólíkur á undanförnum árum. Lífeyrissjóður Vesturlands hefur skilað mun betri ávöxtun hvort sem litið er til síðasta árs eða síðastliðinna tíu ára.

Raunávöxtun Lífeyrissjóðs Vesturlands árið 2005 var 10,3% á móti 6,6% hjá Lífeyrissjóði Suðurlands og munar hér um heil 3,7%. Á síðastliðnum 5 árum hefur meðaltal raunávöxtunar hjá Lífeyrissjóði Vesturlands verið 5,82% en hjá Lífeyrissjóði Suðurlands einungis 2,39%. Hér er munur upp á 3,43%. Sé tekið mið af raunávöxtun síðustu 10 ára er raunávöxtun hjá Lífeyrissjóði Vesturlands 6,51% en 4,14% hjá Lífeyrissjóði Suðurlands. Hér er munur upp á 2,37%.

Eins og sést á þessum tölum hefur Gylfi Jónasson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vesturlands rekið sjóð okkar félagsmanna afar vel og eini ljósi punkturinn sem formaður félagsins sér við þessa sameiningu sá að Gylfi Jónasson verður framkvæmdastjóri hins nýja sameinaða lífeyrissjóðs. Fram kom í máli fulltrúa stéttarfélaganna á ársfundinum í gær að menn binda vonir við að Gylfi muni snúa fjárfestingarstefnu Lífeyrissjóðs Suðurlands til betri vegar og muni það skila okkar sjóðsfélögum betri sjóði til lengri tíma litið.

15
May

Árskort með afslætti fyrir félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness!

Frá og með deginum í dag býður sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Akraness félagsmönnum sínum 25% afslátt af kortum Íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar. Um er að ræða fjórar gerðir af kortum:

Árskort í þrek og sund:

- fullt verð: 25.000 kr.   - með afslætti: 18.750 kr.

Árskort í sund:

- fullt verð: 15.000 kr.   - með afslætti: 11.250 kr.

6 mán. kort í þrek og sund:

- fullt verð: 14.900 kr.   - með afslætti: 11.175 kr.

3 mán. kort í þrek og sund:

- fullt verð: 9.900 kr.     - með afslætti: 7.425 kr.

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni var afkoma félagsins á síðasta ári afar glæsileg og má rekja þetta framtak sjúkrasjóðs til þeirrar niðurstöðu.

Kortin eru seld með afslætti á skrifstofu félagsins að Sunnubraut 13. Endilega hafið samband við skrifstofuna ef spurningar vakna.

12
May

Starfsmenn SHA nokkuð sáttir

Fundur var haldinn í hádeginu í dag með starfsmönnum Sjúkrahúss Akraness. Á fundinum gerði formaður félagsins starfsmönnum grein fyrir þeim launasamanburði sem honum var falið að vinna. Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni hafa forsvarsmenn SHA kynnt að laun starfsmanna munu hækka frá og með 1. maí um fjóra launaflokka og síðan aftur um 4% þann 1. september. Í samanburðinum kom fram að þegar báðar hækkanirnar verða orðnar að veruleika þann 1. september verði launamunur sem ríkt hefur á milli sambærilegra starfa hjá sveitarfélögunum orðinn nánast enginn.

Starfsmenn voru nokkuð sáttir með að sjá að búið yrði að jafna þennan launamun eins og áður sagði þann 1. september þótt vissulega hefðu starfsmenn viljað sjá allar hækkanirnar koma strax 1. maí. Þó ber þess að gæta að það eru atriði í þessum samanburði sem þarfnast nánari skoðunar og lúta að starfsmönnum í mötuneyti.

Mun formaður hafa samband við forsvarsmenn SHA og fara yfir þau atriði.

Starfsmenn voru sammála því að hverfa frá fyrirhuguðum aðgerðum og vonast til að leiðréttingar þessar komi strax til framkvæmda við næstu útborgun.

09
May

Formanni falið að kanna hvort hækkanir sem komu í dag til starfsmanna SHA dugi til jöfnunar á við sveitarfélögin

Formaður félagsins fundaði með starfsmönnum SHA í morgun vegna óánægju starfsmanna með að vera á lakari kjörum heldur starfsmenn sem gegna samskonar störfum hjá sveitarfélögunum.

Í morgun kom hins vegar tilkynning frá samninganefnd ríkisins um að þeir væru tilbúnir til að hækka kjör starfsmanna sem starfa eftir kjarasamningi SGS við fjármálaráðherra um allt að 4 launaflokka.  Nemur sú hækkun um 12.5% og mun gilda frá 1. maí.   Einnig mun koma 4% launahækkun 1. september svo samtals munu laun starfsmanna SHA hækka um  17%.

Starfsmenn SHA fagna að sjálfsögðu þessari hækkun en fólu jafnframt formanni Verkalýðsfélags Akraness að kanna hvort þessi hækkun dugi til að jafna laun þeirra á við starfsmenn sem starfa við sambærileg störf hjá sveitarfélögunum.

Það kom skýrt fram hjá starfsmönnum SHA að þær sætta sig við ekkert  annað en fullan jöfnuð á við starfsmenn sem starfa við sömu störf hjá sveitarfélögunum.

Ákveðið var að funda aftur á föstudaginn kemur.  Í millitíðinni mun formaður félagsins bera saman launakjör starfsmanna SHA við launakjör starfsmanna sveitarfélaganna, sem starfa við ræstingar, mötuneyti og í þvottahúsi að teknu tilliti til þeirra hækkana sem tilkynntar voru í dag.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image