• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15

Sveitamennt er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni sem eiga aðild að Starfsgreinasambandi Íslands.

Allar upplýsingar um Sveitamenn fræðslusjóð má lesa á heimasíðu sjóðsins sveitamennt.is

Athugið að umsóknir í fræðslusjóð eru hægt að nálgast á heimasíðu sjóðsins og skila rafrænt ásamt fylgigögnum - rafræn umsókn

Reglur um úthlutun úr einstaklingsdeild Sveitamenntar SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga

1. gr. Almennt um skilyrði fyrir umsókn:

  1. Félagsmaður sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 24 og greitt til aðildarfélags Landsmenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsnáms. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.  (Breytt síðast 1. janúar 2016)
  2. Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
  3. Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila ásamt reikningi/kvittun til viðkomandi stéttarfélags. Umsókn þarf að berast viðkomandi stéttarfélagi innan 12 mánaða frá dagsetningu reiknings.
  4. Félagsmaður sem hverfur frá vinnu vegna veikinda, heimilisástæðna eða af öðrum gildum ástæðum, heldur rétti sínum til styrks enda komi hann aftur til vinnu eftir starfshlé og skal þá eiga rétt á greiðslu í samræmi við reglur. 
  5. Foreldrar í fæðingar-eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
  6. Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
  7. Áunnin réttindi félagsmanna innan Sveitamenntar SGS, Landsmenntar, Starfsafls, Sjómenntar og Starfsmenntasjóðs verslunar-og skrifstofufólks haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga/deilda sjóðanna.
  8. Félagsmaður sem hverfur frá vinnu og hættir að greiða til aðildarfélags Sveitamenntar, heldur áunnum réttindum sínum til styrks í 3 mánuði. Að 3 mánuðum liðnum fellur réttur hans niður.
  9. Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar og eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra og eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.

Með umsókn skal skila

Frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing, nafn og kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.

Vegna umsóknar um styrk fyrir nám eða námskeið sem tekið er erlendis þarf að leggja fram frumrit reiknings á upprunalegu tungumáli og á ensku. Þá verður að vera sundurliðuð kostnaðarskipting, þ.e. ekki er greitt fyrir ferðir, gistingu og uppihald. Brýnt er að allur texti sé skýr og skilmerkilegur. Einnig þarf að fylgja með bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu í íslenskum krónum. Brýnt er að allur texti sé skýr og skilmerkilegur. Sé þýðing ekki fyrir hendi fæst ekki greiddur styrkur. Þetta á einnig við um nám/námskeið hjá erlendum vefsíðum. 

Upphæðir endurgreiðslu

Fullur réttur í námsstyrk er 100% af reikningi en þó aldrei meira en 130.000,- á ári f.o.m. 1. janúar 2024 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir þann tíma.

Uppsafnaður réttur; aukinn styrkur til náms: Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu tvö ár eiga rétt á styrk allt að kr. 260.000,-  eða síðustu þrjú ár eiga rétt á allt að kr. 390.000,-  fyrir eitt samfellt nám eða námskeið samkvæmt nánari reglum sjóðsins. Uppsafnaður réttur skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000,- á tíma uppsöfnunar. Sá styrkur kæmi þó til frádráttar. Ferðakostnaður vegna náms getur að hámarki orðið kr. 130.000.-  sem hluti af kostnaði náms/námskeiðs í þessu tilviki. Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist sjóðnum að lágmarki í 30 mánuði af síðustu 36 mánuðum fyrir dagsetningu umsóknar.

Ath. nýjar reglur taka gildi 1. jan.2024 og gilda gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir þann tíma.

Réttur ellilífeyrisþega: Ellilífeyrisþegar (félagsmenn aðildarfélaga SGS) halda rétti sínum til einstaklingsstyrkja í allt að 24 mánuði frá því þeir hætta að vinna.  Þetta er í samhengi við réttindi þeirra sem eru á tímabundinni örorku og annað sbr. 4. lið í reglum um einstaklingsstyrki. (samþykkt í mars 2012)

Starfstengt netnám: Vegna netnámskeiða þarf námskeiðið að hafa skilgreint upphaf, endi og vera með leiðbeinanda. Ef um áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdum námskeiðum/kennsluefni er að ræða, styrkir sjóðurinn að hámarki aðgang til 1 árs.

Raunfærnimat: Vegna kostnaðarþátttöku einstaklinga í raunfærnimati (félagsmenn aðildarfélaga SGS sem ekki tilheyra markhópi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins; þ.e. fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskólastigi), geta þeir sótt um almennan styrk vegna þess.

2. gr. styrkir til félagsmanna á sjúkradagpeningum

Félagsmenn sem taka sjúkradagpeninga skulu halda réttindum til styrks í allt að 6 mánuði eins og réttindi voru við starfslok.

3. gr. styrkir vegna íslenskunáms

Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um almennan styrk vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild í aðildarfélagi Sveitamenntar.

 4. gr. Ákvörðun um styrk ofl.

Viðkomandi stéttarfélag tekur ákvörðun um það hvort orðið skuli við umsókn um styrk, hversu hár hann skuli vera og afgreiðir hann í samræmi við reglur þessar.

Ferða- og dvalarstyrkir í tengslum við nám/námskeið

Þeir einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám/námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Um er að ræða einstaklingsstyrk og sótt er um á sérstöku eyðublaði.
Styrkir eru afgreiddir af viðkomandi stéttarfélagi í umboði Sveitamenntar.

Reglur um sérstaka ferða-og dvalarstyrki:

  • Akstur 50% af almennu kílómetragjaldi eins og það er ákveðið hverju sinni skv. taxta ferðakostnaðarnefndar.
  • Ekki er tekið þátt í ferðakostnaði vegna aksturs sem er innan við 12 km frá námskeiðsstað eða skóla.
  • Varðandi akstur og flug er alltaf gert ráð fyrir að menn velji ódýrustu leiðina. Halda skal akstursdagbók sem er síðan skilað inn með umsókn.
  • Flug: Heimilt verði að niðurgreiða kostnað 100% af hverju flugfargjaldi en að hámarki kr. 130.000.- (Gildistími frá 1. jan. 2024)
  • Gisting: Heimilt verði að niðurgreiða hverja gistinótt á hótelum/gistiheimilum um að hámarki kr. 6.000.-.
  • Skila þarf með umsókn staðfestingu frá skóla/fræðsluaðila um þátttöku í námi/námskeiði.

Ferða-og dvalarstyrkir eru afgreiddir sér, en dragast frá hámarki einstaklingsstyrkja
Endurnýjaðar reglur gilda f.o.m. 1. Júlí 2013.

Áfrýjunarréttur: Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrki til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, þá getur félagsmaður vísað umsókn sinni til stjórnar Sveitamenntar til afgreiðslu.

*Reglur þessar voru samþykktar á fundi sjóðstjórnar þann 12. janúar 2007. Þær geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.
Breyting vegna 4. gr. reglna samþykkt 7. maí 2007
Breyting vegna 3. gr. tók gildi 1. janúar 2009 en þá var samþykkt að greiða út styrki um leið og viðkomandi félagsmaður legði inn umsókn ásamt reikningi/kvittun vegna náms/námskeiða.
Breyting gerð 1. júlí 2013 á reglum um sérstaka ferða-og dvalarstyrki
Breyting gerð 1. janúar 2020 – sérstakur styrkur í kr. 390.000.- (1.gr)
Breyting gerð 1. janúar 2018 – tómstundastyrkir 75%, hámark kr. 30.000.-
Breyting gerð 1. janúar 2020 á hámarki einstaklingsstyrkja í kr. 130.000.-

Uppfært 05.02.2024

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image