• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Formaður fundaði með framkvæmdastjóra Fangs í dag vegna nýs fyrirtækjasamnings Starfsmenn Fangs á fundi með formanni félagsins
02
Aug

Formaður fundaði með framkvæmdastjóra Fangs í dag vegna nýs fyrirtækjasamnings

Formaður félagsins fundaði með framkvæmdastjóra Fangs ehf. í dag.  Tilefni fundarins var að  ræða hugsanlega útfærslu á fyrirtækjasamningi fyrir starfsmenn Fangs .  Fundurinn í dag var mjög góður og er félagið nokkuð bjartsýnt á að lausn finnist vonbráðar.  Formaður félagsins gerðir þó grein fyrir þeim kröfum sem starfsmenn og stéttarfélagið telja að þurfi klárlega að vera í nýjum fyrirtækjasamningi svo hægt sé að ganga frá nýjum samningi.  Eins og áður sagði þá finnur Verkalýðsfélag Akraness fyrir miklum samnings vilja hjá forsvarsmönnum Fangs.  Verkalýðsfélag Akraness mun samt sem áður standa fast á þeim kjaraatriðum sem skipta starfsmenn hvað mestu máli.  Einnig að almennar kauphækkanir verði með sambærilegum hætti og gerður voru í kjarasamningum Íslenska járnblendifélagsins og Klafa.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image