• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Met þátttaka í hinni árlegu ferð sem Verkalýðsfélag Akraness býður eldri félagsmönnum í ! Eldri félagsmenn í ferðinni frá því í fyrra
30
Aug

Met þátttaka í hinni árlegu ferð sem Verkalýðsfélag Akraness býður eldri félagsmönnum í !

Met þátttaka er í ferðina sem Verkalýðsfélag Akraness býður eldri félagsmönnum í.  Það hafa um 130 eldri félagsmenn nú þegar  skráð sig í ferðina sem farin verður á morgun og sjaldan eða aldrei verið fleiri sem ætla þiggja boð félagsins.   Leiðin mun liggja um Snæfellsnesið og verða áhugaverðustu staðirnir á Snæfellsnesinu skoðaðir.   Borðaður verður hádegisverður að Búðum og síðan verður stoppað í Bjarnarhöfn og smakkað á hákarli og harðfiski.  Leiðsögumaður í ferðinni verður hinn geðþekki leiðsögumaður Björn Finsen sem þekkir Snæfellsnesið eins og lófana á sér.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image