• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15
Boðað hefur verið til áríðandi fundar með starfsmönnum Fangs ehf. Starfsmenn Fangs á fundi með formanni félagsins
14
Jul

Boðað hefur verið til áríðandi fundar með starfsmönnum Fangs ehf.

Formaður félagsins hefur boðað til áríðandi fundar með starfsmönnum Fangs ehf. á mánudaginn kemur.  Ætlar formaður félagsins að fara ýtarlega yfir þá alvarlegu stöðu sem upp er komin í kjaradeilunni við eigendur fyrirtækisins.  Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá hafa Samtök atvinnulífsins neitað alfarið að gera kjarasamning við stéttarfélagið fyrir umrædd störf.  Samtök atvinnulífsins  telja að í gildi sé kjarasamningur fyrir starfsmenn Fangs, sem Verkalýðsfélag Akraness telur fráleitt.   Á þessum fundi með starfsmönnum mun verða ákveðið endanlega hvort Verkalýðsfélag Akraness fer með ágreininginn fyrir félagsdóm.  Reyndar er allt útlit á að svo verði raunin.

Fréttir

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image